Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sandra upplifði taumlaust ofbeldi í fósturkerfinu: „Ég skar orðið „hóra” á handlegginn á mér“

Sandra upplifði taumlaust ofbeldi í fósturkerfinu: „Ég skar orðið „hóra” á handlegginn á mér“

„Ofbeldið byrj­aði nokkrum mán­uðum eftir að ég var búin að koma mér fyrir í því sem kallað er „Styrkt fóstur” árið 2015. Þessar refs­ingar ekk­ert smá­vægi­legar heldur harka­legar,“ segir McKenzie Sandra Ward sem send var í fóstur í Garð á Suð­ur­nesjum 15 ára gömul. Kenzie, eins og hún er kölluð, er brotin eftir reynslu sína í fóst­ur­kerf­inu og kallar eftir aðstoð við að ná fram rétt­læti.

Ekkert barn má upplifa þetta

Hún segir hjónin sem hún var send til hafa verið mjög ströng og samúð með fóst­ur­börn­unum hafi verið engin.

„Þau létu okkur vita að þau hefðu engar til­finn­ingar gagn­vart okkar vellíðan og heilsu. Refs­ing­arnar sem ég þurfti að þola í næstum fjögur ár voru með þeim verstu sem ég gæti hugs­an­lega nokkurn tím­ann upp­lifað og eitt­hvað sem ekk­ert barn né ung­lingur ætti að þurfa að þola”.

Kenzie, segir fyrstu vik­urnar sem hún byrj­aði í nýja grunn­skól­anum hafa gengið rosa­lega vel, hún hafi eign­ast vini, sinn fyrsta kærasta og henni komið vel saman við krakk­ana á heim­il­inu.

„En fóst­ur­for­eld­ur­unum leist ekk­ert á það hvað mér hafði tekst að koma mér vel af stað þannig að þau köll­uðu eftir fundi niður í skól­anum ásamt umsjón­ar­kenn­ara mínum og skóla­stjóra. Sögðu að það það þyrfti að fylgj­ast með mér. Daginn eftir var eins og hel­víti hefði opn­ast. Krakk­arnir byrj­uðu að upp­nefna mig: Þjófur, hóra, tussa, belja og fleira, hættu að tala við mig, og vildi eng­inn neitt með mig hafa“.

Hótanir og refsingar daglega

Kenzie frétti þá að umsjón­ar­kenn­arar hefðu kallað til fundar með nem­endum sem henni var ekki sagt frá.

„Þar komust þessar lygar kom­ist af stað, af hverju veit ég ekki”.

Hún fór grát­andi heim og leit­aði til fóst­ur­móður sinnar sem hafði engan skiln­ing á aðstæðum hennar. „Hún rúll­aði aug­unum og sagði „nú, og hvað?“ og ég stóð algjör­lega miður mín og rugluð á svari hennar. Næst sagði hún mér að hætta að vera með stæla því ann­ars yrði fóst­urpabbi minn lát­inn vita og myndi hann refsa mér. Þessa hótun fékk ég dag­lega”.

Hún segir fóst­ur­for­eld­rana hafa komið afar vel fram við sín eigin börn er börnin í kerf­inu, fóst­ur­börnin, fengur gjör­ó­líka fram­komu. „Það var aldrei jafn­rétti á þessu heim­ili”.

Fóst­ur­for­eldr­arnir settu upp þjófar­varn­ar­kerfi á allar her­berg­is­hurðar og úti­dyra­hurðar og létu fóst­ur­börnin vita að í hvert ein­asta skipti sem þau vökn­uðum á næt­urnar til þess að fara á kló­settið væri fylgst með þeim. Þau kæmust ekk­ert án þess að með þeim væri fylgst.

„Þau margoft bönn­uðu mér litla hluti eins og að fá síma­tíma með mömmu minni, að borða, lesa bækur, eða  tala við hina krakk­ana á heim­il­inu. Og þetta versn­aði enn meira þegar ég byrj­aði í fjöl­braut­ar­skóla”.

Neydd í fóstureyðingu

Hún eign­að­ist þrjá kærasta í  fjöl­braut­ar­skól­anum. „Þau skemmdu öll sam­böndin mín með því að hringja í for­eld­rana þeirra og ljúga öllu uppá mig, meðal ann­ars hversu klikkuð eg væri. Ég átti samt alvöru vin­konur sem vissu að þetta væri allt saman rugl og þekktu mig inn að beini”.

þau neyddu mig í fóst­ur­eyð­ingu

Fyrsta árið í fjöl­braut­ar­skól­anum gekk vel að sögn Kenzie en að breytt­ist hratt þegar kom að öðru árinu. „Ég varð ólétt árið 2017 og þau neyddu mig í fóst­ur­eyð­ingu. Ég var aldrei spurð hvort að ég vildi eiga barnið, mér var ein­fald­lega sagt að ég ætti tíma í fóst­ur­eyð­ingu á Land­spít­al­anum og ég neydd til að skrifa undir sam­þykki. Það var öskrað á mig að kærast­inn minn vildi mig ekki, mamma mín vildi mig ekki og ég væri hæl­is­matur. Mér var enn­fremur sagt að ég væri að herma eftir dóttir þeirra sem sjálf var nýbúin að eign­ast barn. Dóttirin tók undir með for­eldrum sínum og sagði mig heimska og ég hefði ekk­ert með barn að gera”.

Fóst­ur­for­eldrar Kenzie brutu, að hennar sögn, allan trúnað við hana og það var ekk­ert til staðar lengur sem hét traust. . „Ég fékk nóg og ákvað að svara fyrir mig. Þá byrj­uðu refs­ingar með klípum, ýtingum og sær­indum. Ég var orðin svo þjáð að ég byrj­aði að skera mig. Ég hafði verið kölluð „hóra” svo oft að ég var farin að trúa því sjálf og skar orðið „Hóra” á hand­legg­inn á mér til að geðj­ast þeim“.

Sálfræðingur braut allt traust

Kenzie hafði engan til þess að tala við og var ákveðið að senda hana til sál­fræð­ings í Keflavík sem hún segir hafa verið hræði­lega lífs­reynslu.

„Hann braut allt traust sem ég reyndi að byggja upp milli okkar með því að hringja í fóst­ur­for­eld­rana mína eftir hvern ein­asta tíma og láta þá vita hvað við vorum að ræða og hvað ég hefði verið að segja. Versta líð­anin og kvíðin var þegar ég beið eftir að þau sæktu mig. Þá var þögn í bílnum en þegar heim var komið görg­uðu þau á mig, köll­uðu mig öllum illum nöfnum, að ég væri lyg­ari, athygl­is­sjúk og geð­veik. Ég var sett í straff og tekin af mér viku­leg sam­töl við mömmu mína“.

Fóst­ur­móðir Kenzie tal­aði reglu­lega við móður hennar.

„Hún laug að ég hafi verið að stela, að hór­ast í Keflavík, að ég væri að dópa og haga mér illa, ég væri með hegð­un­ar­vanda­mál og berði systur mína. Hún gætti þess að láta mig heyra allt sem hún sagði og ég gat ekk­ert gert nema sitja grát­andi því ég gat ekki talað við mömmu mína til að leið­rétta lygarnar“.

Hundsuð af barnavernd

Það var komið upp fleiri örygg­is­mynda­vélum til að fylgj­ast með Kenzie. „Ég var búin að fá nóg og fékk aðgang að tölvu í skól­anum til að senda póst á barna­vernd og kalla eftir hjálp fyrir mig og systur mína. Barna­vernd hunds­aði mig aftur á móti alger­lega“.

Þá byrj­aði það sem Kenzie kallar alvar­leg­asta atvikið í fóstr­inu.

„Ég mátti ekki hafa síma og þegar hún komst að því að ég hafði fengið aðgengi að tölvu í skól­anum var leitað á mér að síma hvern ein­asta morgun og aftur þegar ég kom heim úr skól­anum. Þetta var gert fyrir framan alla í hús­inu til að nið­ur­lægja mig. Ég bað alla sem ég gat um hjálp en eng­inn vildi trúa mér því það var búið að blása út að ég væri geð­biluð”.

Það komu reglu­lega ný fóst­ur­börn inn á heim­ilið og með því fyrsta sem gert var var að segja þeim að Kenzie væri geð­veik, klám­sjúk og mætti ekki tala við þau því ann­ars yrði þeim refsað. Hún reyndi að leið­rétta lygarnar en var beitt meira ofbeldi í kjöl­farið.

Fötin loðin af hestshárum

„Einn dag­inn kem ég heim og þá stendur hún í dyra­gætt­inni og gargar á mig „þú eyði­lagðir þvotta­vél­ina og þurrkar­ann minn,“ sem ekki gekk upp því mér var bannað að nota þvotta­vél­ina, mér var ekki treyst til þess og gekk yfir­leitt um í sömu föt­unum. Þau keyptu sífellt ný tæki fyrir pen­ing­inn sem átti að vera til staðar fyrir okkur krakk­ana en hentu gömlu tækj­unum úti bíl­skúr þar sem tepp­inn af hest­unum þeirra voru þvegin. Þar var eina þvotta­vélin sem ég mátti stundum nota og voru öll fötin mín voru kaf­loðin í hárum og mig klæj­aði enda­laust úti eitt. Þeim var alveg sama. Þau stóðu og hlógu að mér. Ofast var mér síðan hent út í skúr og látin sitja þar á stólgarmi klukku­tímunum saman”.

Her­berg­is­hurðin var tekin af hjörum hjá henni og þá sjaldan þegar hún fékk leyfi til að fara í sturtu eftir margra daga beiðni sáu allir hana nakta. Hún fékk aðeins nokkrar mín­útur áður en henni var sagt að drulla sér út, hún væri að eyða vatni. „Ég mátti ekki fara á kló­settið ein, hún fylgdi með mér og ég fékk bara nokkrar mín­útur áður en mér var hent út. Hún naut þess að stjórna mér í einu og öllu og hún lét mig vita að hún hefði gaman að því”.

Kenzie mátti ekki tala við önnur börn á heim­il­inu, ekki horfa á þau, ekki lesa bækur, skrifa, borða né sofa á sama tíma og þau. „Fóst­urpabbi minn kom einnig oft með mjög óvið­eig­andi athuga­semdir um lík­ama minn og lét mér líða hræði­lega óþægi­lega”.

Gat ekki meira en gefst ekki upp

Fóst­ur­móðir Kenzie tók hana á end­anum úr skóla og setti hana í rækta stóran kart­öflu­garð. „Hún tók sjálf heið­ur­inn af honum þótt ég hefði verið alla daga úti í vonsku veðrir, fár­veik við að búa til garð­inn og þrífa hesta­skít.”

Kenzie fór þvínæst í bæj­ar­vinn­una þar sem fóst­ur­for­eldrar hennar sögðu flokk­stjór­anum að hún væri hóra og það bæri að forð­ast hana. „Ég var nið­ur­lægð á allan mögu­legan hátt”.

Kenzie gat ekki meira. Hún var brotin. „Þetta sum­arið skreið ég útum glugg­ann minn og hljóp í burtu og leit aldrei til baka”.

Í dag er Kenzie stolt móðir 17 mán­aða telpu og stefnir á sjúkra­liða­nám. Hún varar við kerf­inu sem braut hana niður í rúm þrjú ár. Hún hefur leitað réttar síns hjá lög­reglu og en finnst málin ganga hægt fyrir sig. Hún kallar eftir hjálp en hefur þó ekki gefið upp von­ina.

„Ég mun aldrei gef­ast upp,” segir Kenzie.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu