Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ferð þín í Bláa lónið skilar Grími rúmum 18 milljónum í mánaðarlaun

Ferð þín í Bláa lónið skilar Grími rúmum 18 milljónum í mánaðarlaun

Grímur Sæmund­sen, for­stjóri Bláa lóns­ins og for­maður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, er með 18.571.052 krónur í laun á mán­uði. Ef við gefum okkur það að for­stjór­inn vinni átta klukku­stunda vinnu­dag þá er hann með ágætis tíma­kaup, eða því sem nemur hátt í 120 þús­und krónum á tím­ann. Fyrir þá sem hafa gaman af tölum þá er tíma­kaupið hans þá 116.069 miðað við þennan hefð­bundna átta stunda dag.

Launa­hæsti for­stjóri lands­ins er hins vegar Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri Marels. Hann er með tæp­lega 36 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun. Það þýðir að hann er með 1,2 millj­ónir í laun, hvern ein­asta dag árs­ins. Ef launin eru skoðuð nánar er Árni Oddur vak­inn og sof­inn með 40 þús­und krónur á klukku­stund, allan sól­ar­hring­inn og allt árið um kring. Tekjur hans koma  fram í Tekju­blaði Frjálsrar versl­unar. Lægstu laun í land­inu eru sem nemur 300 þús­und krónum á mán­uði. Árni Oddur þénar þannig á við 100 verka­menn.

Óskar Reyk­dals­son, for­stjóri Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, er sá launa­hæsti þegar litið er til rík­is­fyr­ir­tækja og emb­ætt­is­manna. Hann er með 6,1 milljón króna í mán­að­ar­laun eða sem nemur 200 þús­und krónum á dag. Tekjur hans eru birtar í Frjálsri verslun. Ef Óskar vinnur 10 tíma á dag, fimm daga vik­unnar, er hann með 40 þús­und krónur á unna klukku­stund. Óskar hefur verið áber­andi í umræðu­unni vegna Covid, enda hvíla bólu­setn­ingar og skimanir á herðum hans.

Karlmenn hafa vinn­ing­inn í nær öllum starfs­greinum þegar kemur að hæst­laun­uð­ustu konum og körlum lands­ins. Aðeins tvær konur eru efstar, Agnes M Sig­urð­ar­dóttir biskup og Linda Gunn­ars­dóttir yfir­flug­stjóri. Og þrátt fyrir jafn­launa­vottun er ótrú­legur munur á launum karla og kvenna í nær öllum starfs­greinum. Mán­að­ar­launin eru eft­ir­far­andi:

Áhrifavaldar, samfélagsmiðlar og fólk í fréttum

Guð­mundur Birkir Pálmason, áhrifa­valdur og kírópraktór 1.221.368 kr.

Birgitta Líf Björns­dóttir, áhrifa­valdur og fram­kvæmda­stjóri 1.010.943 kr.

Ferðaþjónusta og veitingar

Grímur Sæmund­sen, for­stjóri Bláa lóns­ins og for­maður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar 18.571.052 kr.

Magnea Þórey Hjálm­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Icelandair Hotels 2.916.482 kr.

Fjármál

Hjalti Bald­urs­son, stofn­andi Bókunar og fjár­festir 14.419.493 kr.

Rakel Ótt­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri upp­lýs­inga­tækni­s­viðs Alvotech 5.153.616 kr.

Fjölmiðlafólk og upplýsingafulltrúar

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins 5.697.279 kr.

Ásdís Ýr Pét­urs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Icelandair 1.607.918 kr.

Flugmenn og flugstjórar

Linda Gunn­ars­dóttir, yfir­flug­stjóri Icelandair 2.988.547 kr.

Ágúst Arn­björns­son, flug­stjóri 2.907.777 kr.

Heilbrigðisgeirinn

Óskar S. Reyk­dals­son, for­stjóri Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins 6.353.666 kr.

Lilja Þyri Björns­dóttir, yfir­læknir æða­skurð­lækn­inga Land­spít­al­ans 3.678.803 kr.

Iðnaður og tækni

Egill Jónsson, fram­kvæmda­stjóri hjá Össuri 11.306.674 kr.

Rannveig Rist, for­stjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi 7.827.955 kr.

Íþróttir

Hafþór Júlíus Björns­son, afl­rauna­maður 10.176.381 kr.

Ágústa Johnson, fram­kvæmda­stjóri Hreyf­ingar 2.621.442 kr.

Landbúnaður og sjávarútvegur

Þor­steinn Krist­jáns­son, skip­stjóri 6.052.419 kr.

Inga Jóna Frið­geirs­dóttir, fjár­mála­stjóri Brim 2.880.593 kr.

Listir

Þorlákur Morthens (Tolli), list­mál­ari 3.153.666 kr.

Steinunn Birna Ragn­ars­dóttir, óperu­stjóri Íslensku óper­unnar 1.403.406 kr.

Menntun, háskóli og vísindi

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar 8.723.197 kr.

Inga Dóra Sig­fús­dóttir, pró­fessor við sál­fræði­deild HR 2.328.141 kr.

Réttarkerfið

Friðrik Smári Björg­vins­son, sak­sókn­ari hjá Hér­aðs­sak­sókn­ara 4.700.560 kr.

Greta Bald­urs­dóttir, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari 3.491.541 kr.

Stjórnmál

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands 3.953.307 kr.

Vigdís Finn­boga­dóttir, fyrr­ver­andi for­seti Íslands 2.689.164 kr.

Stjórnsýsla og stofnanir

Björn Óli Hauksson, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi for­stjóri Isavia 3.826.632 kr.

Sigríður Loga­dóttir, per­sónu­vernd­ar­full­trúi Garða­bæjar, 2.759.070 kr.

Stjórnun fyrirtækja

Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri Marel 37.441.450 kr.

Hrund Rud­olfs­dóttir, for­stjóri Veritas of stjórn­ar­maður Við­skipta­ráðs 5.198.476 kr.

Trúmál

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup 1.686.014 kr.

Karl Val­garður Matth­í­as­son, sókn­ar­prestur í Graf­ar­holts­presta­kalli 1.658.464 kr.

Verslun

Haraldur Lindal Pét­urs­son, for­stjóri Johan Rönning 12.722.019 kr.

Brynja Hall­dórs­dóttir, fjár­mála­stjóri Norvik 3.581.177 kr.

Vinnumarkaðurinn og hagsmunasamtök

Halldór Benjamin Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins 4.446.260 kr.

Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SFS 4.119.610 kr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi