Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bára uppljóstari vill setjast á þing: „Ég er heppin að vera þekkt út af Klausturmálinu“

Bára uppljóstari vill setjast á þing: „Ég er heppin að vera þekkt út af Klausturmálinu“
Bára Hall­dórs­dóttir

Bára Hall­dórs­dóttir, aðgerðasinni og lista­kona sem vakti athygli í Klaust­ur­mál­inu svo­kall­aða þegar hún tók upp sam­töl þing­manna, hyggst gefa kost á sér fyrir Sós­í­alista­flokk­inn fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar í haust.

„Ég sá í fyrra í tengslum við Covid hve hættu­leg póli­tík er fólki í minni stöðu í raun og veru; ég sá hvernig vissar stofn­anir geta verið skað­legar að því leyti að fólk getur ekki séð raun­veru­leik­ann. Flestir sem eru veikir eins og ég,“ segir Bára sem er með sjálfsof­næmis- og gigt­ar­sjúk­dóm, „hafa hvergi hljóm­grunn nema í gegnum ein­hvers konar fjar­læg papp­írs­gögn ein­hvers staðar. Það er eng­inn í stjórn­málum sem hefur þessa reynslu. Þannig að þegar fólk er að búa til reglu­gerðir þá er oft sagt: „Hei, þið sem eruð í sam­tök­unum sem vitið allt um þetta endi­lega gefið álit ykkar á þessu eða hinu.“ Sá sem les svo álitið hefur ekki vit á því hve mik­il­vægt það er sem hann er með í hönd­unum. Ég hef til dæmis séð hvað það er gott fyrir borg­ar­stjórn­ina að hafa Sönnu þar inni sem hefur beina reynslu af fátækt sem ég þekki líka. Það sýnir mjög vel þörf­ina fyrir því að þeir sem hafa reynsl­una séu inn­an­borðs.“

Bára er spurð um draum sinn varð­andi stjórn­málin.

„Ef ég mætti ráða þá væri ég ekk­ert að fara í stjórn­mál yfir höfuð. Þetta er ekki kjörað­staða fyrir mann­eskju sem þarf að díla við sjúk­dóma. Ég hef orðið vitni að verstu hliðum þessa líka. Ég veit ekki einu sinni hvar ég er stödd á lista þannig að ég veit ekki einu sinni hvort ég sé í fram­boðs­sæti sem er nálægt ein­hverju þing­sæti. Ég vil bara vinna að þessum mál­efnum sem eru sterk­ust þarna; vinna að því að leið­rétta heil­brigðis-, vel­ferðar- og skóla­kerfið okkar hvort sem það er með því að vera hluti af hóp sem er að gera eitt­hvað eða ég sé ein­hvers staðar ann­ars staðar í því. Draum­ur­inn er að fá að vera tals­maður – sýna þeim sem ég þekki sem eru í minni stöðu fram á það að við getum tekið þátt.“

Það þarf aðeins að laga til

Segja má að Klaust­ur­málið hafi komið Báru á kortið og nú vill hún vinna á sama vinnu­stað og fólkið sem sat á næsta borði við hana á Klaust­ur­barnum.

„Mig langar að kom­ast í mál­efna­þróun á Alþingi vegna þess að ég held að það sé þörf á því að fólk af öllum stigum og gerðum taki ákvarð­anir þar. Ég held að mál­efni til dæmis öryrkja og eldra fólks komi ekki rétt út úr nefndum nema að þar vinni ein­stak­lingar sem tengj­ast þeim. Ég per­sónu­lega myndi vilja bara slaka á en ég get nefnt sem dæmi að þegar maður sækir um aðstoð í kerf­inu þá fylgir manni í gegnum það sér­fræð­ingur sem þetta sama kerfi réð til þess. Það þarf aðeins að laga til. Ég er að von­ast eftir að geta komið ein­hverjum af þeim þörfum á fram­færi og ég er líka að von­ast til þess að geta verið ein­hvers konar inn­blástur fyrir fólk sem heldur að það eigi ekki mögu­leika á þessu. Það er ekk­ert auð­velt fyrir mann­eskju í minni stöðu að koma sér á fram­færi en ég er heppin að vera þekkt út af Klaust­ur­mál­inu. Mér finnst það vera skylda mín að gera þetta fyrst ég get það.“

Eiginkonan transkona

Bára segir að vegna sjúk­dóms síns hafi hún ein­angr­ast svo­lítið frá sam­fé­lag­inu.

„Ég held að allir erf­ið­leikar styrki fólk. Ég held að allir erf­ið­leikar þroski fólk. Ég hélt fyrir bús­á­halda­bylt­ing­una að ég ætti enga fram­tíð en svo stillti ég mér upp fyrir framan Alþing­is­húsið í mót­mælum og þá átt­aði ég mig á því að ég er ófeimin og gat sparkað svo­lítið frá mér, vakið athygli á því sem betur mætti fara.“

Bára er gift Hröfnu Jónu Ágústs­dóttur sem er trans­kona.

Hjónin Bára og Hrafna.

„Konan mín er ein­stak­lega hæfur og flottur ljós­mynd­ari. Svo á ég barn sem er flutt að heiman og barna­barn. Þá á ég hund og tvo ketti; svona loðin börn.“

Bára er spurð hvað ástin sé í huga hennar.

„Ætli ástin sé ekki þegar maður getur hlegið og unnið úr því saman þegar eitt­hvað ger­ist sem er óhent­ugt, óþægi­leg og asna­legt. Ég get ekki ímyndað mér að það væri til staður í heim­inum þar sem ég myndi ekki vilja hafa kon­una mína með mér. Hún er aldrei neitt nema besta vin­kona mín.“

Ég varð fyrir þó nokkru álagi vegna alls konar mál­sókna og kjaftæðis

Bára seg­ist ekki hafa upp­lifað for­dóma á Íslandi vegna sam­bands þeirra hjóna þó mis­rétti sé í kerf­inu.

„Ef fólk ber virð­ingu fyrir þessum ein­stak­lingum þá held ég að öllum líði vel. Ég held að þetta sé bara spurn­ing um almenna kurt­eisi og hún er að mestu leyti til staðar á Íslandi. Hins vegar þegar við hugsum um ferða­lag til útlanda þá veltum við því stundum fyrir okkur hvort við gætum farið á þennan stað­inn eða hinn bara upp á öryggi að gera.“

Hvað með for­dóma varð­andi Klaust­ur­málið. Fordóma eða reiði fólks?

„Ég varð fyrir þó nokkru álagi vegna alls konar mál­sókna og kjaftæðis. Það fylgdi þessu streita. Íslenska þjóðin hélt hins vegar lífi í mér þarna rétt á eftir þegar ég vissi ekki hvað myndi ger­ast en margir gengu upp að mér og sögðu að ég hafi gert það rétta í stöð­unni. Þannig að ég er mjög glöð yfir því. Ég hef þó séð eitt­hvað nei­kvætt í kommenta­kerfum þar sem fólk felur sig og er kannski illa statt i líf­inu. Ég fékk tvisvar sendan póst heim sem mér þótti vera óþægi­legt en að mesu leyti hef ég fengið jákvæð við­brögð þótt þetta hafi verið erfitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Verslunin í Hafnarfirði hefur verið sjálfstæð um áratuga skeið
Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag