Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ekkjan Dagný ræðir manninn sinn, ástina, dauðann og sorgina: „Var allt í þoku eftir að hann dó“

Ekkjan Dagný ræðir manninn sinn, ástina, dauðann og sorgina: „Var allt í þoku eftir að hann dó“
Dagný missti mann­inn sinn. Mynd: Róbert Reynisson

Dagný Björk Pét­urs­dóttir er ekkja. Hún missti mann sinn, Gísla Pálsson, í byrjun þessa árs. Banamein hans var krabba­mein. Dagný Björk talar hér um mann­inn sinn, ást­ina, krabba­meinið, dauð­ann og sorg­ina.

Tónabær snemma á 8. ára­tugnum. Hún var 14. Hann 15. Þau döns­uðu saman við lagið „You Ain´t seen not­hing yet“ með hljóm­sveit­inni Bachman Turner Over­drive.

„Það var svo gaman að dansa við hann,“ segir Dagný Björk Pét­urs­dóttir með áherslu. „Það var æðis­lega gaman. Hann var líka með svo flott hár.“

„Hann“ var Gísli Pálsson.

Þau voru ekk­ert skotin í hvort öðru. Ekki þá.

Árin liðu. Áratugir. Leiðir þeirra flétt­uð­ust af og til saman eins og fingur elskenda.

„Leiðir okkar hafa legið saman á hinum ólík­leg­ustu stöðum. Það voru margir þættir sem tengdu okkur alltaf saman í gegnum tíð­ina án þess að við vissum að leiðir okkar ættu eftir að liggja svona saman.“

Þau bjuggu meira að segja um tíma í húsum sem stóðu hlið við hlið og börnin þeirra voru saman í skóla. Þau kynnt­ust svo fyrir alvöru fyrir 16 árum síðan og urðu vinir. Góðir vinir. Þau voru þá bæði ein­hleyp. Úr því varð svo ást­ar­sam­band árið 2006 og síðar hjóna­band. Gísli hafði kvænst áður. Hún hafði verið í sam­búð. Hann átti þrjú börn. Hún tvö.

„Þegar ég hitti hann svo og kynnt­ist honum vel þá vorum við bæðin orðin full­orðin og ég hugs­aði með mér að hann ætti eftir að verða vinur minn alla ævi. Það var mjög sér­stök til­finn­ing. Þetta var ekki „ást við fyrstu sýn,“ segir Dagný Björk því þetta var vissu­lega ekki í fyrsta sinn sem hún hitti hann, „heldur „vá, við eigum eftir að verða vinir alla ævi“. Við vörðum löngum tíma í það að vera vinir áður en við hófum sam­band okkar.“

Dagný missti mann­inn sinn.

Voru þau sálu­fé­lagar?

„Já, ég myndi segja það.“

Dagný Björk er spurð hvað hafi heillað hana við Gísla.

„Hann var mjög skemmti­legur maður, mjög fynd­inn og hann var þessi klettur. Hann elskaði án skil­yrða; það var skil­yrð­is­laus ást. Við gátum verið við sjálf og ræktað hvort annað; við rækt­uðum sam­band okkar og hjóna­band. Við vorum hjón dags dag­lega en ef við fórum til útlanda eða í helg­ar­ferð þá vorum við kærustupar.“

Þau voru bæði róm­an­tísk.

„Við buðum hvort öðru í óvissu­ferðir og fórum stundum alla leið frá Kópavogi þar sem við bjuggum um tíma og til Reykja­víkur og gistum þar yfir helgi.“

Ég trúi því að við Gísli eigum eftir að hitt­ast aftur og mynda okkur fram­halds­sögu hvort sem það er sem hjón eða vinir. Ég trúi því að Gísli sé á góðum stað.

Hlátur.

„Við gerðum þetta reglu­lega, vorum eins og ferða­menn í höf­uð­borg­inni. Svo kom það stundum fyrir að ég færði honum rósir og og hann mér sama dag­inn. Þannig að við gátum verið svo­lítið fyndin með þetta.“

Hún hélt á stórri rós á brúð­kaups­dag­inn 30. júní fyrir 14 árum síðan – en það var fyrir algera til­viljun að við­talið var tekið á brúð­kaups­dag­inn þeirra.

„Við giftum okkur í Kópa­vogs­kirkju. Ég var í bleikum kjól. Brúð­ar­vönd­ur­inn var ein stór rós sem var hand­saumuð úr tug lif­andi rósa. Svo var veisla strax á eftir. Það var fjör, góður matur og var dansað inn í sum­arnótt­ina. Veðrið var ynd­is­legt.“

Falleg lög hljóm­uðu í veils­unni svo sem Memory úr Cats og Lagið She.

She may be the face I can’t forget

The trace of plea­sure or regret

May be my trea­sure or the price I have to pay

She may be the song that sum­mer sings

Maybe the chill that autumn brings

Maybe a hund­red differ­ent things

Within the mea­sure of a day

„Við fórum heim til okkar eftir veisl­una. Vinkonur mínar voru búnar að skreyta allt með rósa­blöðum og amma hafði gefið okkur sæng­ur­föt í brúð­ar­gjöf. Þetta var allt eins og það átti að vera.“

Og ástin blómstr­aði.

„Auðvitað eru öll sam­bönd upp og niður en minn­ingin um okkur Gísla er full­komin. Ég staldra ekki við eitt­hvað sem fór miður því ég man það ekki einu sinni.“

Krabbamein í hrygg

Svo dró ský fyrir sólu.

Gísli greind­ist með blöðru­hálskrabba­mein árið 2016. Hann fór í aðgerðir, geisla- og sprautu­með­ferðir og var tal­inn hafa kom­ist yfir krabba­meinið tveimur árum síðar. Hann hafði unnið sem smiður í ára­tugi en vegna veik­ind­anna skipti hann um vinnu.

Hjónin voru á ferða­lagi í fyrra­sumar þegar Gísli fór að tala um að honum væri svo illt í bak­inu.

Dagar og vikur liðu. Gísli fór til læknis síðar um sum­arið og var honum sagt að fara í rækt­ina og fara þar á göngu­bretti og ná þessu úr sér. Hann fór stuttu síðar til ann­ars læknis sem ráð­lagði honum að fara til sjúkra­þjálf­ara.

„Hann var orð­inn svo kval­inn í ágúst að það var ekk­ert eðli­legt. Ég hringdi á lækna­vakt­ina og vildi ynd­is­legur hjúkr­un­ar­fræð­ingur á vakt þar, Ragna, að sjúkra­bíll kæmi heim og kæmi Gísla á sjúkraús.“

Gísli var settur í rann­sóknir. Nið­ur­staðan: Krabba­mein í hrygg. Gísli hafði farið í eft­ir­lit í mars og voru öll gildi eðli­leg.

Við tóku með­ferðir og aðgerðir næstu mán­uði.

„Hann var svo æðru­laus yfir veik­indum sínum. Við vorum alger­lega í umsjón Heru líkn­ar­þjón­ustu sem sá um alla heima­þjón­ustu. Þar vinnur kona sem heitir Lilja sem var gull­moli.

Gísli náði jólum og ára­mótum með okkur en svo var lungna­bólga búin að yfir­taka allt saman. Þegar Gísli fór á spít­al­ann 3. jan­úar þá var mér réttur bæk­ling­ur­inn „Að leið­ar­lokum“. Það var rosa­legt sjokk fyrir mig.“

Sorg er ekki ferli sem á að vera búið eftir mánuð eða fimm ár. Sorg er það sem maður lærir svo að lifa með.

Gísli komst ekki strax inn á krabba­meins­deild vegna pláss­leysis heldur lá hann á bráða­mót­töku í tvo sól­ar­hringa. Hann komst svo inn á krabba­meins­deild­ina tæpum sól­ar­hring áður en hann lést þar aðfara­nótt 9. jan­úar.“

Útför Gísla var gerð frá Linda­kirkju. Kistu­lagn­ing fór fram sam­dæg­urs. Gísli var í spari­föt­unum og lá á kodda­veri sem Dagný Björk var búin að láta útbúa þar sem barna­börnin fimm voru búin að skrá niður minn­ing­ar­orð um afa sinn.

„Þau fá svo öll alveg eins kodda­veri í jóla­gjöf. Gísli hélt upp á íþrótta­fé­lagið Víking og voru allir kistu­ber­arnir með svartar grímur með Vík­ings­merk­inu sem vinur okkar, Raggi, hafði látið sér detta í hug.

Jarð­ar­förin var ofsa­lega fal­leg og söng sama söng­kona og hafði sungið í brúð­kaup­inu okkar.“

Lagið „She“ var spilað í útför­inni eins og í brúð­kaup­inu.

Me, I’ll take her laughter her tears

And make them all my souvenirs

And where she goes I’ve got to be

The mean­ing of my life is

She, she

Oh, she

Valdimar söng lög eftir Bubba Morthens. Þá var sung­inn sálm­ur­inn Hærra minn guð til þín.

Hærra, minn Guð, til þín,

Hærra til þín,

Enda þótt öll sé kross

Upp­hefðin mín.

Hljóma skal harpan mín,

Hærra, minn Guð, til þín,

Hærra til þín.

Þegar ég þurfti að gráta og var sorg­mædd þá var ég vön að fara inn á gestasal­ernið, bíta í hand­klæði og gráta.

Kistan var í við­ar­lit og kistu­skreyt­ingin í fána­lit­unum.

„Ég afþakk­aði kransa og blóm en ég vildi frekar að Hera og Ljósið myndi njóta.“

Bálför Gísla fór síðan fram hálfum mán­uði síðar og duft­ker hans sett í Kópa­vogs­kirkju­garð.

„Gísli var smiður og með ein­staka smiðs­hönd. Hann var alltaf að koma við við og horfa á kvist­ina. Krossinn sem ég valdi á leiðið er í sama lit og kistan og sum­ar­bú­stað­ur­inn okkar sem hann smíð­aði.“

Fyrir afmælið hans 28. maí smíð­aði Dagný Björk síðan ramma utan um leiðið hans úr við úr sum­ar­bú­staðnum og mál­aði með lit bústað­ar­ins. Hún fór síðan upp í sum­ar­bú­stað og fyllti þar nokkrar hjá fötu af rauða­möl sem hún setti svo á leiðið.

„Leiðið hans er mjög sér­stakt.“

Sorgin

Dagný Björk fór að upp­lifa sorg­ina þegar Gísli greind­ist fyrst árið 2016.

„Ég gerði þá þann feil að ég leit­aði mér ekki aðstoðar. Gísli fór sjálfur í gegnum þetta af æðru­leysi; að þetta yrði allt í lagi. Við vorum svo örugg um að þetta myndi ganga upp. Þegar ég þurfti að gráta og var sorg­mædd þá var ég vön að fara inn á gestasal­ernið, bíta í hand­klæði og gráta.“

Þögn.

„Það var það sem ég gerði á þeim tíma sem var rosa­legur feill. Það á maður ekki að gera. Ég fór í einn tíma til sál­fræð­ings á þessum tíma og hann gerði þau mis­tök að rétta mér bók sem heitir „Maka­laust líf“ og sagði mér að lesa hana. Þess vegna fór ég ekki aftur til hans vegna þess að ég var ekki komin á þann stað. Þetta var eins og blaut tuska í and­litið af því að við Gísli ætl­uðum að sigra og við vorum örugg á því að við myndum sigra. Við áttum svo gott líf. Þegar Gísli grein­ist síðan í ágúst 2020 var krabba­meinið komið um allt og var talið að blöðru­hálskrabba­meinið hefði stökk­breyst og var kallað smá­frumu­krabba­mein.“

Dagný Björk fékk að minnka við sig vinnu svo hún gæti verið meira til staðar fyrir Gísla og hún fór í við­tal hjá Ljósinu þar sem hún gerði sér grein fyrir því að hún væri byrjuð að syrgja mann sem væri ennþá á lífi.

„Eftir dauðs­fall Gísla fór ég að fá alls kyns hræðsluköst og ég held ég hafi farið allt í einu að upp­lifa mik­inn kvíða sem fór að þró­ast með mér. Ég vann svo­lítið með það og við sjálf áttum ofsa­lega heið­ar­leg sam­skipti og töl­uðum mikið saman. Gísli fór í sál­fræði­við­töl sem gerðu mikið fyrir hann.“

Dagný missti mann­inn sinn.

Og hjónin nutu lífs­ins og rækt­uðu ást­ina.

„Við lifðum bara fyrir stund­ina. Við fórum í „picknick“ með hund­inn á sunnu­degi. Við fórum upp í sum­ar­bú­stað um helgi. Við keyptum okkur eðal­steikur og höfðum það huggu­legt og bara héldum áfram við þessa rækt okkar sem hjón. Sem vin­irnir. Sem sálu­fé­lag­arnir. Við slepptum aldrei tak­inu þar.“

Gísli var hættur að geta gengið.

„Maðurinn minn gat ekki gengið nema með háa göngu­grind og var ofboðs­lega kval­inn allan sól­ar­hring­inn. Það var aldrei frí. Er þetta það sem maður vill ein­hverjum sem maður elskar? Eins og það er sárt að segja það þá fór ég til hans, lagð­ist hjá honum og sagði að ef hann þyrfti að fara…“

Þögn.

Hún grætur.

„…þá yrði hann að fá að fara. Og það var rosa­legur sárs­auki. Ég skil ekki enn þann dag í dag hvernig ég gat þetta.“

Þögn. Löng þögn.

Hún grætur.

„Það er mjög erfitt að rifja þetta upp. Við erum bæði mjög trúuð og rækt­uðum okkar trú. Og styrkur okkar var þar. Við eigum mjög góða fjöl­skyldu, vini og nágranna og það var alltaf hátíð hjá okkur. Það voru allir að hugsa um okkur og færa okkur mat, blóm og kerti, viðra fyrir okkur hund­inn og bjóða fram aðstoð.“

Hann var mjög skemmti­legur maður, mjög fynd­inn og hann var þessi klettur. Hann elskaði án skil­yrða; það var skil­yrð­is­laus ást.

Jólin.

Heims um ból, helg eru jól,

signuð mær son Guðs ól,

frelsun mann­anna, frels­is­ins lind,

frum­glæði ljóss­ins, en gjörvöll mann­kind

mein­vill í myrkr­unum lá.

„Ég var að stúss­ast í matnum á aðfanga­dag og Gísli lá í sóf­anum. Þá sagði hann mér allt í einu að koma; hann sagð­ist þurfa að tala við mig. Ég ætl­aði að halda á aus­unni eða písk­inum eða hvað sem ég var með en hann sagði mér að sleppa öllu, slökkva á elda­vél­inni og koma. Hann var strangur. Þá var hann í raun­inni að kveðja mig þó ég hafi ekki gert mér grein fyrir því þá. Hann tal­aði um ást­ina og allt sem við höfðum upp­lifað og hvað það hafði gefið honum mikið. Þetta var hans kveðja.“

Hjónin fóru upp í sum­ar­bú­stað á milli jóla og nýars og þar sem Gísli var orð­inn svo veikur þá hringdi Dagný Björk í 112 um miðja nótt og var Gísli sóttur og farið með hann á sjúkra­hús í sjúkra­bíl. Og hann dó nokkrum dögum síðar.

„Það var allt í þoku eftir að hann dó.“

Dagný Björk seg­ist vera viss um að dauð­inn sé ekki end­an­legur.

„Ég trúi því að við Gísli eigum eftir að hitt­ast aftur og mynda okkur fram­halds­sögu hvort sem það er sem hjón eða vinir. Ég trúi því að Gísli sé á góðum stað. Ég sagði barna­börn­unum einu sinni í sum­ar­bú­staðnum að velja sér stjörnu og að þau gætu sagt að það væri stjarnan hans afa. Þau eru líka að ganga í gegnum rosa­lega sorg. Ég er ekk­ert að reyna að fegra. Þau vita að ég græt og þau hafa séð mig gráta.“

Krassaði

Dóttir Dagnýjar Bjarkar og barna­barn dvöldu hjá henni í tölu­verðan tíma eftir and­lát Gísla en hún fór þó strax að vinna eftir jarð­ar­för­ina.

„Ég var svo mik­ill jaxl. Ég ætl­aði alltaf að kom­ast áfram á hörkunni. Ég hélt ég myndi redda mér og það voru margir hissa á því hvað ég væri dug­leg. Það end­aði með því að ég sat í bílnum eitt kvöldið og hafði misst mátt í öllum lík­am­anum. Ég gat ekki slökkt á bílnum en ég hafði haft vit á því rétt áður að hringja í son minn og vin­konu og láta þau vita hvernig mér liði. Ég sagði að mér liði mjög ein­kenni­lega. Þau hringdu á 112.“

Hún gat ekki talað þegar sjúkra­bíll kom og var hún flutt á sjúkra­hús.

Ég hélt ég myndi redda mér og það voru margir hissa á því hvað ég væri dug­leg. Það end­aði með því að ég sat í bílnum eitt kvöldið og hafði misst mátt í öllum lík­am­anum.

Tauga­á­fall?

„Já og nei. Ég hef ekki fengið skil­grein­ingu á þessu en ein­hvers staðar segja lík­ami og sál „stopp“. Hingað og ekki lengra. Nú yrði ég að snúa við blað­inu sem ég gerði og fór í veik­inda­leyfi og er að byggja mig upp. Ég hef und­an­farna mán­uði mætt í vinn­una einu sinni í viku. Það þarf í fyrsta lagi að hlusta á sjálfan sig, hlusta á hjartað sitt, lík­ama sinn og sál­ina sína. Þetta er nátt­úr­lega bara ein teng­ing. Sorg er til­finn­ing og hún verður að fá að koma. Það er ekki hægt að ýta henni í burtu og segj­ast ætla að kom­ast áfram á hnef­anum. Það er ekki þannig.

Svo var ég svo lánsöm að Lilja hjá Heru kom til mín eftir svo­lít­inn tíma og vís­aði mér leið­ina niður í Krabba­meins­fé­lag og er ég búin að vera þar hjá Sigrúnu, hjúkr­un­ar­fræð­ingi/ráð­gjafa, og einnig hjá sál­fræð­ingi og það er mjög gott. Ég náði í öll bjarg­ráð sem ég gat. Ég fór í við­tal hjá Sorg­ar­mið­stöð­inni og hitti þar konu sem hafði gengið í gegnum það sama og ég. Það er svo­lítið gott að spegla sig í öðrum með sömu reynslu. Og ég fór á nám­skeiðið „Húmor er dauð­ans alvara“ hjá Eddu Björg­vins hjá End­ur­menntun Háskóla Íslands og var seinni hlut­inn af því „jákvæð sál­fræði“. Ég byrj­aði að segja Eddu að ég væri ekkja, að ég væri að leita að húmornum í sjálfri mér og ég væri bara að hjálpa sjálfri mér. Þetta var bara alveg frá­bært nám­skeið.

Ég leigði mér raf­magns­hjól til að fara út og hreyfa mig, ég dreif mig í vatns­leik­fimi einu sinni í viku og þegar ég fer að gráta þar þá sér það eng­inn vegna þess að þá skvetti ég bara sund­laug­ar­vatni framan í mig. Ég má gráta og ég leyfi mér að gráta. Og maður grætur alls staðar. Ég græt heima. Ég græt í bílnum. Ég græt stundum þegar ég er úti að labba með hund­inn. Það má gráta. Og það má syrgja. Maður verður að leyfa þessu að koma og ekki bægja til­finn­ing­unum frá. Það er stórt lyk­il­at­riði.

Hann tal­aði um ást­ina og allt sem við höfðum upp­lifað og hvað það hafði gefið honum mikið. Þetta var hans kveðja.

Allt sem ég geri, geri ég á mínum hraða. Það er eng­inn sem segir hvað ég eigi að gera eða rekur mig áfram. Ég verð bara að læra, þykja vænt um sjálfa mig, finna þarfir mínar og gera hlut­ina á mínum hraða. Sorg er ekki ferli sem á að vera búið eftir mánuð eða fimm ár. Sorg er það sem maður lærir svo að lifa með.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu