Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þetta er megrunarlyfið sem Íslendingar sprauta sig með

Þetta er megrunarlyfið sem Íslendingar sprauta sig með

Mannlíf birti fyrr í dag grein um lyfið Saxenda sem virð­ist vera að tröll­ríða öllu sem nýjasta megr­unaræðið. Við höldum áfram að fjalla um málið. Það vekur ugg hve auð­velt reyn­ist að nálg­ast lyfið og hvorki er lyfið öruggt vegna lít­illa og fremur ómark­tækra rann­sókna sökum meðal ann­ars mik­ils  brott­falls úr rann­sókn­unum auk þess sem ein­ungis eru um skamm­tíma rann­sóknir að ræða sem gerðar hafa verið.

Hvað er Saxenda ?

Inni á Lyfja.is, lyfja­bók, má finna eft­ir­far­andi útskýr­ingar á lyf­inu :

„Saxenda er lyf sem stuðlar að þyngd­ar­tapi og inni­heldur virka efnið liraglú­tíð. Það er líkt nátt­úru­lega horm­ón­inu GLP-1 sem er losað úr þörmum eftir mál­tíð. Saxenda virkar með því að hafa áhrif á við­taka í heil­anum sem stjórna mat­ar­lyst­inni og veldur því að þú finnur fyrir seddu­til­finn­ingu og minna hungri. Þetta getur hjálpað þér við að borða minna og draga úr lík­ams­þyngd­inni. Við hverju Saxenda er notað Saxenda er notað til að draga úr þyngd til við­bótar við matar­æði og hreyf­ingu hjá full­orðnum, 18 ára og eldri, sem eru með BMI 30 eða hærri (offita) eða BMI 27 til lægri en 30 (ofþyngd) og þyngd­ar­tengd heilsu­far­s­vanda­mál (t.d. syk­ur­sýki, háan blóð­þrýst­ing, óeðli­legt fitu­magn í blóði eða önd­un­ar­vanda­mál í svefni sem kall­ast „teppu­kæfisvefn“).

Lík­ams­þyngd­ar­stuð­ull (Body Mass Index, BMI) er mæli­kvarði á þyngd þína í hlut­falli við hæð­ina. Þú átt ein­ungis að halda áfram notkun Saxenda ef þú hefur misst a.m.k. 5% upp­haf­legrar lík­ams­þyngdar eftir 12 vikur á skammt­inum 3 mg/sól­ar­hring (sjá kafla 3). Ráðfærðu þig við lækn­inn áður en þú heldur áfram. Mataræði og hreyf­ing Lækn­ir­inn mun setja þig á sér­stakt matar­æði og æfinga­á­ætlun. Haltu þig við áætl­un­ina meðan þú notar Saxenda.“

Of auðvelt að nálgast lyfið

Það sem er skrítið og vekur ugg, er fólk sem fellur ekki undir þau ströngu við­mið sem eiga að vera for­senda þess að þú fáir lyfið upp­á­skrifað. Það eru mörg til­felli þess að fólk sem vill losa sig við örfá kíló fái lyfið upp á skrifað hjá læknum. Fólk ætti ekki að ganga út með þetta lyf nema það sé spurn­ing um ógn­andi heilsu­fars­lega þætti sem eru til staðar eða gætu skap­ast. Fólk sem gæti hugs­an­lega flokk­ast með fáein aukakíló er varla með offitu­vanda né und­ir­liggj­andi sjúk­dóma sem þurfa að vera til staðar. Það er eng­inn efi á því að fólk í mik­illi yfir­þyngd og fólk sem er of þungt og jafn­vel komið með fylgi­kvilla, þarf á svona inn­gripi að halda og það geti jafn­vel gagn­ast þeim til þess að öðl­ast heil­brigð­ara líf, málið snýst síður en svo um það.

Slag­orðið sem fram­leið­endur Saxenda not­ast við

Ekki einfalt né öruggt

Lyfið Saxenda er mjög dýrt lyf og það gilda strangar kröfur svo lyfið fáist end­ur­nýjað. Borið hefur á því í fjöl­miðlum upp á síðkastið að fólk sem er að fá neitun um áfram­hald­andi upp­á­skrift er ekki ánægt með Sjúkra­trygg­ingar Íslands. Þær eru þó að setja upp raun­hæfar kröfur um áfram­hald­andi með­ferð á fok­dýru lyfi. Það er líka stór hópur fólks sem er á lyf­inu án nokk­urrar nið­ur­greiðslu og er þá hver útleystur skammtur að kosta um 50.000 krónur, hann dugar að jafn­aði í mánuð. Það er líka þekkt að lyfið hrein­lega hætti að virka en í sumum til­fellum er hægt að stoppa með­ferð­ina og byrja aftur, end­ur­ræsa hana en það virkar alls ekki alltaf. Það eru líka til fjöl­mörg dæmi þess að fólk þyng­ist af lyf­inu í stað þess að létt­ast.

Bæði konur og karlar nota lyfið en konur virð­ast þó vera í miklum meiri­hluta not­enda. Hér að neðan má sjá ummæli bæði karla og kvenna sem hafa reynslu af lyf­inu Saxenda.

Ég þurfti að hætta eftir 10 daga fékk svo miklar aukaverkanir

Ég þoldi ekki lyfið

Ég þurfti að hætta vegna þess að blóðþrýstingurinn hækkaði mikið

Ég greiði fullt verð fyrir lyfið, alveg 50.000 krónur og auka nærri 10.000 krónur á mán­uði fyrir lyfið en það er lítið að ger­ast. Ég held ég ætli ekki að halda áfram þetta er svo dýrt og þetta veldur mér mik­illi ógleði.

Ég er mjög sátt enda búin að missa 3 kíló rúmlega á nærri þremur mánuðum

Sorrý, ekki þess virði

Meira að segja ég lét glepjast, ég veit að svona lausnir virka ekki

Er sátt með minn árangur hef verið á lyf­inu í fjóra mán­uði og er búin að missa um 11 kíló

Fram­leið­andi Saxenda tekur eft­ir­far­andi fram um lyfið:

The most common Saxenda® side effects are:

  • nausea
  • diarr­hea
  • constipation
  • headache
  • vomit­ing
  • low blood sugar (hypoglycemia)
  • decreased app­etite
  • upset stomach
  • tired­ness
  • dizziness
  • stomach pain
  • change in enzyme (lipase) levels in your blood

Serious side effects may happen in people who take Saxenda®, including:

Possible thyroid tumors, including cancer. Tell your health care pro­fessional if you get a lump or swelling in your neck, hoar­seness, trouble swallowing, or short­ness of bre­ath. These may be symptoms of thyroid cancer. In stu­dies with rats and mice, Saxenda® and medicines that work like Saxenda® caused thyroid tumors, including thyroid cancer. It is not known if Saxenda® will cause thyroid tumors or a type of thyroid cancer called medull­ary thyroid carcinoma (MTC) in people.

Do not use Saxenda® if you or any of your family have ever had MTC, or if you have an endocrine system condition called Multiple Endocrine Neoplasia syndrome type 2 (MEN 2).

Mannlíf mun áfram birta fleiri greinar sem sýna fram á virkni Saxenda, upp­lýsa betur um þetta nýja megr­unaræði og ræða við fólk um afleið­ing­arnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag