Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kletturinn minn

Kletturinn minn
Mynd / Unsplash.com

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Ég og mað­ur­inn minn rugl­uðum ekki saman reytum fyrr en eftir margra ára vin­skap. Vinir mínir skildu ekk­ert í vin­áttu okkar tveggja í fyrstu, þeim þótti Jonni hálf­skrít­inn, að minnsta kosti frekar sér­stakur og ólíkur mér, en þeir hefðu þá átt að kynn­ast tengda­for­eldrum mínum og mági.

Ég hitti Jonna í boði sem hann hafði aldrei ætlað sér að mæta í en vinur góðrar vin­konu minnar hafði boðið fjölda fólks til sín og linnti ekki látum fyrr en þessi sér­kenni­legi sam­starfs­maður hans sam­þykkti að koma. Ég fór að spjalla við hann og lét þurr­leg svör hans ekki fæla mig frá. Smám saman þiðn­aði þessi mynd­ar­legi maður örlítið og ég ákvað með sjálfri mér að hann væri bara svona feim­inn. Ég sagði honum í spjall­inu að ég væri að fara að flytja og eina vanda­mál mitt í líf­inu, sagði ég í gríni, væri að ég kynni ekki að aftengja ljós. „Ég skal gera það fyrir þig,“ sagði hann, og ég sam­þykkti það eftir smá­stund. Ég er kannski ekki besti mann­þekkj­ari í heimi en Jonni virt­ist maður sem hægt væri að treysta. Hann mætti heim til mín til að aftengja ljósin, ég gaf honum kaffi og við spjöll­uðum heil­lengi saman. Hann heimt­aði að fá að mæta á flutn­ings­dag­inn og hjálpa mér við að bera hús­gögn og kassa, og þannig má segja að vin­átta okkar hafi haf­ist. Hann var aldrei upp­á­þrengj­andi, okkur leið vel saman og mér lík­aði sífellt betur við hann.

„Í partíum eða mat­ar­boðum var hann þegj­anda­legur, stóð kannski brúna­þungur úti í horni og virti fyrir sér gest­ina með mann­dráps­svip.“

Brúnaþungur úti í horni

Öðrum vinum mínum fannst Jonni frekar sér­stakur og spurðu mig stundum af hverju ég væri að púkka upp á hann. Í partíum eða mat­ar­boðum var hann þegj­anda­legur, stóð kannski brúna­þungur úti í horni og virti fyrir sér gest­ina með mann­dráps­svip. Hann sótti í félags­skap minn, átti fáa aðra vini, ef nokkra, og umgekkst mest for­eldra sína og eldri bróður sem bjuggu ekki svo fjarri höf­uð­borg­inni. Hann átti í sam­skiptum við vinnu­fé­lag­ana en þeir voru ekki vinir sem hann umgekkst utan vinnu, meira bara kunn­ingjar.

Ég var stundum á ferð með Jonna í bílnum hans og ef hann þurfti að koma við heima hjá for­eldrum sínum var mér aldrei boðið inn. „Þau eru svo­lítið sér­stök,“ við­ur­kenndi Jonni fyrir mér, flýtti sér með erindið og kom svo aftur út í bíl.

Smám saman opn­að­ist skelin hjá Jonna, hann varð mann­blendn­ari og sífellt oftar hrókur alls fagn­aðar. Ég varð vör við að vinum mínum fór að líka vel við hann og stein­hættu að minn­ast á að hann væri skrít­inn.

Það sem ég kunni svo vel við í fari Jonna var hversu traustur hann var, ég gat alltaf stólað á að það sem hann sagði stæð­ist og hjálp­semi hans var ein­stök. Það var samt engin ein­stefna í gangi, að hann væri gef­andi og ég þiggj­andi, við hjálp­uðum hvort öðru á marg­vís­legan hátt og okkur kom mjög vel saman.

Ég hafði verið gift tvisvar áður, ég missti fyrri mann­inn sem veikt­ist skyndi­lega og dó eftir nokkra mán­uði, og átti með honum tveggja ára barn. Þann seinni skildi ég við vegna fram­hjá­halds hans og mik­illar stjórn­semi. Hann vildi til dæmis vita hvar ég væri öllum stundum. Ég hafði fyrst á til­finn­ing­unni að hann hefði verið svik­inn af konu og þetta væri óör­yggi sem myndi rjátl­ast af honum en svo reynd­ist ekki vera, þetta var bara stjórn­semi. Þegar hann fór að reyna að ein­angra mig frá vinum mínum og vildi sitja einn að mér og ég var að breyt­ast í litla mús sem reyndi sífellt að þókn­ast honum gafst ég upp. Hjóna­bandið stóð í tæp tvö ár og þótt hann lof­aði öllu fögru treysti ég honum ekki, ég átti mjög erfitt með að treysta eftir þetta sam­band.

Ég var ekki nema rétt rúm­lega þrí­tug þegar við Jonni kynnt­umst og ég veit að for­eldrar hans voru ekki sér­lega spenntir fyrir þess­ari vin­konu hans sem hann tal­aði oft um við þau, ein­stæðri móður með tvö hjóna­bönd að baki.

Jonni átti í tveimur eða þremur sam­böndum við konur en ég er eig­in­lega viss um að léleg félags­leg færni hans hafi eyði­lagt þau. Hann leit­aði stundum ráða hjá mér í ásta­málum og ég gerði mitt besta til að ráð­leggja honum.

Feg­in­leika minn þegar sam­bönd­unum lauk gat ég ekki skýrt fyrir sjálfri mér en átt­aði mig löngu síðar á að ég var ein­fald­lega hrifin af honum án þess að gera mér almenni­lega grein fyrir því. Hann við­ur­kenndi svipað fyrir mér síðar, að hann hefði verið frekar óhress með þá menn sem ég var að slá mér upp með þótt lítil alvara væri að baki, nema kannski einu sinni þegar ég átti í sam­bandi í rúmt ár. Við Jonni próf­uðum tvisvar að vera saman en það var eins og vant­aði neist­ann hjá okkur báðum en það átti eftir að breyt­ast.

„Eitthvað hafði breyst á milli okkar. Við vorum farin að þekkja hvort annað afar vel eftir öll þessi ár og gátum í raun ekki án hvort ann­ars verið.“

Tók af skarið

Það var ég sem tók af skarið. Þá höfðum við hist mikið um hríð og ég fann hvað ég sakn­aði hans þegar hann var ekki hjá mér og upp­lifði líka að honum væri ekki sama um mig. Eitthvað hafði breyst á milli okkar. Við vorum farin að þekkja hvort annað afar vel eftir öll þessi ár og gátum í raun ekki án hvort ann­ars verið. Við ákváðum að fara að búa saman en þá bjó dóttir mín á ung­lings­aldri enn hjá mér. Við giftum okkur nokkrum árum seinna og allt hefur gengið vel. Dóttirin er flutt að heiman og búin að gera okkur að ömmu og afa.

Ég veit ekki hvernig for­eldrum Jonna varð við en þau sögðu ekk­ert nei­kvætt við hann. Ég var án efa ekki drauma­tengda­dóttirin, svo mikið er víst.

Okkur var boðið í heim­sókn til þeirra fljót­lega eftir að sam­bandið varð opin­bert, alveg örugg­lega að und­ir­lagi Jonna. Þau voru ósköp indæl en inni­leg voru þau ekki, slíkt upp­lifði ég aldrei frá þeim og ég sá þau svo sem heldur aldrei vera þannig við syn­ina.

Heimili þeirra var mjög hefð­bundið, sér­lega hreint og snyrti­legt en tengda­mamma, þrátt fyrir fulla vinnu við kennslu í grunn­skóla, lagði mik­inn metnað í að sæist ekki ryk­korn á neinu. Ég átt­aði mig á því með tím­anum og fékk svo stað­fest­ingu á því hjá Jonna, að þau ættu nákvæm­lega enga vini. Heimur þeirra sner­ist um hvort annað, heim­ilið og syn­ina. Þau spurðu aldrei út í neitt mér við­víkj­andi, eins og um dóttur mína, síðar barna­barnið, starf mitt eða annað, þau höfðu ein­fald­lega engan áhuga. Aftur á móti vildu þau fá að vita allt um Jonna og spurðu hann margra spurn­inga. Mér fór að finn­ast þetta fyndið, það ergði mig aldrei því ég fann að þau reyndu ekki að móðga mig á nokkurn hátt.

Eftir að pabbi Jonna dó hittum við mömmu hans oftar en áður. Bróðir Jonna var fluttur norður á land og heim­sótti mömmu sína sjaldnar en áður, helst yfir sum­ar­tím­ann og á stór­há­tíðum. Við Jonni fórum til hennar í mat um jólin eftir að hún varð ein en fram að því höfðum við haldið jólin heima hjá okkur en heim­sótt þau, farið í kaffi til þeirra á jóla­dag eða annan dag jóla.

Eftir að hafa borðað þurrt kjöt og afskap­lega óspenn­andi með­læti fyrstu jólin hjá henni og með bróður Jonna, tók ég með mér góða sósu og dásam­legan eft­ir­rétt að ári, ég er mikil sósu­kerl­ing og vil líka hafa bragð af matnum mínum. Því var ekki illa tekið svo sem en af áhuga­leysi og kannski pínu­lít­illi furðu. Við Jonni fengum okkur af sós­unni, ekki mæðginin, og þau vildu heldur ekki eft­ir­rétt­inn svo við tókum hann bara með mér heim aftur.

Engir vinir

Tengda­mamma vinnur mikið í garð­inum sínum á sumrin, það er hennar eina áhuga­mál og einnig les hún mikið, helst ævi­sögur og bækur um sögu, og fer í kirkju á sunnu­dögum. Hún virð­ist vera ánægð með lífið, komin á eft­ir­laun fyrir nokkru. Ég vildi að hún ætti vin­konur en hún virð­ist ekki vera ein­mana á nokkurn hátt. Hún býður nágrönnum sínum góðan dag, er kurt­eis og indæl, en heldur öllum í fjar­lægð, það er eins og hún vilji ekki kynn­ast öðru fólki. Það er erfitt að kom­ast upp með það á litla Íslandi, eða það hefði ég haldið, en hún og mað­ur­inn hennar heit­inn gátu það. Hún er einka­barn for­eldra sinna og á lít­inn frænd­garð.

Bróðir Jonna er háskóla­mennt­aður og vann áður á skrif­stofu en fyrir nokkrum árum fór hann að vinna sjálf­stætt heima og þarf ekki lengur að vera í sam­skiptum við fólk nema í gegnum tölvu­póst. Hann er mjög sér­stakur og á enga vini, frekar en mamma hans. Senni­lega hefði Jonni orðið svona og ein­angrað sig nema rétt á meðan hann var í vinn­unni, hann hefur sjálfur talað um það og sagt að kynnin við mig og vin­átta okkar hafi öllu breytt. Honum finnst vissu­lega gott að vera stundum einn og ver löngum stundum úti í bíl­skúr þar sem hann hefur komið sér vel fyrir, en hann forð­ast sann­ar­lega ekki fólk. Hann var gerður að yfir­manni á vinnu­staðnum sínum fyrir nokkrum árum og er vel þokk­aður, sýn­ist mér.

Ég er afskap­lega fegin því að hafa ekki gef­ist upp á honum sem vini á sínum tíma þótt hann hafi oft verið bæði erf­iður og leið­in­legur en það var þetta traust sem ég bar til hans, ég vissi ein­hvern veg­inn að hann myndi aldrei bregð­ast mér. Eftir tæt­ings­legt líf; óreglu­heim­ili í æsku, maka­missi og erf­iðan skilnað var ómet­an­legt að eign­ast svona „klett“ sem ég gat reitt mig á. Hann þurfti svo sann­ar­lega líka á mér að halda til að öðl­ast gott líf, eins og hann hefur margoft sagt við mig. Jonni hefur gert margar til­raunir til að draga bróður sinn út úr skel­inni en án árang­urs.

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni. Í hverri viku birt­ast spenn­andi lífs­reynslu­sögur. Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í áskrift.

Fylgstu með Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Facebook. Lífs­reynslu­sögur er hlað­varp þar sem blaða­konan Guðrún Óla Jóns­dóttir les áhuga­verðar lífs­reynslu­sögur úr Vikunni. Í hverjum þætti eru fimm sögur lesnar. Þætt­irnir koma inn á Spotify og Storytel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu