Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vinkona á Húsavík með brotið hjarta eftir sjálfsvíg vinar: „Við elskuðum hann öll svo mikið“

Vinkona á Húsavík með brotið hjarta eftir sjálfsvíg vinar: „Við elskuðum hann öll svo mikið“

Náin vin­kona Dziugas Pet­r­auskas, sem svipti sig lífi síð­ast­lið­inn sunnu­dag á Húsavík, situr eftir með gríð­ar­lega sorg í hjarta sínu eftir frá­fall góðs og trausts vinar. Hún treystir sér ekki til að koma fram undir nafni.

„Þetta er mikil sorg og svo mik­ill missir. Dziugas var svo hlý mann­eskja og eru það orðin sem lýsa honum best. Við höfum misst svo traustan vin. Við elskuðum hann öll svo mikið,“ segir vin­konan.

Pet­r­auskas kom til Húsavíkur að vinna í vor í Kís­il­verk­smiðju PCC á Bakka. Þau urðu sam­stundis vinir og héldu traustu vina­sam­bandi fram á síð­astu stundu. „Við náðum strax góðum tengslum. Við höfðum ekk­ert heyrt frá honum í dálít­inn tíma. Þá varð ég ótta­slegin og virki­lega örvænt­ing­ar­full,“ segir hún.

Pet­r­auskas var 27 ára gam­all knatt­spyrnu­maður frá Litháen. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs var ástæðan fyrir því að hann svipti sig lífi sú að hann hafði verið ásak­aður um kyn­ferð­is­brot. Pet­r­auskas var í fram­hald­inu yfir­heyrður af lög­reglu. Eftir það greip hann til þess örþrifa­ráðs að fyr­ir­fara sér. Aðfara­nótt mánu­dags­ins 9. ágúst síð­ast­lið­inn fannst Pet­r­auskas lát­inn í grennd við Húsavík.

Blessuð sé minn­ing Pet­r­auskas.

Sjá einnig: Harm­leikur á Húsavík – Fyrirfór sér eftir ásak­anir um kyn­ferð­is­brot

Beðin um að lýsa eig­in­leikum og per­sónu Pet­r­auskas hefur vin­konan þetta að segja:

„Dziugas var traustur vinur og gat maður alltaf stólað á hann þegar maður þurfti að tala við ein­hvern og það var alveg sama hversu heimsku­legt það var. Svo var alltaf svo stutt í húmor­inn hjá honum og grínið. Hann var svo ynd­is­legur og frá­bær. Dziugas var ein jákvæð­asta mann­eskja sem ég hef nokkurn tíma hitt, hann vildi bara að öllum liði svo vel og að eng­inn væri sorg­mæddur.“

Vinkonan seg­ist ekki hafa leyft verstu hugs­un­unum að kom­ast að, hún hafi ein­blínt á að Pet­r­auskas hafi von­andi skroppið aðeins í göngutúr. Þegar leið á leit­ina hellt­ist yfir hana ótt­inn um svip­legan endi. „Honum leið ekki vel og ásak­anir á hendur honum hafa án efa ýtt undir það. Mér var alveg rosa­lega brugðið við frétt­irnar og þegar ég átta mig á því að við vorum búin að missa hann. Þessari djúpu sorg er erfitt að lýsa, til­finn­ing­arnar eru út um allt við svona sjokk. Þetta brýtur gjör­sam­lega í mér hjartað,“ segir vin­konan.

Pet­r­auskas var öfl­ugur knatt­spyrnu­maður sem spil­aði aðal­lega sem hægri bak­vörður. Hann átti leiki með U-18 og U-19 ára lands­liðum Litháen. Þá spil­aði hann í efstu deild Litháen fyrir liðið knatt­spyrnu­liðið FC Ekranas allt þar til liðið varð gjald­þrota árið 2014 og var lagt niður.

Í síð­ustu viku fór fram kyrrðar- og minn­ing­ar­stund um Pet­r­auskas, í Húsa­vík­ur­kirkju. Prestur flutti þá ritn­ing­ar­orð og leiddi bæn og við­staddir tendr­uðu minn­ing­ar­ljós.

Fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir er minnt á Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, og net­spjallið. Þjálfaðir og reynslu­miklir sjálf­boða­liðar á öllum aldri svara þeim sím­tölum og spjöllum sem ber­ast. Fullum trún­aði er heitið, núm­erið er ókeypis og opið allan sól­ar­hring­inn.

Píeta sam­tökin bjóða einnig upp á þjón­ustu í síma 552-2218 fyrir fólk í sjálfs­vígs­hættu og með sjálfs­skaða­hegðun. Númerið er opið allan sól­ar­hring­inn.
Þá er einnig hægt að ná net­spjalli við hjúkr­un­ar­fræð­inga í gegnum vef­inn heilsu­vera.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu