Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mikael Torfason greiddi skaðabætur vegna Harry Potter

Mikael Torfason greiddi skaðabætur vegna Harry Potter
Daniel Radcliffe í hlut­verki Harrys.

Lesendur DV supu hveljur að morgni 7. júní 2004. Stór for­síðu­til­vísun lýsti því að Harry Potter væri sprautu­fík­ill og hefði fund­ist með­vit­und­ar­laus eftir neyslu á heróíni. Reyndar var um að ræða leik­ar­ann sem lék Potter, Daniel Radcliffe, 14 ára, sem að sögn DV var fluttur á sjúkra­hús.

Mikael Torfason móðg­aði aðdá­endur Harry Potters.

Á þessum tíma var DV á miklu flugi undir rit­stjórn Mikaels Torfa­sonar sem þótti afar djarfur í fram­setn­ingu efnis og var að sama skapi umdeildur. En þótt les­endum DV hefði brugðið við frétt­ina átti fleirum eftir að bregða. Í Hollywood fór allt á annan end­ann þegar fram­leið­endur nýj­ustu Potter-mynd­ar­innar komust á snoðir um frétt­ina í íslenska götu­blað­inu. Og ekki bætti úr skák að því var lýst í frétt DV að „á meðan Gary Oldman væri ekki mestí eit­ur­lyfja­neyt­and­inn á töku­staðnum þá værum við í slæmum málum“. Fréttin átti eftir að valda miklum höf­uð­verk á DV þegar leið á útgáfu­dag­inn. Málið vafði upp á sig. Mikael Torfason og félagar hans höfðu móðgað Harry Potter og alla hans aðstand­endur.

Uppnámið á DV

Vitnað var til BBC í frétt­inni. Nánari lýs­ing á neyslu leik­ar­ans unga var sú að móðir hans hefði komið að honum með­vit­und­ar­lausum á bað­her­berg­is­gólf­inu heima hjá sér. Þá segir í blað­inu að fréttir um harða neyslu leik­ar­ans unga hafi  komið „tals­vert á óvart“ en sögu­sagnir þess eðlis hefðu heyrst áður. Marg­sinnis hefði þurft að fresta tökum á mynd­inni þar sem leik­ar­inn ungi hefði oft verið í svo slæmu ástandi að hann hafi engan veg­inn getað leikið. „…Og hafa sögu­sagn­irnar nú verið stað­festar,“ segir í frétt DV. Þá er bætt um betur með því að upp­lýsa að aðstand­endur mynd­ar­innar hefðu staðið sig mjög vel í því að halda þessu ástandi leik­ar­ans leyndu. „Þetta var samt ekk­ert leynd­ar­mál á töku­staðnum…,“ segir í frétt­inni.

Því er lýst að allt frá því að fyrsta myndin um Harry Potter kom út hefði Daniel verið á hraðri nið­ur­leið.

„Þetta atvik kemur upp á versta tíma fyrir fram­leið­endur mynd­ar­innar en þriðja Harry Potter myndin var frum­sýnd í síð­ustu viku og var búist við að hún myndi hala inn millj­arða króna. Nú ótt­ast menn að aðsóknin muni minnka þótt atvikið hafi vissu­lega vakið athygli á mynd­inni þannig að ómögu­legt er að segja hvaða áhrif þetta hefur. Búast má við til­kynn­ingu frá Radcliffefjölskyldunni fljót­lega,“ segir í  nið­ur­lagi frétt­ar­innar.

Það var skammt liðið á dag þegar lög­fræð­ingar frá Hollywood höfðu sam­band við rit­stjórn DV. Rit­stjórum og blaða­manni til skelf­ingar kom á dag­inn að fréttin var röng. Þetta var í árdaga inter­nets­ins og rit­stjórn DV hafði látið fall­er­ast af fals­aðri síðu sem kennd var við BBC. Fréttin var upp­spuni frá rótum.

Afsökunarbeiðni

Daginn eftir birt­ist auð­mjúk afsök­un­ar­beiðni í DV. For­síðu­til­vís­unin var: BBC brjálað. Heróíni logið upp á Harry Potter. Inni í blað­inu var afdrátt­ar­laus afsök­unar­beiðni  þar sem útrekað var að BBC-menn væru æfinr. Harry við heista­heilsu sagði blaðið.

„Sagt var frá því í DV í gær að leik­ar­inn ungi, Daniel Radcliffe, hefði um helg­ina tekið inn of stóran skammt af heróíni og fund­ist með­vit­und­ar­laus á bað­her­berg­is­gólf­inu heima hjá sér. Þetta reynd­ist vera upp­spuni frá rótum. Óprút­tnir náungar höfðu búið frétt­ina til og birt á vefnum líkt og um frétt frá BBC, breska rík­is­sjón­varp­inu, væri að ræða. BBC kannar málið. Ýmsir tóku fals­frétt­ina trú­an­lega en hjá BBC-sjón­varp­inu breska könn­uð­ust menn hins vegar ekki við að hafa skrifað frétt­ina. Þegar haft var sam­band við þá sögð­ust þeir vera að kanna hverjir stæðu á bak við atvikið. Þar á bæ líta menn föls­un­ina alvar­legum augum en að svo stöddu er ekki vitað hvort eitt­hvað verði gert í mál­inu,“ segir í DV.

Þá eru rifjuð upp mál þar sem fjöl­miðlar voru gabb­aðir af óprút­tnum aðilum. Og nið­ur­lagið er ein­lægt. „… DV við­ur­kennir fús­lega að hafa gert mis­tök með því að birta frétt­ina af Harry í gær og biður blaðið les­endur sína afsök­unar á atvik­inu. Einnig eru þeir sóma­menn og frá­bæru lista­menn Gary Oldman og Daniel Radcliffe beðnir inni­lega afsök­unar á öllum óþæg­indum sem trú­girni okkar kann að hafa valdið þeim,“ segir í yfr­lýs­ingu DV.

Bætur til munaðarlausra

En mál­inu var ekki lokið með þessu. Lög­fræð­ingar kvik­mynd­aris­ans vildu bætur frá síð­deg­is­blað­inu á Íslandi. Varð nið­ur­staðan sú að greidd var ákveðin fjár­hæð til mun­að­ar­leys­ingja. Var málið þannig úr sög­unni. Ekki heyrð­ist meira af til­raunum BBC til að finna þrjót­ana eða hvort aðrir fjöl­miðlar hafi þurft að greiða bætur.

Ísafjarðarmálið

Þetta var þó ekki erf­ið­asta málið á rit­stjórn DV því nokkru síðar kom upp Ísa­fjarð­ar­málið svo­kall­aða. Ger­and­inn í því máli fyr­ir­fór sér áður en blaðið kom út og 30 þús­und manns skor­uðu á rit­stjóra DV að fara frá. Borgar Þór Ein­ars­son, núver­andi aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra, stóð ásamt fleirum fyrir áskorun á Netinu. Að þessu sinni dugði ekki afsök­un­ar­beiðni og rit­stjór­arnir Mikael Torfason og Jónas Krist­jáns­son hrökkl­uð­ust úr starfi. Seinna kom á dag­inn að frétt blaðs­ins var rétt en fram­setn­ingin skelfi­leg.

Þessi grein birt­ist að uppi­stöðu til í Stund­inni áður en höf­undur er sá sami og nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag