Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stuðmaðurinn Jakob Frímann í stjórnmálin: „Hér á enginn að búa við bág kjör“

Stuðmaðurinn Jakob Frímann í stjórnmálin: „Hér á enginn að búa við bág kjör“

Jakob Frímann Magn­ús­son, tón­listar- og athafna­maður, stígur að nýju inn á vett­vang stjórn­mál­anna en hann mun skipa efsta sætið á lista Flokks flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í kom­andi alþing­is­kosn­ingum. Hann var á sínum tíma vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og gegndi síðan starfi mið­borg­ar­stjóra í Reykja­vík um ára­bil. Fyrir hans til­stilli hefur í sam­starfi við stjórn­völd verið komið á fjölda mála sem bætt hafa til muna starfs­um­hverfi tón­list­ar­lífs­ins, hinna skap­andi greina og ferða­þjón­ust­unnar.

Í til­kynn­ingu á heima­síðu Flokks flokks­ins segir: „Ég hef hrif­ist af stefnu­málum Flokks fólks­ins þar sem áhersla er lögð á að útrýma fátækt og órétt­læti á Íslandi. Það er sjálf­sögð krafa að allir fái lifað mann­sæm­andi lífi í einu af auð­ug­ustu sam­fé­lögum heims. Hér á eng­inn að búa við bág kjör að afloknu ævi­starfi, hlúa þarf betur að þeim sem hafa lent í áföllum eða búa við skerta orku og allir eiga að njóta jafnra tæki­færa til mennt­unar og tóm­stunda­starfs. Alvöru vel­ferð­ar­sam­fé­lag bygg­ist á heil­brigðu sam­hengi milli verð­mæta­sköp­unar og mann­úðar.“

Í við­tal við Mannlíf segir Jakob Frímann að til­urð þessa sé að for­maður flokks­ins hringdi í sig og bað sig um að hitta sig á skrif­stofu sinni þar sem flokks­menn hafi deilt með sér áhyggjum sínum og áherslum. „Ég við­ur­kenni fús­lega að ég hafði ekki kynnt mér þau kjör nægi­lega sem tug­þús­undum Íslend­inga eru sköpuð hér eftir ævi­starf á akri atvinnu­lífs­ins. Skoðum hlut þeirra sem hafa sam­kvæmt laga­boði verið skyld­aðir til að leggja hluta tekna sinna í sér­stakan söfn­un­ar­sjóð líf­eyr­is­rétt­inda ævina á enda, falla síðan frá og þá stendur ekkjan eftir með börnin og fá ekki að erfa söfn­un­ar­sjóð fyr­ir­vinn­unnar því ríkið hirðir allt sem lagt var fyrir og fær ekki neitt né börnin. Þetta stang­ast að mínu viti á við eign­ar­rétt­ar­á­kvði stjórn­ar­skrár­innar þó svo þetta sé kallað ein­hverjum fal­legum nöfnum. Hér er meðal ann­ars um að ræða ein­hvers konar neyð­ar­lög sem sett voru með hraði eftir hrun og hefði átt að vera búið að afnema fyrir löngu. Ekkert bendir til að slíkt sé á dag­skrá þrátt fyrir fag­ur­gala sumra svona rétt fyrir kosn­ingar. Þau hjá Flokki flokks­ins sann­færðu mig um að koma með í þá brýnu veg­ferð. Ég er sam­mála þessu góða fólki í öllum helstu lyk­il­málum. Ég vil beita mér fyrir því að koma hér á friði um meg­in­málin, eyða hér sem flestum þrætu­eplum og taka okkur hressi­lega á meðal ann­ars í heil­brigð­is­málum, auð­linda­málum, atvinnu­málum, eld­is­málum, ferða­þjón­ustu, þróun og mark­aðs­setn­ingu búvara og upp­bygg­ingu nýrra greina. Það brosa við okkur tæki­færin og ein auð­ug­asta þjóð heims stefnir að óbreyttu í að verða enn auð­ugri. Þeim mun brýnna er að leið­rétta þessa skekkju og veita öllum þegnum þessa lands eðli­lega  hlut­deild í öllum þeim gæðum sem okkar hafa verið færð. Þetta er sam­visku­mál og ég skal fús­lega við­ur­kenna að ég gerði mér ekki fyrr en nýverið grein fyrir hversu grafal­var­legt þetta er. Við allt of mörgum blasir við tómur ísskápur og kvíða­hnútur í maga, fólk­inu er síst skyldi, fólk­inu sem skóp hér umgjörð­ina og inn­við­ina sem við njótum öll í dag.“

Ekkert bendir til að slíkt sé á dag­skrá þrátt fyrir fag­ur­gala sumra svona rétt fyrir kosn­ingar. Þau hjá Flokki flokks­ins sann­færðu mig um að koma með í þá brýnu veg­ferð.

Jakob Frímann er þekkt­astur sem einn af Stuð­mönnum og kemur enn fram með þeim auk þess að semja, hljóð­rita og koma fram undir lista­manns­nafn­inu Jack Magnet. Hann var um ára­bil for­maður FTT – Félags tón­skálda og texta­höf­unda, STEFS og SAMTÓNS og var auk þess stjórn­ar­for­maður Iceland Airwaves og ÚTÓNS – Útflutn­ings­skirf­stofu íslenskra tón­listar. Þá stofn­aði hann umhverf­is­sam­tökin Græna her­inn.

„Ég hef sem betur fer getað orðið að ein­hverju gagni við að fín­stilla og betrumbæta starfs­um­hverfi ýmissa sem þarna hafa verið að starfa og ég hef í raun­inni sterka til­finn­ingu fyrir því að ég geti og muni gagn­ast í því að leið­rétta það sem betur má fara í sam­fé­lags­mál­unum nái ég kjöri. Og það vil ég leit­ast við að gera – hér eftir sem hingað til – von­andi með kurt­eis­ina að leið­ar­ljósi, haf­andi í huga orð séra Friðriks Frið­riks­sonar: „Lát aldrei kappið bera feg­urð­ina ofur­liði.“ Þó Séra Friðrik hafi að lík­indum haft iðgræna knatt­spyrnu­velli í huga þá mætti yfir­færa þessa lífs­speki hans á vett­vang stjórn­mála, atvinnu­lífs og mann­lífs almennt.“

Jakob Frímann hefur und­an­farin ár meðal ann­ars unnið að und­ir­bún­ingi vist­þorps  á Suð­aust­ur­landi ásamt Áslaugu Magn­ús­dóttur. Hótelið verður hluti af Six Sense-hót­el­keðj­unni en hót­el­keðjan er þekkt fyrir gæða­hótel, holl­meti og heilsu­lindir,og mun bera nafnið Six Senses Össurá Valley.

Jakob Frímann hrífst af stefnu­málum Flokks flokks­ins svo sem að útrýma fátækt. Hann er spurður út í þær áherslur varð­andi vænt­an­legt lúx­us­hótel þar sem efna­meira fólk mun dvelja.

„Þetta er jákvæð atvinnu­upp­bygg­ing og ég hef í raun verið eins konar starfs­maður á plani þarna auk þess að eiga smá­pró­sentu í verk­efn­inu. Þetta er atvinnu­upp­bygg­ing­ar­mál sem á eftir að koma öllum til góða og skilja eftir betra og auð­ugra sam­fé­lag í allra þágu. Þannig að þó það sé verið að stíla inn á til­tek­inn hóp þá verður þetta auð­vitað öllum opið. Þarna verður heilsu­rækt, með­ferð­ar­mið­stöð, veit­inga­hús og gróð­ur­hús þar sem verður ræktað heilsu­efl­andi holl­meti,“ segir Jakob Frímann en Six Sense-keðjan leggur meðal ann­ars áherslu á sjálf­bærni. „Þannig að grunn­ur­inn í þessu verður mann­bæt­andi áfanga­staður í víð­asta sam­hengi. Hlutverk mitt hefur verið að koma þessu í gegnum svipu­göng stofn­ana­kerf­is­ins – 11 stofn­anir þurftu að hafa á þessu skoð­anir og skikka okkur til þess að teikna allt upp aftur í þrí­gang. Því er loks­ins lokið en þetta tók tvö og hálft ár og var erf­iður róður á köflum. En þegar upp er staðið held ég að allir megi vel við una. Það er hins vegar að mínu mati mun stærra og mik­il­væg­ara verk­efni sem ég er að ráð­ast í núna og í þágu heillar þjóðar.“

Þetta er atvinnu­upp­bygg­ing­ar­mál sem á eftir að koma öllum til góða og skilja eftir betra og auð­ugra sam­fé­lag í allra þágu. Þannig að þó það sé verið að stíla inn á til­tek­inn hóp þá verður þetta auð­vitað öllum opið.

Tón­listin. Svo er það tón­listin.

„Ég stefni að því að halda áfram tón­list­ar­sköpun til hinsta dags. Í því felst ákveðin heilun og slökun sem er mér afar dýr­mæt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu