Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Persónuleikinn mótast af þessum plánetum

Persónuleikinn mótast af þessum plánetum

Fyrir hvað standa pláneturnar í stjörnuspeki?

Ef ein­hver spyr þig í hvaða stjörnu­merki þú sért, veistu senni­lega svarið. Þú veist að öllum lík­indum hvort þú sért ljón, sporð­dreki eða eitt­hvað af hinum tíu merkj­unum. Þetta merki, sem flestir þekkja, er merkið sem sólin var stödd í þegar þú komst í heim­inn, sam­kvæmt stjörnu­spek­inni. Þarna byrjar og endar hins­vegar þekk­ing margra á stjörnu­speki. Það vill nefni­lega þannig til að fæð­ing okkar vefar heilt stjörnu­kort, þar sem hver pláneta er stödd í einu af merkj­unum tólf. Samkvæmt stjörnu­speki hefur stað­setn­ing allra þess­ara pláneta áhrif á per­sónu­leika okkar.

En hvaða þýð­ingu hefur hver og ein pláneta í stjörnu­korti okkar?

Í stjörnu­speki skipt­ast plánetur í tvo flokka: innri og ytri plánetur. Þær sem telj­ast til innri pláneta hafa mest með per­sónu­leika okkar og sjálfið að gera. Hér á eftir förum við yfir þýð­ingu allra innri plánet­anna í stjörnu­korti okkar.

Innri pláneturnar

Sól Merkið sem sólin er í þegar við fæð­umst er, eins og áður sagði, það merki sem algeng­ast er að fólk þekki. Sólin er okkar ytra sjálf, með­vit­und og egóið. Sólin stendur fyrir grunn­per­sónu­leika okkar og lífs­orku. Það má líta á sól­ina sem yfir­mann stjörnu­korts okkar. Við erum talin sitja vel í sjálfum okkur þegar við náum jafn­vægi í sól­ar­merki okkar. Sólin er rök­ræn og ráð­andi – hún er frekar hugur en hjarta. Í gegnum sól­ar­merkið okkar síast allar upp­lýs­ingar og áhrif ann­arra merkja í stjörnu­kort­inu. Orkan frá henni er úthverf (e. extroverted).

Tungl Á meðan orka sól­ar­innar er úthverf, er orka tungls­ins inn­hverf (e. introverted). Tunglið stendur fyrir innra sjálf okkar, til­finn­ingar og þrár. Það segir til um hvar og hvernig okkur líður best. Tunglið táknar inn­sæi okkar og hefur kven­læga (e. fem­inine) orku. Það er innra barn okkar og gefur til kynna hvar við erum við­kvæm. Tunglið þráir öryggi, en á meðan sólin er rök­ræn er tunglið órök­rænt. Tunglið er hjartað á móti huga sól­ar­innar. Sumir virð­ast stjórn­ast jafn­vel meira af tungli en sól, en það á sér­stak­lega við ef tunglið er í vatns­merki (krabba, sporð­dreka eða fiskum), eða ef það er í sterkri sam­stöðu við aðra mik­il­væga punkta í stjörnu­korti við­kom­andi.

Merkúr Eins og Merkúr, sendi­boði guð­anna, hefur plánetan Merkúr í stjörnu­speki mikið að gera með sam­skipti. Merkúr táknar það hvernig við tjáum okkur, lærum, störfum og eigum sam­skipti við aðra. Forvitni er alls­ráð­andi – Merkúr leit­ast við að vita og skilja, elskar að taka hluti/per­sónur/mál­efni í sundur og setja aftur saman. Merkúr er nem­and­inn, miðl­ar­inn, blaða­mað­ur­inn, rann­sókn­ar­lög­reglan. Merkúr stjórnar hinu tal­aða og rit­aða orði. Í nútíma­sam­fé­lagi er algengt að við kynn­umst Merkúri fólks í upp­hafi, í gegnum tölvu­póst­sam­skipti, í vinnu eða við aðrar form­legar aðstæður. Merkúr stjórnar því hvernig við komum hugs­unum okkar og hug­myndum í orð – hvernig við nálg­umst aðra og skipt­umst á hug­myndum.

Venus Það ætti ekki að koma á óvart að Venus í stjörnu­speki hefur mikið með ást­ina að gera. Hvernig við elskum og hverja við elskum. Orka Venusar er mjúk, kven­læg og djúp. Venus er líka tákn­ræn pláneta fyrir lífs­ins lystisemdir, þæg­indi og það sem veitir okkur ánægju. Venus stjórnar þokka, per­sónu­töfrum og feg­urð. Venus hefur skap­andi orku og segir til um okkar eigið list­fengi. Venus stjórnar því hvernig við nálg­umst ást­ar­sam­bönd. Ef fólk hefur sterkan Venus í stjörnu­korti sínu er það yfir­leitt frið­sælt.

Mars Ef Venus stjórnar ást­inni hlýtur það að gefa auga leið að Mars stjórnar… jú, kyn­lífi. Vissu­lega ekki bara kyn­lífi, en Mars hefur þó mikið með kynorku okkar að gera. Samkvæmt stjörnu­spek­inni segir Mars mikið til um hverjum við löð­umst að kyn­ferð­is­lega og hvernig við högum okkur sjálf sem kyn­verur. Fyrir marga er Venus og Mars órjúf­an­leg heild þegar kemur að því hvernig kyn­verur við erum, en aðrir stjórn­ast meira af annarri hvorri plánet­unni í róm­an­tískum sam­skiptum. Orka Mars telst karllæg í hefð­bund­inni stjörnu­speki og orku­stigið er hátt. Mars stjórnar því líka hvernig við reið­umst og gerum atlögu – orkan er hrá og bein­tengd frum­hvötum. Þegar við stjórn­umst af orku Mars erum við stað­föst, bein­skeytt og ævin­týra­gjörn. Ein­stak­lingur með sterkan Mars í stjörnu­korti sínu er yfir­leitt nokkuð her­skár – forð­ast í það minnsta ekki átök.

Meðal stjörnu­spek­inga í dag er nokkuð deilt um það hvort plánetan Júpíter til­heyri innri eða ytri plánetum í stjörnu­kortum. Hér verður sú leið farin að flokka Júpíter með ytri plánet­unum, þó Júpíter lendi þarna mitt á milli að mati höf­undar.

Meira um það síðar…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu