Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Eftir að þú varst tekinn af mér á þennan hrottalega hátt vakna ég með brostið hjarta“

„Eftir að þú varst tekinn af mér á þennan hrottalega hátt vakna ég með brostið hjarta“

Lilja Björg Rand­vers­dóttir, unnusta Daníels heit­ins Eiríks­sonar, sem lést með voveif­legum hætti á föstu­dag­inn langa, segir það óbæri­lega til­hugsun að meintur bana­maður unnusta hennar sýni enga iðrun og gangi laus ferða sinna.

Þetta kemur fram í færslu hennnar á Facebook sem DV fjallar um. Lilja segir það ávallt sitja í sér að hafa komið að Daníel alblóð­ugum og rænu­lausum hið örlaga­ríka kvöld.

Blessuð sé minn­ing Daníels.

„Elskaði þennan mann meira en allt. Vid vorum eitt. Eftir að þú varst tek­inn af mér á þennan hrotta­lega hátt hef ég ekki verið söm. Með þér vakn­aði ég með til­hlökkun í hjarta en núna vakna ég með brostið hjarta. Engin til­hlökkun fyrir deg­inum,“ segir Lilja og bætir við:

„En það sem er að fara með mig og að láta mig vera gef­ast upp (missa vitið) er að mað­ur­inn sem varð mann­inum mínum að bana gengur laus og nýtur lífs­ins. Er búin vera í kvíða að hitta þennan mann úti á götu sem drap mann­inn minn og sýnir enga iðrun.“

Sjá einnig: Guðný og Lilja segja frá lífi og dauða Daníels – Þær syrgja. Hann hvílir í eilífum svefni

Daníel lést eftir að ekið var á hann. Hann var aðeins þrí­tugur er hann lést, 3. apríl síð­ast­lið­inn. Rúm­enskur karl­maður var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald vegna rann­sóknar á and­láti hans. Samkvæmt verj­anda manns­ins þá seg­ist mað­ur­inn hafa ekið á Daníel fyrir slysni.

Daníel fædd­ist í Reykja­vík 19. októ­ber árið 1990. Hann var sonur hjón­anna Krist­ínar Kui Rim frá Suður-Kóreu og Eiríks Sig­ur­björns­sonar, stofn­anda Sjón­varps­stöðv­ar­innar OMEGA. Daníel á eina alsystur, Guðnýju Sigríði, og tvo hálf­ræður, þá Sverri Einar og Jóhannes Ásgeir.

Í hlýrri minn­ing­ar­grein fóru for­eldrar Daníels um hann fal­legum orðum. „Elsku sonur okkar Daníel, við söknum þín sárt. Þú varst okkar vinur. Þú varst okkur svo nátengdur. Síðustu mán­uði lífs þíns gekk allt svo vel. Það voru svo bjartir tímar framundan. Það er svo erfitt að trúa því, elsku Daníel minn, að þú sért far­inn frá okkur, en við vitum hvar þú ert. Við söknum þín mikið. Sjáumst aftur,“ sögðu Eiríkur og Kristín.

Sjá einnig: Daníel þrí­tugur bor­inn til grafar í dag: „Elsku sonur okkar, við söknum þín svo sárt“

Guðný minn­ist einnig bróður síns í minn­inga­grein. „Elsku bróðir besti. Það er svo erfitt að reyna að sætta sig við það, að þú sért far­inn frá okkur. Þú skilur eftir þig mikla sorg og tóma­rúm sem verður erfitt að fylla upp í. Það jafn­að­ist ekk­ert á við brosið þitt, traustið þitt, jákvæðn­ina þína og kraft­inn þinn. Vá hvað ég gæfi mikið til að fá þig til baka elsku Daníel minn,“ sagði Guðný og heldur áfram:

„Svo skrítið að hugsa til þess að þú komir aldrei aftur í heim­sókn til okkar. Þú elskaðir að fá þér einn kaffi­bolla og horfa á sjón­varpið með krökk­unum. Við elskuðum svo mikið að fá þig til okkar. Ó hvað við söknum þín. Ég mun varð­veita fal­legu minn­ing­arnar okkar elsku eng­ill. Ég veit að þú vakir yfir okkur. Elska þig að eilífu.“

Systk­inin Guðný og Daníel á góðri stundu.

Jóhannes minnt­ist einnig Daníels, litla bróður síns. „Elsku Danni, ég er svo þakk­látur fyrir að hafa fengið að eiga þig sem litla bróður. Ég er þakk­látur fyrir allar stund­irnar sem við áttum saman. Þú varst sannur vinur og alltaf til­bú­inn til að hjálpa. Enda varstu klettur í lífi margra. Þú varst með hjartað á réttum stað. Þú hafðir skemmti­legan húmor og það var stutt í hlát­ur­inn og fal­lega brosið hjá þér. Enda varstu alltaf bjart­sýnn og stað­ráð­inn í að halda áfram í rétta átt, jafn­vel þótt stundum fen­g­irðu vind­inn full­hressi­lega í fangið í lífs­ins ólgu­sjó. En núna ertu far­inn og siglir ei meir. Við sjá­umst seinna elsku Danni minn,“ sagði Jóhannes.

Daníel Eiríks­son lést í kjöl­far þess að ekið var á hann fyrir utan heim­ili kær­ustu hans. Öku­mað­ur­inn ók í burtu frá slys­stað og lá Daníel hel­særður og rænu­laus í göt­unni í þó nokkurn tíma. Lög­reglan hand­tók í kjöl­farið þrjá Rúmena og sat einn í gæslu­varð­haldi vegna rann­sóknar á and­lát­inu. Sá sem sat í gæslu­varð­haldi við­ur­kenndi svo að hafa ekið á Daníel en sagði að um slys hefði verið að ræða. Rúm­en­arnir voru allir látnir lausir og enn vinnur lög­reglan að rann­sókn máls­ins.

Hinn meinti morð­ingi var aftur í fréttum í sumar er hann rauf far­bann og fór úr landi á fölskum skil­ríkjum. Hann skil­aði sér hins vegar aftur til lands­ins, er nú í far­banni en gengur laus.

Lilja og Guðný. Mynd / Róbert Reyn­is­son.

Lilja Björg, kærasta Daníels, fædd­ist og ólst upp fyrir norðan og var hún átta árum eldri en Daníel.

„Þetta gekk ótrú­lega vel hjá okkur. Loksins var ég ánægð. Ég hafði barist lengi við þung­lyndi og átt erfitt líf en með Daníel var ég ánægð alla daga. Ég gat verið erfið úr af „borderline-per­sónu­leika­rösk­un­inni“ en hann var aldrei reiður við mig og dæmdi mig aldrei. Hann studdi mig ótrú­lega vel og hann var að koma mér inn í trúna.“

Lilja: Það er búið að taka fram­tíð­ina af mér; allt sem ég ætl­aði að eiga. Það er búið að taka mann­inn sem ég elskaði út af líf­inu.“

Guðný og Lilja eru sann­færðar um að ekki hafi verið um slys að ræða og gagn­rýna að mað­ur­inn sem var í gæslu­varð­haldi sé laus úr haldi og virð­ist njóta lífs­ins.

Daníel og Lilja í faðm­lögum.

„Ég get ekki séð eins og staðan er núna hvernig ég á að geta haldið lífi mínu áfram fyrr en ég veit að mað­ur­inn sem gerði þetta fái dóm,“ sagði Guðný í við­tali við Mannlíf. „Það eru allir sam­mála okkur um hvað þetta er skrýtið. Það ekur eng­inn í burtu frá svona slys­stað; mað­ur­inn hefði getað hringt á sjúkra­bíl. Síðustu vikur hafa verið mjög slæmar. Ég hafði byrjað í nýrri vinnu nokkrum dögum áður en Daníel dó og ég hef ekk­ert getað mætt síðan hann dó. Maður er bara upp og niður allan dag­inn. Sorgin kemur í bylgjum. Maður tekur einn dag í einu og það er eng­inn dagur eins.“

Lilja tekur undir orð Guðnýjar. „Maðurinn hafði kannski getað bjargað Daníel,“ segir Lilja. „Ég mun aldrei geta sætt mig við að þetta hafi verið slys. Ég mun ekki geta haldið lífi mínu áfram eftir að ástin í lífi mínu var tekin á þennan hrotta­lega hátt. Ég get ekki byrjað að syrgja almenni­lega fyrr en mað­ur­inn fær dóm. Þessi maður virð­ist ekki sýna neina iðrun en hann sást á djamm­inu eftir að honum var sleppt og í rækt­inni; ætt­ingjar Daníels sáu hann í rækt­inni.“

Lilja: „Ég fór að leiði Daníels. Ég gat eig­in­lega ekki grátið; ég var svo reið.“

Hvítur kross stendur við leiði Daníels. Þrítugur kvaddi hann þetta líf.

Ein­faldur kross eins og oft­ast er áður en leg­steinn er settur við leiði. Nafnið hans. Fæð­ing­ar­dagur og -ár og dán­ar­dagur og -ár. Og ein setn­ing.

Ein setn­ing sem segir svo margt.

„Minning þín lifir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi