Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brynja Huld hjálpar konum frá Afganistan: „Maður er með óbragð í munninum“

Brynja Huld hjálpar konum frá Afganistan: „Maður er með óbragð í munninum“
Brynja Huld Ósk­ars­dóttir

Brynja Huld Ósk­ars­dóttir, öryggis- og varn­ar­mála­fræð­ingur, ótt­ast að yfir­taka Talibana á Afganistan og Kabúl sé upp­haf að ein­hverju sem ekki sé hægt að sjá fyrir end­ann á.

„Þó þessi yfir­taka marki enda­lok 20 ára við­veru Banda­ríkj­anna og NATO í Afganistan þá er hún í raun­inni upp­hafið að ein­hvers konar stjórn­ar­tíð Talibana hvort sem þeir verða einir við stjórn eða ein­hverjir aðrir með þeim sem hafa áður verið virkir í stjórn­málum í land­inu. Þetta eru fyrstu dag­arnir á ein­hverju nýju. Þetta hefur allt gerst hratt og aðstæður til dæmis í Kabúl hafa breyst ótrú­lega hratt. Það er óraun­veru­legt að hugsa til þess að þetta hafi gerst á svona stuttum tíma,“ segir hún en ekki eru nema 10 dagar síðan Tali­banar tóku yfir fyrstu hér­aðs­borg­ina í Afghanistan. Forseti lands­ins, Ashraf Ghani, fór úr landi í gær og sama dag fór hópur Talibana inn í for­seta­höll­ina í Kabúl. Stjórn­ar­her­inn barð­ist ekki gegn Talí­bön­unum þegar þeir fóru inn í borg­ina en þeir höfðu til­kynnt að þeir vildu taka yfir með frið­sömum hætti.

„Það má auð­vitað velta því fyrir sér hvort sú ákvörðun Ghani að fara úr landi hafi verið góð eða slæm ákvörðun. Hann seg­ist hafa gert það á þeim for­sendum að vernda þjóð­ina fyrir blóð­baði því það má vel álykta að ef stjórn­ar­her­inn og Talí­banar hefðu mæst í útjarði Kabúl hefðu þau átök getað valdið skelfi­legu mann­falli bæði fyrir her­inn og almenna borg­ara. Íbúar Kabúl eru um fjórar millj­ónir auk þess sem þar er fjöldi afganskra flótta­manna sem hefur flykkst til borg­ar­innar und­an­farnar vikur.“

Talí­banar hafa shar­ía­lög í heiðri og segir Brynja Huld að baga­legt sé að hugsa til þess að öll þau rétt­indi sem konur hafa áunnið sér á síð­ast­liðnum 20 árum verði nú að engu og það á nokkrum sól­ar­hringum. „Maður sér það á myndum og mynd­skeiðum frá Kabúl að það eru ekki margar konur á ferli. Þetta eru mest­megnis karlar. Konurnar eru heima. Þær eru hræddar og eru ekk­ert að hafa sig í frammi á meðan það er ekki komið í ljós hvernig þetta verður þegar Talí­ban­arnir eru við stjórn. Það er mikil óvissa í gangi þessa dag­ana og verður vænt­an­lega næstu vik­urnar.“

Talí­banar hafa shar­ía­lög í heiðri og segir Brynja Huld að baga­legt sé að hugsa til þess að öll þau rétt­indi sem konur hafa áunnið sér á síð­ast­liðnum 20 árum verði nú að engu og það á nokkrum sól­ar­hringum.

Athygli vakti víða um heim í gær mynd af karl­manni að mála yfir mynd af konu á vegg í Kabúl en þá var einnig verið að rífa niður aug­lýs­inga­myndir af konum. „Það er eins og það sé verið að eyða konum úr almanna­rým­inu og ég held að þessi mynd eigi eftir að verða svo­lítið tákn­ræn þegar fram líða stundir. Maður er með óbragð í munn­inum þegar maður hugsar til þess hvað konur þurfa að ganga í gegnum og hversu óör­uggar þær eru. Mér finnst ég alltaf vera að átta mig sífellt meira á for­rétt­indum mínum; ég er vest­ræn kona, ég er örugg, ég get lært og unnið og búið þar sem ég vil. Þegar ég set það í sam­hengi við afganskar konur þá magn­ast upp sá grimmi­legi veru­leiki sem þær búa við.“

Aðspurð hvað yfir­taka Talíbana þýðir fyrir alþjóða­sam­fé­lagið segir Brynja Huld að það verði áhuga­vert að sjá hver við­brögð alþjóða­sam­fé­lags­ins munu verða. „Hvað munu Sam­ein­uðu þjóð­irnar gera, hvað gera Evr­ópu­lönd, hvað gera Banda­ríkin og fleiri? Afganir upp­lifa brott­för Banda­ríkja­hers og NATO sem svo að það sé verið að yfir­gefa þá og skilja þá eftir í ömur­legum aðstæðum og þá verður fólk reitt og gramt sem er kjör­inn jarð­vegur fyrir nýliðun fyrir alþjóð­leg hryðju­verka­sam­tök eins og Íslamska ríkið og al-Qaeda sem eru sam­tök sem Vest­ur­löndin hafa frekar áhyggjur af hvað varðar öryggi sitt. Talí­ban­arnir eru mjög ólík­lega að fara að gera árásir á Ísland eða í París. Þeir vilja stjórna Afganistan með shar­ía­lögum. Þetta snýst meira um hvers konar jarð­vegur verður fyrir aðra öfga­hópa í Afganistan þegar Talí­ban­arnir eru komnir til valda. Það er eitt­hvað sem myndi snerta öryggi alþjóða­sam­fé­lags­ins meira en endi­lega að Tali­banar sitji í for­seta­höll­inni í Kabúl.“

Brynja Huld starfar nú hjá íslensku frum­kvöðla­fyr­ir­tæki auk þess að vera stunda­kenn­ari í nám­skeiði um hryðju­verk við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands. Und­an­farna daga hafa hún og fyrrum kollegar hennar verið í sam­bandi við fyrr­ver­andi kollega í Kabúl við að vinna að lista, hálf­gerða flótta­lista, áhrifa­kvenna í Afganistan sem vilja kom­ast úr landi. „Allir sem vett­lingi geta valdið reyna að leggja hönd á plóg­inn svo sem við að reyna að tengja fólk saman eða safna saman vega­bréfa­upp­lýs­ingum. Manni rennur blóðið til skyld­unnar ef maður getur hjálpað ein­hverjum ein­hvers staðar. Maður verður að gera það sem maður getur.“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt að til greina komi að hingað til lands komi stærri hópur afganskra flótta­manna en áður stóð til að taka á móti og að Ísland verði að axla ábyrgð í alþjóða­sam­fé­lag­inu. „Við verðum að hjálpa eins mörgum og við getum,“ segir Brynja Huld. „Hvert líf skiptir máli og við eigum auð­vitað að leggja okkar af mörkum.“

Þetta snýst meira um hvers konar jarð­vegur verður fyrir aðra öfga­hópa í Afganistan þegar Talí­ban­arnir eru komnir til valda. Það er eitt­hvað sem myndi snerta öryggi alþjóða­sam­fé­lags­ins meira en endi­lega að Tali­banar sitji í for­seta­höll­inni í Kabúl.

Mannúðarþörf

Brynja Huld bjó í Kabúl í eitt ár, 2018-2019, þar sem hún starf­aði sem sam­skipta­ráð­gjafi hjá NATO.

„Ég fór út á vegum Íslensku frið­ar­gæsl­unnar en þá er maður sendur út af hálfu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sem tekur þátt í verk­efnum NATO erlendis. Ég var það sem kall­ast „Strategic Communications Officer“ og veitti ráð­gjöf, sam­skipta­ráð­gjöf, til afganska varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins og inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, var tengiliður fyrir kosn­inga­ör­yggi og milli NATO og Sam­ein­uðu þjóð­anna og svo afgönsku kjör­stjórn­ar­innar. Ég sinnti alls konar sam­skipta­verk­efnum mest tengd stjórn­málum, lýð­ræði og öryggi.“

Hún nefnir Afgani þegar hún er spurð hvað hafi verið eft­ir­minni­leg­ast sem og það að skilja sögu þeirra og þetta flókna land. „Það eru 14 þjóð­ern­is­brot í Afganistan. Menn­ingin og mat­ur­inn er ólíkur á milli hópa. Við fengum ekk­ert að valsa um eins og maður hefði viljað og það var nú oft­ast auð­veld­ara að fá fólk í heim­sókn til okkar heldur en að fara til ann­arra því örygg­is­á­standið breytt­ist frekar hratt á þessum tíma. Ég var heppin og fékk að vinna sem sjálf­boða­liði með afgönskum skátum og ég held að það séu dýr­mæt­ustu minn­ing­arnar sem ég á frá þessum tíma.“

Brynja Huld segir að það að fara þessa leið í líf­inu, vinna á vegum NATO í Afganistan, teng­ist því að hún vilji gera eitt­hvað til góðs. Gera eitt­hvað sem skiptir máli. „Þetta teng­ist örugg­lega ein­hverri mann­úð­ar­þörf eða -þrá þó svo að NATO sé auð­vitað hern­að­ar­banda­lag og það má svo sem alltaf benda á það. Þetta er ein­hver þrá sem teng­ist því að læra meira, kynn­ast öðrum aðstæðum og láta gott af sér leiða í leið­inni.“

Hún er spurð hvort dvölin í Afganistan hafi breytt henni. „Já, auð­vitað gerði hún það. Ég held að líf mitt verði alltaf „fyrir og eftir Kabúl“. Ég held að allir sem fá tæki­færi til að víkka sjón­deild­ar­hring sinn og reynslu­svið hljóti að upp­lifa það eins. Ég sé for­rétt­indi mín betur eftir dvöl­ina því á ein­hvern hátt var árið eitt besta ár lífs míns hingað til sem kem auð­vitað frá því­líkum for­rétt­inda­stað; að geta flogið inn í aðstæður eins og Afganistan, unnið fyrir alþjóða­her, kynnst afganskri menn­ingu og fengið ein­hverja reynslu sem breytir mér til lífs­tíðar og flogið svo út aftur heim í öryggið. Afganskar kyn­systur mínar búa ekki við það öryggi, þau for­rétt­indi, og það er sú til­hugsun sem drífur mig áfram í að vekja athygli á aðstæðum þeirra og þeim nöt­ur­lega raun­veru­leika sem þær vökn­uðu við í Kabúl í morgun.“

Þetta teng­ist örugg­lega ein­hverri mann­úð­ar­þörf eða -þrá þó svo að NATO sé auð­vitað hern­að­ar­banda­lag og það má svo sem alltaf benda á það.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu