Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kanadamaðurinn Guy: Varð yfir sig ástfanginn af íslenskri konu og ákvað að elta hana til Íslands

Kanadamaðurinn Guy: Varð yfir sig ástfanginn af íslenskri konu og ákvað að elta hana til Íslands
Mynd úr einka­safni

Guy Conan Steward, kemur frá Kanada og er mennt­aður leik­ari, graf­ískur hönn­uður, kenn­ari og hefur kennt við Brú­ar­skóla í Reykja­vík í meira en ára­tug ásamt því að stunda list í hjá­verkum. Nú kennir hann leik­list við Landa­kots­skóla og er í fram­boði fyrir Vinstri Græna.

Guy segir í sam­tali við Mannlíf að það hafi reynst honum erfitt að upp­lifa hrunið en engu að síður var það einmitt þá sem hann sótti um íslenskan rík­is­borg­ara­rétt. Ástæðan var helst sú að hann taldi að eftir hrun, myndi Ísland leggja sig fram við að færa sig í átt að nor­ræna vel­ferð­ar­kerf­inu, en núna í stjórn­ar­tíð VG hefur sú vinna haf­ist.

„Íslenska fjöl­skyldan mín tók ein­stak­lega vel á móti mér þegar ég flutti til lands­ins, en það er ekki auð­velt fyrir alla aðflutta að kom­ast inn í sam­fé­lagið hér. Í Kanada er hefð fyrir því að taka vel á móti aðfluttu fólki, en á Íslandi eru fjöl­skyldu- og vina­tengsl alls­ráð­andi og það tekur tíma að rækta þannig tengsl.“

Fararbroddi á heimsvísu

Það sem kom helst á óvart hér á landi er hversu „úrræða­góðir Íslend­ingar eru þegar á reynir. Svo er auð­vitað mjög merki­legt að ekki stærra sam­fé­lag en Íslandi, geti staðið undir svo mörgu og verið jafn­vel í far­ar­broddi á heims­vísu á mörgum sviðum.“

Guy er lán­samur að fjöl­skyldan hans hér á Íslandi er náin og sam­hent og seg­ist hann vera í miklu sam­bandi við fjöl­skyld­una sína í Kanada og þeirra hjóna og hans fjöl­skyldu sem búa á Samsö í Danmörku. Konan hans heitir Hulda Karen Dan­í­els­dóttir og eiga þau þrjú börn og fjögur barna­börn.

Guy segir að það sem hafi mótað hann mest og sé þakk­lát­astur fyrir séu við­horf for­eldra sinna. „For­eldrar mínir hafa alltaf verið vinstri­s­inn­aðir aðgerða­sinnar. Þau tóku til að mynda þátt í stuðn­ingi við flótta­menn frá Chile þegar Salvador Allende var steypt þar af stóli og tóku á móti gestum frá mörgum heims­hornum í sam­eig­in­legri bar­áttu þeirra gegn Apartheid. Þau voru líka virk í verka­lýðs­hreyf­ing­unni og mál­efnum frum­byggja (e. indigenous people) svo fátt eitt sé nefnt. Pabbi var prestur í Bisk­upa­kirkj­unni, en mamma hefur unnið merki­legt starf á meðal Cree fólks­ins í norður Man­i­tó­bafylki og einnig í Úganda þar sem hún kom að upp­bygg­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Varð yfir sig ástfanginn

Guy er fæddur í Ont­arió­fylki í Kanada, en þar sem pabbi hans var prestur fluttu þau á milli staða og bjuggum til að mynda í Edmonton um tíma, þar sem pabbi hans var háskóla­prestur. Þegar hann var ung­lingur flutt­ust þau í frekar afskekktan bæ í norður Manitóba til að vera nálægt fjöl­skyldu mömmu hans, en stór hluti hennar býr í Winnipeg. Á ung­lings­ár­unum las hann nor­ræna goða­fræði og Íslend­inga­sögur í enskri þýð­ingu, en vissi lítið sem ekk­ert um nútíma Ísland. Þegar hann byrj­aði í list­námi við Man­i­tó­ba­há­skóla upp­götv­aði hann íslensku­deild háskól­ans sem Vestur-Íslend­ingar stofn­uðu á sínum tíma. Hann skráði sig í byrj­enda­nám­skeið í íslensku og fannst námið skemmti­legt. Þegar hann svo ætl­aði að snúa sér alfarið að list­nám­inu og hætta að stunda nám við íslensku­deild­ina, komst hann að því að Hulda Karen myndi kenna við deild­ina og hætti snar­lega við að hætta, enda var hann þá orð­inn yfir sig ást­fang­inn af henni, þótt hún vissi ekk­ert um það þá. Þau Hulda Karen fögn­uðu 25 ára brúð­kaups­af­mæli nýlega, en þau hafa verið saman í 32 ár.

„Svona er nú lífið skemmtilegt.“

Í gegnum íslensku­deild­ina og Huldu Karen kynnt­ist Guy íslenska sam­fé­lag­inu í Manitóba og öfl­ugum tengslum þess við Ísland. Afkom­endur Íslend­inga í Kanada eru virkir þátt­tak­endur í kanadísku sam­fé­lagi og margir hafa gert garð­inn frægan í listum, fræði­mennsku og stjórn­málum.

Þau hjónin ákváðu að flytja til Íslands og dvelja á land­inu í eitt til tvö ár, „en hér erum við enn, 27 árum seinna. Fyrstu tvö árin kenndum við bæði við Grunn­skól­ann á Hell­issandi og ég vann líka í Sjáv­ar­iðj­unni á Rifi. Það var mjög vel tekið á móti okkur á Hell­issandi og fólkið þar var ynd­is­legt. Daginn áður en við fluttum þaðan til Reykja­víkur, þar sem ég ætl­aði að stunda nám við Mynd­lista- og hand­íða­skól­ann og Hulda Karen að kenna ensku og leik­list í Borg­ar­holts­skóla, giftum við okkur uppi á Snæ­fellsjökli. Dóttir okkar var skírð upp úr jökl­inum af presti í fullum skrúða og allt í kringum okkur voru vinir og fjöl­skylda. Við fórum með alla okkar erlendu gesti á Snæ­fells­nesið. Margt hefur breyst frá því við bjuggum þar. Nú er þar Þjóð­garð­ur­inn Snæ­fells­jök­ull, Frysti­klef­inn á Rifi og frá­bær kaffi- og veit­inga­hús og enn eigum við þar vini sem alltaf er jafn­gott að hitta.“

Guy vinnur nú að MA loka­verk­efni í Hagnýtri menn­ing­ar­miðlun í HÍ. Verk­efnið heitir Scriptorium sem er staður og stund fyrir ungt fólk til að læra kalli­grafíu, teikna og stunda djúp­lestur. Mark­miðið með Scriptorium er ann­ars vegar að vega upp á móti hvat­vís­inni sem skjám­iðlar verð­launa og hins vegar að efla læsi og list­ræna sköpun ungs fólks.

Þátttaka í kosn­ing­ar­bar­átt­unni er efst á baugi og þegar tími vinnst til vinnur hann að eigin list­sköpun og að breiða út Scriptorium mód­elið. „Svo er ég alltaf jafn spenntur fyrir því að kenna leik­list og eyða tíma með fjöl­skyld­unni, ekki síst barna­börn­unum.“

„Nú er komið að skulda­dögum í umhverf­is­málum. Ef fram heldur sem horfir þá eru það afkom­endur okkar sem þurfa að standa skil á greiðslu þeirrar skuldar. Áður en ég er allur, vil ég vinna að því að létta þá skulda­byrgði eftir fremsta megni. Í mínum huga er áhrifa­mesta leiðin að því mark­miði póli­tísk for­ysta Katrínar Jak­obs­dóttur. Við getum náð umhverf­is­mark­miðum okkar og jafn­framt notið lífs­gæða, en við erum komin út á ystu nöf í þeim efnum. Auk umhverf­is­mála er ég sér­stakur tals­maður vetn­is­hag­kerfis sem ég tel stystu leið­ina til að hægja á hlýnun jarðar og menn­ing­ar­mála í víðum skiln­ingi mér hug­leikin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu