Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ása varðveitir barnið í sjálfri sér: „Það á ekki að taka sig of alvarlega heldur njóta og gleðjast“

Ása varðveitir barnið í sjálfri sér: „Það á ekki að taka sig of alvarlega heldur njóta og gleðjast“
Ása Helga Ragn­ars­dóttir

Nám­skeiðin Viðey Friðey, sem haldin voru í júní og ágúst í Viðey, voru sam­starfs­verk­efni Lista­safns Reykja­víkur og Borg­ar­sögu­safns og haldin með stuðn­ingi Barna­menn­ing­ar­sjóðs. Kennarar á nám­skeið­unum voru Ása Helga Ragn­ars­dóttir leik­list­ar­kenn­ari, Guðrún Gísla­dóttir, mynd­mennta- og smíða­kenn­ari, og Sara Riel mynd­list­ar­maður. Stefnt er að því að halda sams konar nám­skeið næsta sumar.

„Þetta eru viku­löng nám­skeið fyrir börn á aldr­inum sex til níu ára með áherslu á frið og skap­andi starf í þess­ari mögn­uðu nátt­úru sem er í Viðey,“ segir Ása Helga. „Nám­skeiðin voru haldin í gamla skóla­hús­inu sem hefur verið gert upp í anda gamla húss­ins þar sem eru meðal ann­ars krít­art­öflur á veggjum.“

Ása Helga segir að nám­skeiðin séu þannig byggð upp að börnin séu að nema land í Viðey. „Þau eru land­nemar og alla vik­una eru þau að skapa sína eigin eyju en unnið er út frá hug­mynda­fræði sem kall­ast „stað­ar­tengd úti­menntun“ þar sem börnin kynn­ast eyj­unni, hvernig hún var, hvernig hún er og hvað verður hægt að gera í fram­tíð­inni. Það má eig­in­lega segja að við höfum verið að skapa hóp­kennd innan hóps­ins og ekki síst frið­ar­vit­und barn­anna í gegnum listir og sköpun og þar með er talið leik­list, mynd­list, tón­list og alls konar list­ræn úrvinnsla.“

Þetta eru viku­löng nám­skeið fyrir börn á aldr­inum sex til níu ára með áherslu á frið og skap­andi starf í þess­ari mögn­uðu nátt­úru sem er í Viðey.

Ása Helga segir að þetta sé ævin­týri fyrir börnin sem sigla að morgni út í Viðey og fara aftur til baka seinni hluta dags. Hún talar um verk­efni hvers dags.

„Þegar börnin ganga í átt að skóla­hús­inu á mánu­deg­inum tína þau fjaðrir af mávum sem eru að fella fjaðr­irnar á þessum tíma og búa til fjað­ur­penna þegar þau koma í skóla­húsið. Því næst byrja þau á að búa til sína eigin bók og færa inn dag­bók­ar­skrif jafnt og þétt alla vik­una. Þau skrifa að sjálf­sögðu með fjað­ur­penn­anum og bleki í bók­ina. Eftir hádegi fara þau niður í fjöru og tína skeljar og kuð­unga og alls konar fjár­sjóði og síðan búa þau til lista­verk úr feng sínum og kynna það. Í lok dags­ins hengja þau hug­myndir sínar um frið á tré sem búið er að koma upp fyrir utan skóla­húsið.

Fyrir hádegi á þriðju­deg­inum mála börnin kort af Viðey og merkja inn mark­verða staði. Þau merkja einnig inn á kortið stað­inn þar sem þau ætla að fela fjár­sjóð­inn sinn á eyj­unni en þau koma með smá­dót að heiman til að fela utandyra. Þau fara síðan í rat­leik eftir hádegi til að kynn­ast eyj­unni betur. Það er farið á sögu­fræga staði svo sem að Frið­ar­súlu Yoko Ono og það er glens og gleði á leið­inni.

Á mið­viku­deg­inum safna börnin plöntum á leið­inni í skóla­húsið og læra nöfnin á þeim í leið­inni. Sumar eru síðan press­aðar til að setja þær í bæk­urnar en aðrar eru geymdar þar til þau skreyta merki sitt. Næst er farið ofan í fjöru og við kveikjum eld og þar baka börnin sitt eigið brauð. Þau tína kúmen og blóð­berg og þegar í skóla­húsið er komið er hitað kúmen- eða blóð­bergste fyrir þau sem það vilja. Börnin fara síðan í fjár­sjóðs­leit. Eftir hádegi hanna þau sitt eigið merki úr sjálf­harðn­andi leir og svo eru þurrk­aðar plöntur settar á merkin. Þau skrifa síðan skila­boð sem þau setja í flöskur og varpa síðan flösku­skeyt­unum í sjó­inn þegar þau eru á leið­inni í land. Í flösk­unum er frið­ar­boð­skapur.

Börnin semja sinn eigin leik­þátt á fimmtu­deg­inum og tengja hann við eyj­una og svo eru leik­ritin sýnd. Þau þæfa egg og búa til hreiður úr grasi. Að því loknu semja þau sinn eigin Við­eyj­ar­söng og búa til hljóð­færi úr pappa­kössum, steinum og snæri og lita síðan hljóð­færin. Að lokum er Við­eyj­ar­söng­ur­inn æfður með hljóð­færum.

Börnin safna saman kúm­eni í bréf­poka síð­asta dag­inn til að færa for­eldrum sínum. Þau fara í ver­manna­leiki, kynn­ast leikjum ver­manna sem voru í verum. Svo skreyta þau háls­men sín og grilla pylsur úti í hádeg­inu. Þá er það hljóm­sveita­ræf­ing og síðan fara þau að búa til sinn eigin fána úr lérefti og þrykkja blóm á hann. Mik­il­vægt er að þau taki frið­ar­boð­skap­inn með sér heim þannig að þau búa til sinn eigin frið­ar­sátt­mála sem þau und­ir­rita en í honum kemur fram hvernig þau vilja hafa heim­inn sinn. Síðan halda þau af stað í skrúð­göngu niður að bryggju með hljóð­færin, fán­ana, bæk­urnar, penn­ana og eggin. Það er mikil fram­leiðsla eftir vik­una. Þegar komið er á land úr ferj­unni spila þau og syngja sitt eigið Við­eyj­ar­lag fyrir for­eldra sína sem standa á bryggj­unni. Þetta er byggt upp á brjál­æð­is­legri sköpun alla vik­una ef maður getur sagt svo.“

Farið var í ýmsa leiki þessa daga og segir Ása Helga að lögð hafi verið áhersla á leiki sem köll­uðu ekki á keppni. „Það fannst okkur vera mik­il­vægt.“

Ása Helga segir að börnin séu almennt ánægð með nám­skeiðin og hafa sum þeirra sagt að þau ætli að fara aftur á nám­skeið næsta sumar. Mörg gull­kornin hafa verið sögð.

„Við skoð­uðum til dæmis Skúla­garð þar sem er verið að rækta ýmis­legt. Jurt var að koma upp úr mold­inni og þá sagði einn dreng­ur­inn: „Hér er að fæð­ast barn hjá þeim.“ Annar drengur var oft að sjúga putt­ann sem ger­ist stundum hjá krökkum. Þegar þau áttu að setja friðar­ósk sína á tréð þá kom hann til mín og bað mig um að koma með sér út í horn. Hann rétti mér þar kortið sitt og spurði hvort ég héldi að það væri allt í lagi að skrifa það sem þar stóð: „Kæra Yoko Ono, viltu hjálpa mér að hætta að sjúga putt­ann?“ Þetta var auð­vitað ein­læg spurn­ing og dásam­leg.“ Sorgin og áhyggj­urnar fylgja mörgum í Covid-heims­far­aldr­inum en svona ung börn þekkja Covid á sinn hátt með því að heyra um hann og hætt­una sem af veirunni stafar. „Við vorum einu sinni að segja frá Skúla fógeta sem dó í eyj­unni þegar hann var orð­inn gam­all maður. Þá spurði einn strákur hvort hann hafi dáið úr Covid. Skilj­an­lega. Þau eru svo rosa­lega í nútím­anum.“

Þetta er byggt upp á brjál­æð­is­legri sköpun alla vik­una ef maður getur sagt svo.

Falin perla

Ása Helga segir að gleði barn­anna við að fá að skapa og upp­götva sé eft­ir­minni­leg­ust eftir þessi nám­skeið. „Ein­kunn­ar­orð nám­skeiðs­ins voru: „Ég get, ég skal, ég vil“. Börnin skelltu sér í hvert verk­efnið á fætur öðru og hjálp­uð­ust að þegar því var að skipta. Það sem skap­að­ist eftir vik­una var þessi vin­átta á meðal barn­anna en flest þekkt­ust ekki neitt fyrir nám­skeiðin og þau skipt­ust sum á síma­núm­erum í lok nám­skeiðs. Þau voru bara svo glöð og það fannst mér vera svo gott. Mér fannst gaman að vera með krökk­unum; þetta var auð­vitað krefj­andi af því að þau voru að skapa allan dag­inn og við vorum alltaf að en hug­mynd­irnar þyrl­uð­ust upp varð­andi næsta sumar.“

Ása Helga segir að eftir sum­arið þyki sér óum­ræð­in­lega vænt um Viðey. „Mér finnst þessi eyja vera dásam­leg og hún þyrfti að kom­ast meira inn í hug fólks. Hún má ekki gleym­ast og þess vegna þarf að halda sögu hennar á lofti. Það þarf að gera meira fyrir þessa eyju. Fólk ætti helst að fara á hverju sumri út í Viðey. Eyjan er svo spenn­andi og hefur upp á svo margt að bjóða bæði hvað varðar nátt­úru og sögu. Það tekur bara um fimm mín­útur að sigla út í Viðey frá Skarfa­bakka.“

Ása Helga svarar ját­andi þegar hún er spurð hvort henni finn­ist hún vera komin í annan heim þegar hún er komin út í Viðey. „Það hverfur allt annað á meðan maður er þar. Það er ein­hver frið­sæld yfir eyj­unni sem maður fær beint í æð þegar maður kemur að bryggju. Fugla­lífið er fjöl­breytt og það er gaman að rölta þarna um og upp­lifa sög­una svo sem með því að lesa text­ann á skiltum sem búið er að koma þar upp með upp­lýs­ingum meðal ann­ars um húsin sem voru þar.“ Hún talar um lista­verkin í Viðey en þar eru tvö úti­lista­verk eftir heims­þekkta lista­menn; Áfangar eftir Richard Serra og Frið­ar­súlan eftir Yoko Ono. „Mér finnst alltaf þegar ég kem út í Viðey að ég þurfi að labba einn hring. Það er bara eitt­hvað við Viðey; ég get eig­in­lega ekki lýst því. Hún er bara svo dásam­leg. Viðey er falin perla.“

Það er ein­hver frið­sæld yfir eyj­unni sem maður fær beint í æð þegar maður kemur að bryggju.

Það á að njóta gleði

Ása Helga er leik­ari að mennt og vann árum saman við kennslu á mennta­vís­inda­sviði Háskóla Íslands. Þá hefur hún skrifað nokkrar bækur um kennslu­að­ferðir leik­listar og hvernig hægt er að nota leik­list í tengslum við náms­efni.

Margir muna án efa eftir Ásu Helgu sem öðrum umsjón­ar­manni Stund­ar­innar okkar á árunum 1982-1985. Hinn umsjón­ar­mað­ur­inn var Þor­steinn Mar­els­son. „Á þessum árum báðum við börnin um að vera kynnar; við vorum ekki í aðal­hlut­verki heldur börnin. Okkur fannst það mik­il­vægt.“ Karakt­er­inn Elías, sem Sigurður Sig­ur­jóns­son lék, var áber­andi í Stund­inni okkar og segir Ása Helga hann hafa verið „ógeðs­lega fynd­inn“. Að auki voru það Smjatt­patt­arnir og Þórður hús­vörður sem létu reglu­lega sjá sig.

Elías. Ása Helga er spurð hvað hafi verið eft­ir­minni­leg­ast varð­andi hann. „Það var þegar hann var að ræða um hvað hann hafði fengið í jóla­gjöf. Hann sagði að Magga móða hefði gefið honum ull­ar­nær­bol sem stakk svo mikið að hann þurfti að taka hann upp með töngum.“

Þetta minnir á Jón Odd og Jón Bjarna sem Guðrún Helga­dóttir gerði ógleym­an­lega en þeir voru ekki hrifnir af mjúkum pökkum frá frænku sinni. Ása Helga er spurð hvort hún gefi barna­börn­unum sínum mjúka eða harða pakka. „Ég gef hvoru tveggja svo ég hald­ist áfram á vin­sælda­list­anum,“ segir hún og hlær.

Ömmu­hlut­verkið er mik­il­vægt í huga Ásu Helgu. Hún fer oft í leiki með barna­börn­unum og segir að fólk eigi að leika sér út lífið. „Það á ekki að taka sig allt of alvar­lega. Það á að njóta og gleðj­ast.“

Varð­veita barnið í sjálfum sér.

Hún seg­ist varð­veita barnið í sjálfri sér. Alltaf.

Hún er spurð hvort barna­börn­unum finn­ist hún ekki vera æðis­leg amma.

„Það veit ég ekki, von­andi, ég reyni að gera mikið með þeim. Ég er nýbúin að fara með þeim í þrjúbíó þar sem við sáum Walt Disney-mynd. Það var gaman.“

Og þau fengu sér popp og kók.

Það á ekki að taka sig allt of alvar­lega. Það á að njóta og gleðj­ast.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu