Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Uppi á röngum tíma

Uppi á röngum tíma
Mynd / Unsplash.com

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Ég var orðin nokkuð full­orðin þegar ég átt­aði mig á því að mamma var aldrei mikið fyrir börn. Hún reyndi að rækja hlut­verk sitt sem heima­vinn­andi hús­móðir og móðir en leið senni­lega afar illa í því sem bitn­aði illi­lega á fjöl­skyld­unni.

Ég man eig­in­lega bara eftir mömmu sem pirraðri og upp­stökkri. Við syst­urnar þrjár fædd­umst á rúmum fimm árum og ég er elst. Oft hreytti mamma í mig þegar ég var komin með svo­lítið vit: „Ég hefði fleygt hringnum í hann pabba þinn ef ég hefði ekki orðið ólétt að þér“. Mér leið alltaf mjög illa þegar hún sagði þetta þótt ég væri fyrst of ung til að skilja það almenni­lega.

Þau voru bæði í fram­halds­námi þegar þau kynnt­ust, hún nítján ára, en pabbi var nokkrum árum eldri og var í háskóla. Vinkona mömmu og skóla­systir kynnti þau, mig minnir að kærast­inn hennar hafi kann­ast við pabba, og þar sem bæði voru á lausu þótti alveg til­valið að reyna að koma þeim saman.

Mér skilst að mamma hafi nán­ast verið farin að örvænta, þrátt fyrir að vera svona ung, en jafn­öldrur hennar, systur, vin­konur og skóla­systur, voru nán­ast allar gengnar út og líka systk­ini hennar, meira að segja yngsta systirin, sautján að verða átján ára.

Fjölskylda verður til

Þegar ég kom í heim­inn hafði mamma lokið sínu námi en pabbi átti rúmt ár eftir. Þau voru farin að búa saman í lít­illi íbúð við Grett­is­götu. Amma bjó þar skammt frá og hún pass­aði mig þegar mamma fór að vinna. Það þótti varla við hæfi á þessum tíma, skilst mér, að ung móðir og eig­in­kona ynni úti en mamma kærði sig koll­ótta. Þau pabbi þurftu pen­inga til heim­il­is­ins og mömmu fannst sjálf­sagt að nýta menntun sína. Þótt þau hefðu viljað flytja til ömmu og spara þannig leigu, eins og tíðk­að­ist, var ekk­ert pláss þar, tvö af systk­inum mömmu bjuggu þar með mökum sínum og börnum. Amma bjó í rúm­góðri íbúð og var sátt við að hafa börn sín inni á sér og sagði að allt gengi snurðu­laust því allir hjálp­uð­ust að við heim­il­is­verkin.

Ekki löngu eftir útskrift pabba fluttum við fjöl­skyldan út á land þar sem hann fékk góða vinnu en mamma varð heima­vinn­andi. Hún var mynd­ar­leg hús­móðir, hélt öllu hreinu, bak­aði reglu­lega og eld­aði tvær heitar mál­tíðir á dag en pabbi kom alltaf heim í hádeg­inu til að borða. Fljót­lega varð mamma ólétt aftur og allt var í sóm­anum, um tíma.

Mamma átti ekk­ert bak­land þarna, hús­móðir á lands­byggð­inni með mann og barn og þekkti engan. Bærinn var reyndar frekar í stærri kant­inum en mér skilst að mamma hafi haldið sér til hlés og ekki viljað hleypa að sér „vin­konum“ af ótta við að fá inn á sig leið­in­legar „slúð­ur­kerl­ingar“ sem erfitt yrði að losna við. Þannig kerl­ingar þoldi hún aldrei.

Ég var orðin þriggja ára þegar systir mín fædd­ist. Þegar hún var árs­gömul veikt­ist hún og þurfti að liggja á sjúkra­húsi um tíma. Þá var mamma komin nokkra mán­uði á leið að yngsta barn­inu sem átti að verða strákur, hún og pabbi voru meira að segja búin að ákveða nafnið á hann …

Á þessum tíma máttu for­eldrar aðeins heim­sækja börn sín á spít­ala á vissum tímum og ekk­ert þess á milli. Það fór ekki vel í mömmu sem að auki leið illa á með­göng­unni. Hún hreytti ónotum í pabba og var í litlu jafn­vægi. Það mátti ekk­ert koma upp á þá hringdi hún í pabba í vinn­una. Hann kom allaf heim og reyndi að hressa mömmu við sem þá var kannski hágrát­andi yfir köku sem hafði fallið.

Sífellt pirruð

Pirr­ing­ur­inn út í hlut­skipti sitt og lífið almennt jókst jafnt og þétt. Ég man meira að segja eftir því að hún garg­aði brjáluð á pabba þegar hún átt­aði sig á því að hún væri orðin ólétt í þriðja sinn og það nán­ast strax á eftir öðru barn­inu. Hún var nán­ast óð af reiði út í hann og bara lífið almennt.

Þriðja og yngsta dóttirin var rólegt og gott barn sem hefur senni­lega bjargað geð­heilsu mömmu.

Mamma fann upp á ýmsu skrítnu til að svekkja pabba, sem að hennar mati var orð­inn upp­spretta alls ills í lífi hennar. Eitt sinn, rétt áður en hann kom heim í hádeg­is­mat, lét hún okkur syst­urnar, þær yngri voru þá í kringum þriggja og fjög­urra ára, standa hlið við hlið og til­kynna honum þegar hann kom inn að við værum svangar. Við vorum ekki fátæk og ég var aldrei svöng, bara skrítið upp­á­tæki. Ég man ekki hvernig pabbi tók þessu, hann var ein­stak­lega þol­in­móður en fannst eflaust oft nóg um alla þessa drama­tík. Hann gerði allt sem hann gat fyrir mömmu nema hann neit­aði að leggja á okkur hendur. Hún reyndi stundum að hóta okkur systrum að hún ætl­aði að láta pabba flengja okkur ef við yrðum ekki þægar. Hún var alveg ein­fær um það sjálf og þurfti ekki að bæta við svona hótun.

Lífið getur ekki hafa verið skemmti­legt hjá for­eldrum mínum. Sífellt nagg og rifr­ildi, pabbi reifst alveg við mömmu en kaus að gera það eftir að við vorum sofn­aðar. Þau voru hreint ekki ham­ingju­söm.

„Það mátti ekk­ert koma upp á þá hringdi hún í pabba í vinn­una. Hann kom alltaf heim og reyndi að hressa mömmu við sem þá var kannski hágrát­andi yfir köku sem hafði fallið.“

Mikil breyting

Ég var orðin ell­efu ára þegar þau loks­ins skildu. Við kviðum því að verða eftir hjá mömmu en annað var ekki í boði. Pabbi flutti til Reykja­víkur og um það bil ári seinna fór hann að búa með annarri konu. Mamma byrj­aði að vinna og það virt­ist eiga mjög vel við hana. Hún var mun oftar í góðu skapi og sýndi af sér nýjar og betri hliðar.

Vissu­lega vorum við systur orðnar eldri og með­færi­legri á þessum tíma og gátum gert gagn. Við vorum líka kúg­aðar og hálf­hræddar við mömmu og skaps­muni hennar. En á meðan við héldum heim­il­inu sæmi­lega fínu og eld­uðum stundum mat, gátum við yfir­leitt treyst á að mamma yrði í góðu skapi. Hún gat rokið upp í reiði yfir smá­munum og var þá oft laus höndin en við fundum að henni var farið að líða betur.

Við systur fluttum allar snemma að heiman. Ég var sextán ára þegar ég flutti til Reykja­víkur, leigði mér her­bergi og fór í mennta­skóla. Pabbi aðstoð­aði mig örlítið fjár­hags­lega allra fyrst en hann var nýfar­inn að drekka á þessum tíma og drykkjan átti bara eftir að aukast með tím­anum. Ég vann með skól­anum svo allt gekk upp hjá mér.

Mamma og systur mínar fluttu til Reykja­víkur nokkru seinna og mamma fékk gott starf. Systur mínar bjuggu við tals­vert frjáls­ræði og á meðan þær gengu vel um heim­ilið og gerðu hús­verkin var sam­komu­lagið gott.

Nokkrum árum seinna ákváðum við syst­urnar að leigja saman íbúð sem var ákaf­lega skemmti­legt. Mamma var ekki ósátt við það. Hún var í raun meira eins og vin­kona okkar en móðir eftir að við elt­umst og senni­lega dauð­fegin að losna við okkur. Hún hvatti okkur aldrei til að fara í fram­halds­nám, þótt sjálf hefði hún menntað sig meira en margar konur á hennar reki, senni­lega af því að það hefði jafn­vel þýtt að hún sæti lengur uppi með okkur og þyrfti að hjálpa okkur fjár­hags­lega. Þegar hún síðan eign­að­ist kærasta átti hann hug hennar allan.

Við unnum alltaf með skól­anum en tókum stundum hlé frá námi og fórum í fulla vinnu um tíma. Allar kláruðum við háskóla­próf en það tók alveg tím­ann sinn. Á leið­inni þangað giftum við okkur, eign­uð­umst börn og ein okkar skildi.

„Mamma byrj­aði að vinna og það virt­ist eiga mjög vel við hana. Hún var mun oftar í góðu skapi og sýndi af sér nýjar og betri hliðar.“

Áttu aldrei séns saman

Pabbi var mjög hrif­inn af mennta­gleði okkar en hann gerði þó fátt til að styðja okkur, hann var far­inn að búa með þriðju kon­unni og þau voru nán­ast alltaf drukkin. Hann dó fyrir nokkrum árum en mamma er hress og nýtur eft­ir­launa­ár­anna með kross­gátu­blað í annarri og kaffi­bolla í hinni. Hún varð betri og skemmti­legri mamma með árunum, en alls ekki góð amma, enda leið­ast henni börn. Hún til­kynnti okkur systrum þegar við fórum að fjölga okkur að hún væri búin með allt sem héti barna­upp­eldi og því pass­aði hún aldrei fyrir okkur. Það er í raun hennar missir því hún hefur aldrei náð nánum tengslum við þau eins og föð­uraf­arnir og -ömm­urnar.

Ljúf­mennið hann pabbi átti ein­hvern veg­inn aldrei séns í líf­inu, hvorki í hjóna­bandi með mömmu né eftir skiln­að­inn við hana. Hann þótti afar efni­legur ungur maður en náði sér aldrei á strik vegna alkó­hól­isma.

Mamma fædd­ist á röngum tíma, hún fór ekki að blómstra fyrr en hún var orðin frí og frjáls og gat farið að láta til sín taka á öðrum vett­vangi en heim­il­inu. Hún stóð sig frá­bær­lega í starfi, var vin­sæl og virt. Hún hefði aldrei átt að gifta sig og eign­ast börn, það var ekk­ert fyrir hana en þá hefðum við systur aldrei orðið til.

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni. Í hverri viku birt­ast spenn­andi lífs­reynslu­sögur. Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í áskrift.

Fylgstu með Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Facebook. Lífs­reynslu­sögur er hlað­varp þar sem blaða­konan Guðrún Óla Jóns­dóttir les áhuga­verðar lífs­reynslu­sögur úr Vikunni. Í hverjum þætti eru fimm sögur lesnar. Þætt­irnir koma inn á Spotify og Storytel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu