Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Veganforeldrar óttaslegnir: „Sonur minn reynir alls staðar að komast í kjöt! Hvað gerum við?“

Veganforeldrar óttaslegnir: „Sonur minn reynir alls staðar að komast í kjöt! Hvað gerum við?“

„Hæ! Sonur minn sem er 5 ára og borðað græn­ker­a­fæði heima frá 2 ára aldri elskar kjöt og virð­ist kippa sér lítið upp við það hvernig það er búið til. Er ein­hver hér sem hefur reynslu af því fá barn til að hætta að borða kjöt og vill deila smá ráðum?“

Þessa spurn­ingu má lesa í græn­kera­hóp for­eldra á Facebook í dag en miklar umræður hafa spunn­ist um þráð­inn. Ekki eru allir á sáttir um nei­kvæð umhverf­is­á­hrif þeirra sem aðhyll­ast kjöt­neyslu barna og segja vand­ann stig­vax­andi.

„Ég er búin að vera vegan í rúm 4 ár núna og mað­ur­inn minn í 3 ár, sonur okkar sem er 5 ára er með mjólkur og eggja­of­næmi, fær ekki kjöt né fisk heima en reynir all­staðar ann­ars­staðar að kom­ast í kjöt,“ segir móðir sú sem opnar á umræð­una og bætir því við að for­eldr­unum hafi þótt nægt „vesen“ fyrir leik­skóla, ömmur og afa að barnið mætti hvorki fá mat­ar­af­urðir sem inni­héldu mjólk eða egg.

„Ég vildi óska að ég byggi á eyði­eyju þar sem ekk­ert kjöt er á boðstólum“

„Núna hefur hins vegar okkar stað­festa auk­ist og við viljum helst ekki að hann borði kjöt,“ segir móðir barns­ins jafn­framt. Skóli og fjöl­skylda hafi verið eitt verk­efni en nú standi for­eldr­arnir frammi fyrir því að barnið biðji um kjöt­af­urðir að borða.

Langar ekki að barnið skammist sín fyrir löngun í kjöt

„Hann virð­ist vera að biðja um kjöt ein­göngu af því honum finnst það gott á bragðið (skynja þetta alla­vega ekki sem mót­þróa gagn­vart okkur), við höfum alla tíð verið heið­ar­leg við hann um það hvað kjöt er og við höfum rætt það hvernig kjöt er búið til en það virð­ist ekki fá á hann. Hann veit að við erum græn­kerar og að við borðum ekki dýr. Langar að hann sjái sjálfur ástæðu til að borða þetta ekki en það er kannski til mik­ils ætl­ast og á sama tíma langar mig ekki að hann upp­lifi þessa löngun sína í kjöt sem ein­hverja skömm eða að hann eigi sjálfur að bera ábyrgð á því kjöti sem hann svo borðar (eða líða þannig). Semsagt smá krísa, ráð og/eða vanga­veltur vel þegnar!“

„Líklega er fyrsta skrefið að ræða við full­orðna aðila sem eru nærri okkur og eru mögu­lega að ota svona skila­boðum að honum„

Einhver spyr hvort barnið sé að fá nægt prótein úr fæðu en dregur þó í efa hvort hreinn prótein­skortur meðal barna valdi löngun þeirra sömu í kjöt. „Hafið þið prófað að lesa fyrir hann barna­bækur eins og „Þess vegna borðum við ekki dýr?“ spyr önnur móðir og með­limur í hópnum. „Er mögu­leiki að hann sé að fá skila­boð um að kjöt sé jákvætt eða nauð­syn­legt ann­ars staðar frá?“ spyr hún jafn­framt og veltir þar með upp þeim mögu­leika að barnið hafi fengið hvatn­ingu utan heim­ilis sem snúi að neyslu kjöt­vara.

Hvetja foreldra til að ræða við fullorðna aðila um skaðsemi kjötneyslu

Spurn­ingin fellur í góðan hljóm­grunn móður sem segir punkt­ana vera góða og að barnið fái nægt prótein án þess að inn­byrða kjöt­vörur, mat­ar­lystin sé með ágætum og baunir, linsur, hnetur, bulgur og fleiri afurðir úr jurta­rík­inu séu ríkj­andi á mat­seðli fjöl­skyld­unnar. „Ætla að tékka á barna­bókum! Og já, hann er að fá ein­hver svona skila­boð ann­ars­staðar, lík­lega er fyrsta skrefið að ræða við full­orðna aðila sem eru nærri okkur og eru mögu­lega að ota svona skila­boðum að honum, með­vitað eða ómeð­vitað,“ svarar hún og á þar við mögu­leika nei­kvæða skil­yrð­ingu sem hvetji til neyslu barna á kjöt­af­urðum.

Segja grænkera mæta sömu fordómum og neikvæðar staðalmyndir kynja

Barn­lausir með­limir blanda sér í umræð­una í hópnum og segir þannig ung kona skilj­an­legt að erfitt sé að eiga við óæski­leg skila­boð frá öðru fólki, sem hvetji gjarna granda­laus börn til neyslu kjöt­af­urða þvert á vilja for­eldra þeirra. Þá eigi græn­kerar undir högg að sækja rétt eins og bar­áttu­fólk sem berj­ist gegn staðalí­myndum kynj­anna mæti oft mót­spyrnu við mál­stað sínum. „Þetta á ekki bara við um vegan­isma, líka mikið um stað­al­myndir kynj­anna og alls konar svo­leiðis. En varð­andi vegan­isma þá er ennþá svo mikið af fólki sem heldur að þetta sé bara svaka­lega óhollt og heldur að það sé að gera rétt með því að berj­ast gegn því að börn séu alin upp vegan.“

Haframjólk, vegan-ostur og grænkerafæði uppistaðan í ískápnum

Tveggja barna móðir og græn­keri sem bendir þá á að barnið eigi að hafa val um eigið matar­æði en segir yngri dóttur sína sem er þriggja ára gömul vera vegan. „Af því að ég ákvað það fyrir hana mjög snemma. Og hún bara sættir sig við að eitt­hvað sem hana langar í er ekki vegan. Ekkert vesen bara eitt lítið „ó, ókei“. Og hún bara veit að kjöt eru dýr og hún borðar ekki dýr.“ Þá segir sú hin sama eldri dóttur sína, sjö ára gamla og eig­in­mann hennar vera vegan. „En þar sem það er ég sem elda mat­inn og kaupi inn er bara vegan í boði heima. Ég kaupi bara hafra­mjólk og vegan ost og álegg.“

„En þar sem það er ég sem elda mat­inn og kaupi inn er bara vegan í boði heima. Ég kaupi bara hafra­mjólk og vegan ost og álegg“

Eldri stúlk­una segir hún þó vita um hvað málið snú­ist og að barnið borði kjöt og fisk í skól­anum. „Henni er boðið í mat hér og þar og borðar bæði kjöt og fisk. Þegar við kaupum take-away kaupa þau feðginin oft saman eitt­hvað og ég og litla eitt­hvað. Mér finnst a.m.k. absalút að börnin eigi sjálf að hafa valið,“ svarar hún. „Ef litlan mín ákveður seinna að hún vilji borða dýr þá þarf ég að virða þá skoðun líka. Ég vildi óska að þau tækju þetta skref með mér en þau eru samt að hafa major áhrif þegar heim­il­is­haldið er vegan þó þau fái sér óvegan eitt­hvað öðru hvoru.“

„Og það hlýtur líka að vera sjálf­sagt fyrir for­eldri að ráða því hvar barn situr þegar mat­ur­inn er bor­inn fram. Til dæmis ekki í húsi sem ber fram dýra­af­urðir„

Hlutverk foreldra sé að ákveða hvaða mataræði er börnum fyrir bestu

For­eldrar í græn­kera­hóp eru ein­róma um að mik­il­vægt sé að beita ekki þvingun við mat­ar­borð fjöl­skyld­unnar, en skiptar skoð­anir eru þó um hversu mikið svig­rúm og skiln­ing eigi að auð­sýna dyntum og duttl­ungum yngstu kyn­slóð­ar­innar í eld­hús­inu. „Þegar ég var fimm ára þá hefði ég örugg­lega valið að borða súkkulaði í öll mál ef það hefði verið mitt að velja. Ung börn hafa ekki þroska til að taka ákvarð­anir um matar­æðið sitt byggðar á öðru en hvað þau bara langar í. Mér finnst ekk­ert sið­ferð­is­lega rangt við að taka ákvörðun um matar­æði barns­ins síns, svo lengi sem það felur ekki í sér ein­hverjar aðferðir sem eru nið­ur­brjót­andi fyrir barnið,“ má lesa af svörum.

„Barnið hefur aug­ljós­lega ekki val um að borða súkkulaði í öll mál. Hvort sem það er vegan eða ekki“

„Hvað ef barn vill ekk­ert nema pizzur?“ spyr þá græn­kerafaðir einn. „Á maður þá bara að gefa því pizzur og ekk­ert annað? Svarið er aug­ljós­lega nei og það er það sem þú munt segja og því er næsta spurn­ingin, hver er mun­ur­inn? Er það ekki hlut­verk for­eldra að ákveða fyrir barn hvað er því fyrir bestu þegar kemur að matar­æði? Hvers vegna er í lagi fyrir mig að neita barn­inu mínu um að borða nammi eða skyndi­bita en það er ekki í lagi fyrir mig að neita barn­inu mínu um að borða dýra­af­urðir?“

Alls ekki sjálfsagt að barni sé boðið í mat á öðru heimili

„Ég skil dilemm­una full­kom­lega,“ svarar önnur græn­kera­móðir í hópnum sem bendir á mik­il­vægi félags­legra tengsla og gildi vin­áttu utan heim­ilis. „Nú á ég sjö ára barn sem á orðið sitt eigið félags­líf. Henni er boðið í mat hér og þar. Það er alls ekki sjálf­sagt að barn sé það félags­lega sterkt að því sé yfir­höfuð boðið i mat á öðru heim­ili. Ég fagna því að henni sé boðið í lax heima hjá vin­konu sinni þegar ég er búin að elda tofu heima, sem ég veit að henni finnst ekk­ert sér­stakt. Pabbinn skal hins vegar láta sig [að] hafa það því þetta er það sem er í boði,“ og upp­sker svar græn­ker­a­föður sem stígur fast til jarðar og segir ein­fald­lega: „Barnið hefur aug­ljós­lega ekki val um að borða súkkulaði í öll mál. Hvort sem það er vegan eða ekki. Það er bor­inn fram matur. Barnið borðar hann eða borðar hann ekki,“ en því svarar græn­kera­móðir ein­fald­lega með orð­unum: „Og það hlýtur líka að vera sjálf­sagt fyrir for­eldri að ráða því hvar barn situr þegar mat­ur­inn er bor­inn fram. Til dæmis ekki í húsi sem ber fram dýra­af­urðir.“

„Ég vildi óska að ég byggi á eyði­eyju þar sem ekk­ert kjöt er á boðstólum,“ svarar tveggja barna græn­ker­inn og móð­irin að end­ingu fyr­ir­spurn í græn­kera­hóp for­eldra, Vegan for­eldrar á Íslandi. „Sann­leik­ur­inn er hins vegar sá að ég bý á eyju þar sem meir­hluti íbúa eru kjöt­ætur. Ég er leik­skóla­kenn­ari og þegar ég er spurð af 3 – 4 ára börnum af hverju ég vil ekki borða kjöt og af hverju ég drekk ekki mjólk get ég ekki annað en svarað því að ég borði ekki dýr og vilji að litlu kálfarnir fái mjólk­ina sína. Ég trúi því að drop­inn holi stein­inn og þó ég geri ekki annað en að planta fræjum þá finnst mér tíma mínum vel varið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi