Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég hef oft verið spurð hvort ég sé með krabbamein“

„Ég hef oft verið spurð hvort ég sé með krabbamein“
Ragna Sólveig Þórð­ar­dóttir fékk sjálfsof­næmi og missti hárið.

„Ég hef alltaf reynt að taka þessu eins og það er og vekja líka athygli á þessum sjúk­dómi af því að þetta er miklu algeng­ara en maður gerir sér grein fyrir.“

Ragna Sólveig Þórð­ar­dóttir er í Helg­ar­við­tali Mannlífs. Ragna er með sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm­inn Alopecia sem veldur bletta­skalla eða jafn­vel algjöru hár­losi. Hún fór að fá bletta­skalla þegar hún gekk með sitt annað barn í hitti­fyrra, hárið var svo rakað af henni og hún seg­ist ekki gera sér vonir um að fá það aftur. „Þetta er krefj­andi og oft saknar maður þess að vera með hár. En það er ekk­ert við því að gera.“

Ragna segir fáa þekkja þennan sjúk­dóm og hefur hún verið spurð að því hvort hún sé með krabba­mein.

„Ég þurfti svo mikið að vera að útskýra fyrir vinum og fjöl­skyldu. Enginn vissi hvað var í gangi eða eng­inn skildi þetta og maður var alltaf settur í stöðu eins og það væri eitt­hvað að manni sem er frekar leið­in­legt. Það þekkja fáir þennan sjúk­dóm og ég þekkti hann ekki sjálf. Ég hef oft verið spurð hvort ég sé með krabba­mein og ég sé hvernig fólk horfir á mig því ég geng ekki með hár­kollur en er stundum með klút.“

Ragna var árum saman með þykkt og sítt, rautt hár. „Ég hafði aldrei nokkurn tím­ann svo mikið sem litað það.“

Áður var Ragna með þykkt og sítt, rautt hár, sem hún segir aldrei hafa svo mikið sem litað. Því var það erfitt skref að stíga að raka hárið af.

„Maðurinn minn, Ingvar Þór, tók eftir blett­unum og hann var far­inn að spyrja hvort mér myndi ekki líða betur ef ég myndi raka af mér hárið. Ég var farin að fela blett­ina svo mikið og mér fannst það vera erfitt. Ég var alltaf með­vituð um hvort það væri ein­hver fyrir aftan mig eða hvort ein­hver myndi taka eftir þessu. Hárið á mér var orðið svo rosa­lega þunnt. Svo kom ég heim einn dag­inn í maí og hugs­aði mér mér hvort það yrði ekki auð­veld­ara ef hárið væri rakað af mér. Þar sem ég gat ekki prófað neinar með­ferðir þá sá ég ekk­ert annað í stöð­unni en að taka það litla sem var eftir.

Það var svo mjög til­finn­inga­þrungin stund þegar mað­ur­inn minn rak­aði af mér allt hárið og í fram­hald­inu rak­aði hann sig og son okkar líka.

Ég vand­ist því samt fljótt að vera sköll­ótt. Mér fannst svo eig­in­lega vera erf­ið­ara að útskýra þetta fyrir fólki heldur en að láta raka hárið af en bæði mað­ur­inn minn og eldri strák­ur­inn voru aldrei spurðir út í neitt í sam­bandi við að vera sköll­óttir eftir að hafa rakað á sér hárið líka. Bara ég. Mér finnst ég líta vel út og mér líður vel  en mér finnst það vera sorg­legt hvernig fólk leyfir sér að tjá sig við mig um þetta án þess að ég nefni þetta neitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi