Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Björn lögregluvarðstjóri jarðsunginn: „Stóri-Björn var höfðingi í lund og hvers manns hugljúfi“

Björn lögregluvarðstjóri jarðsunginn: „Stóri-Björn var höfðingi í lund og hvers manns hugljúfi“

Björn Sig­urðs­son fyrr­ver­andi varð­stjóri, fæddur á Möðru­völl­um í Hörgár­dal 9. maí 1934 og  lést þann 5. júlí síð­ast lið­inn í Kópavogi.  For­eldrar hans voru þau séra Sigurður Stef­áns­son, pró­fastur og vígslu­bisk­up á Möðru­völl­um í Hörgár­dal og frú María Ágústs­dóttir, cand.phil. Eig­in­kona Björns var Krist­ín Bögeskov, djákni og var hún með BS í ís­lensku og dönsku, f. í Reykja­vík, 17. ágúst 1935 og dáin 15. ágúst 2003. Hann lætur eftir sig fimm upp­komin börn.

Björn var for­maður Lög­reglu­fé­lags Reykja­vík­ur og for­maður Hesta­manna­fé­lags­ins Gusts. Hann gegndi ýms­um trún­aðar­störf­um, fé­lags­störf­um og skrif­aði hann nokkr­ar grein­ar í Morg­un­blaðið og smá­sög­ur.

„Þegar hinir merku skák­menn, Fischer og Spassky, voru að kljást við flotta borðið í Laug­ar­dals­höll­inni 1972 tók pabbi vakt­ir þar, flest­ir lög­reglu­menn með mik­inn áhuga á skák og pabbi auð­vitað hinn ánægð­asti að fá vakt­ir þarna. Hon­um datt þá í hug að leyfa mér að koma við á milli skáka, gekk með mér upp að borð­inu, bauð mér sæti og við tók­um nokkra leiki. Þarna er hann klár­lega að gæta að því að dreng­ur­inn fengi snert af sög­unni í raun­tíma og þessa aðferð not­aði ég sjálf­ur á mín börn ef færi gafst við upp­eldi þeirra. Ekki ætla ég að fara yfir fleiri atriði en vona að þess­ar stuttu lýs­ing­ar nái að sýna hvaða hug ég bar til pabba, en svona vil ég minn­ast hans og þegar ég sat við bana­beð hans fyrr í mán­uð­inum voru það akkúrat slík­ir smá­punkt­ar úr æsku sem höfðu mest áhrif á mig og köll­uðu fram söknuð“.

Björn Ágúst Björns­son.

„Óvænt rekst ég á að hann Stóri-Björn sé all­ur. Björn var stór í sniðum hvar sem á hann var litið. Höfðingi í lund og hvers manns hug­ljúfi að mér fannst alla tíð. Við urðum sam­skipa til Nor­egs í skóg­rækt­ar­ferð 1952. Hann vakti at­hygli mína fyr­ir það að vera sjó­veik­ari en aðrir menn báðar leiðir yfir hafið en þá voru ekki flug­ferðir al­geng­ar hjá alþýðu. Við fór­um utan með mis­sjónera­skip­inu Brandi V sem var þurrt skip og Guðræki­legt og lítið fjör um borð. En heim fór­um við Heklunni þar sem allt flaut í lystisemd­um þessa heims og ný­mæla fyr­ir ung­ling­inn. Okk­ar kynni hóf­ust hins veg­ar ekki fyrr en ég fór að brjót­ast í að byggja yfir bólgn­andi fjöl­skyld­una. Eft­ir ár­ang­urs­laus­ar lóð­ar­um­sóknir í fæð­ing­ar­bæ mín­um Reykja­vík end­aði ég með að hitta mann í Kópa­vogi sem vant­aði að selja hús­helm­ing sem hann ætl­aði að byggja á lóð með minka­búi á við Hlíðar­veg. Þar var kom­inn sá sjó­veiki aft­ur. Gamli Sveinn út­veg­aði mér steypu­út­tekt og með því gerð­ust kaup­in. Björn fór að slá upp. En hann vann eins og marg­ir lög­reglu­þjón­ar við mótarifr­ildi á frí­vökt­um og var því aldrei langt und­an landi í bygg­inga­brans­an­um alla tíð. Bæði byggði sjálf­ur og vann með öðrum. Húsið reis og inn komst ég á þrí­tugsaf­mæl­inu fyr­ir krafta­verk og hjálp tengda­fólks og vina. Þar bjugg­um við fjöl­skyld­an þar til að húsið sprakk utan af okk­ur. Í all­an þenn­an tíma bjugg­um við á neðri hæð hjá Stóra-Birni og Krist­ínu Bögeskov konu hans og fjór­um börn­um. Aldrei bar skugg­ann á í þessu sam­býli og var þó tals­verður sam­gang­ur milli hæð­anna. Björn var for­maður í Gusti og kom okk­ur til að byggja hest­hús með fé­lög­um sem við átt­um lengi. Björn hafði mik­inn húm­or og stund­um laumu­leg­an en kerskni­laus­an. Tók vel í nefið og kunni að njóta lífs­ins þegar svo bar und­ir. Stund­um kom bróðir hans sr. Ágúst í heim­sókn og fögn­uðu þeir hóg­lega góðum kynn­um. Elsti son­ur­inn Sig­urður lærði söðla­smíði og voru þeir feðgar með söðla­smíði Þor­vald­ar lengi vel í bíl­skúr­un­um á Hlíðar­veg­in­um þar sem ég fékk húsa­leig­una skil­vís­lega goldna í tveim­ur hnökk­um ár­lega. En börn­in okk­ar voru sum jafn­aldra og oft líf í tusk­un­um. En við hjón­in átt­um neðri hæð­ina í góðu sam­komu­lagi við hjón­in á efri hæð­inni lengi eft­ir þetta. Björn þekkti ara­grúa fólks og kunni manna best að um­gang­ast erf­ið­leika. Hann sagði mér sig yf­ir­leitt vilja fara einn til að fást við æst­an múg þar sem hon­um gengi þá bet­ur að tala fólk til en með óvan­inga sér við hlið. Bauð bjálf­un­um kannski í nefið til að byrja með. En ekki var víst heigl­um hent að tak­ast á við hann Stóra-Björn ef menn létu ekki segj­ast með góðu. En hann var friðar­ins maður fyrst og fremst þar til annað þraut. Erfiðast væri að skera niður börn.

Mér fannst ávallt birta þegar ég hitti Björn, hann var svo skemmti­leg­ur í við­ræðu og létt­ur í fasi. Seinni árin strjál­uð­ust kynn­in. Hann lenti í sorg með missi sinn­ar elsku­legu konu af slys­för­um og ég hef heyrt að heilsu hans hafi hrakað eft­ir það.

Minn­ing­in um þenn­an hug­ljúfa mann end­ist okk­ur sem þekktu hann. Traust­ur og hlýr með sam­úðar­stórt hjarta“.

Hall­dór Jóns­son.

Mannlíf vottar aðstand­endum inni­lega samúð. Blessuð sé minn­ing Björns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag