Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Inga Sæland hefur upplifað sára fátækt á eigin skinni: „Jólunum fylgdi alltaf hræðilegur kvíði“.

Inga Sæland hefur upplifað sára fátækt á eigin skinni: „Jólunum fylgdi alltaf hræðilegur kvíði“.

,,Þeir áttu það skilið,‘‘ segir Inga Sæland, aðspurð um þing­menn­ina tvo sem hún rak eftir uppi­standið sem varð á Klaust­ur­bar þar sem hún var ein þeirra sem fékk for­mæl­ingar drukk­inna þing­manna. Klaust­urs­málið fræga fór alls ekki vel í Ingu en voru þeir sem áttu í hlut reknir úr flokknum. Hún rak hálfan þing­flokk­inn. Enn þann dag í dag talar hún ekki við þing­menn­ina sem áttu í hlut og seg­ist hún ekk­ert hafa við þá að segja.

Inga Sæland sett­ist niður og ræddi málin í Mann­lífið með Reyni Trausta­syni vik­unni. Snert var á mörgum málum meðal ann­ars fátækt sem Inga hefur upp­lifað á eigin skinni.
Aðspurð hvernig væri að standa í skot­lín­unni fyrir kom­andi kosn­ingar segir Inga það vissu­lega öðru­vísi.
,,Það er um leið gef­andi‘‘ segir hún.
Inga kveðst ekki vera áhyggju­full yfir því fylgi sem mælist hefur í könn­unum og seg­ist alls ekki ergja sig.
,,Ef fólk telur að sé ekki þörf fyrir mig þá hef ég hugs­an­lega reiknað rangt‘‘ segir Inga og bætir við að þá væri fátæktin á Íslandi lík­lega ekki eins slæm og hún teldi.
,,Það væri náttu­lega bara ynd­is­legt‘‘.

En hver er Inga Sæland:
„Inga Sæland er bara amma og mamma, fædd og upp­alin á Trölla­skaga í fal­legum fjalla­sal‘‘.
Inga kveðst vera bar­áttu­kona og yfir­leitt bara syngj­andi kát en hefur hún mikla unun af því að syngja.

Inga er spurð út í fjöl­skyld­una og bernsku­árin. Hún ólst upp við mikla fátækt. Fátækt sem hún þurfti svo að upp­lifa aftur síðar á lífs­leið­inni en þá hafði hún sjálf eign­ast börn.
Hver er sárasta fátæktin sé sem hún hafi séð. Eftir dálitla umhugsun svarar Inga að það sé lík­lega hjá henni sjálfri.

„Ætli það sé ekki bara hjá sjálfri mér,‘‘ segir Inga sem ólst hún upp í 40-50 fem­etra íbúð. Sex manna fjöl­skylda bjó þar.
„Það var aldrei baðkar eða sturta,‘‘ segur hún og bætir við að börnin hafi baðað sig í bala. Sjaldn­ast hafi þau fengið leik­föng eða neitt sem tald­ist óþarfi en á jól­unum fengu þau sokka og slíkt í gjöf. Inga tekur þó fram að alltaf hafi þau fengið nóg að borða og aldrei var skortur á mat á litla heim­il­inu.

„Mamma var alltaf til­búin með hafra­graut á morgn­anna. Svo fékk maður osta­brauð og lifrapylsu“.
Inga segir að hjól eða skautar hafi verið hlutir sem þau börnin hafi þurft að safna sér fyrir sjálf. Þá hafi hún passað börn fyrir smott­erís pen­ing eða farið út í búð fyrir ömmu og afa en hún hafi fljótt lært að bjarga sér sjálf.

Eiginmaður með sixpack

Svo kynnt­ist Inga mann­inum sínum, honum Óla Má sem hún er hæstá­nægð með.
,,Það er þarna ennþá sixpackið,‘‘ segir hún hlæj­andi en er Óli sjó­maður og mik­ill íþrótta­maður. Þegar þau fluttu til Reykja­víkur árið 1994 lenti Óli í því óhappi að hand­leggs­brotna. Það áfall mót­aði næstu ár í lífi þeirra hjóna. Á þessum tíma höfðu þau stofnað sína eigin fjöl­skyldu og bjuggu saman. Í kjöl­far slyss­ins sem Óli varð fyrir þurfti fjöl­skyldan að ganga í gegnum gríð­ar­lega erf­iða tíma en Inga seg­ist viss um að mörg mis­tök hafi verið gerð þegar Óli hennar hand­leggs­brotn­aði og bat­inn hafi verið erf­iður. Í heild­ina hafi bat­inn sem undir venju­legum kring­um­stæðum er nokkrar vikur tekið sex ár.
„Þá þurfti maður að horfa upp á það að geta ekki veitt börn­unum sínum það sem almennt tald­ist eðli­legt,‘‘ segir Inga.
Þau gátu ekki borgað tóm­stundir og íþróttir fyrir börnin og mat­ur­inn var ekki alltaf upp á marga fiska.

„Við höfðum kjöt kannski einu sinni í viku.‘‘  Enda dýrt hrá­efni sem þau höfðu ekki efni á á þessum tíma.

„Það sem börnin okkar lærðu af þessum tíma er að þau eru öll rosa­lega nægju­söm og sátt í sér í raun­inni“. Þá hafi börnin aldrei gert neinar kröfur til þeirra þrátt fyrir að þau hafi séð að aðstæð­urnar væru öðru­vísi hjá öðrum börnum.
„Þau voru bara ynd­is­leg‘‘.

Jólin erfið

Inga segir að jólin hafi verið sér­stak­lega erf­iður tími en þrátt fyrir að fjöl­skyldan hafi alltaf verið saman yfir hátíð­arnar, haft það nota­legt, spilað og fleira eins og van­inn er á mörgum heim­ilum. „Jólunum fylgdi alltaf hræði­legur kvíði“.

Inga segir að þá hafi hana langað til þess að geta gert meira en það hafi ein­fald­lega ekki verið hægt vegna fátæktar.

Þá hafi áhyggjur af reikn­ingum verið mjög miklar og þurftu þau oft að færa reikn­ing­ana til næsta mán­aðar til þess að geta borgað það allra nauð­syn­leg­asta eins og hita og raf­magn.
,,Svo er það nátt­ur­lega alltaf stoltið,‘‘ segir Inga og bætir við að það hafi reynst henni erfitt að ætla að fara að betla pen­ing af öðru fólki fyrir mat.

Inga segir að gríð­ar­lega erfitt fyrir fólk að æta að bjarga sér þegar fátæktin er orðin mikil. Fólk grípur til örþrifa­ráða og notar kredit­kort sem erfitt er að borga til baka. Tekur jafn­vel smá­lán. Segist hún þekkja vel þá stöðu að borga upp kredit­korta­reikn­ing um mán­að­ar­mót og eiga aldrei neitt eftir.

Stofnaði flokk

Það var einn dag, þegar Inga sá skoð­ana­könnun þar sem kom fram að  9,1 pró­sent íslenskra barna liði mis­mik­inn skort, að hún fékk nóg.
„Hingað og ekki lengra sagði ég‘‘. Hún til­kynnti mann­inum sínum að hún ætl­aði að stofna stjór­mála­flokk. Eig­in­maður hennar, sem hún lýsir sem rólyndi­manni, hafði ekki tekið þessum orðum neitt voða­lega alvar­lega og jánk­aði því bros­andi.

Inga fór í kjöl­farið að vinna hörðum höndum að því að stofna flokk en á þessum tíma var hún í laga­námi, á þriðja ári.
„Ég ætl­aði ekk­ert að gera þetta,‘‘ segir hún en kveðst samt sem áður alltaf hafa ætlað að hjálpa þeim sem þurftu á því að halda, þeim sem minna mega sín.
Inga segir það athygl­is­vert að nú rétt fyrir kosn­ingar virð­ist allir flokkar vera glað­vakn­aðir þegar kemur að þeim málum sem hún hefur barist fyrir, fátækt­inni.
„Allt sem við erum að glíma við núna eru bara mann­anna verk‘‘.

Inga segir það hið besta mál að flokkar vilji taka þennan slag með henni en hún treysti þó í raun­inni bara einum flokki til þess að taka þennan róður með sér.
,,Pírötum,‘‘ svarar hún ákveðin.

„Ég er fyrsti Íslands­meist­ar­inn í karíókí‘‘

Inga býr í Graf­ar­holti og unir sér vel þar. Hún er mikil tón­list­ar­kona og hefur unun að því að syngja sjálf.

„Ég var ein­fari og hall­aði mér mikið að tón­list­inni,‘‘ bætir hún við. Hæun hlær og rifjar upp gamla sigra á Ölveri.
„Ég er fyrsti íslands­meist­ar­inn í karíókí‘‘.
Það var ekki eina söngvakeppnin sem Inga tók þátt í. Vinir hennar skráðu hana í X factor sem hún segir hafa verið algjört ævin­týri.
Tón­list­arsmekkur Ingu er fjöl­breyttur. Hún hlustar á allt frá Cranberries til Metallicu. Þá finn­ist henni klass­ísk tón­list alltaf ákaf­lega fal­leg.
Inga var í hljóm­sveit á sinni yngri árum á Trölla­skaga, meira að segja fleiri en einni segir hún. Þá hafi það þekkst vel að smá­bæir út á landi hafi átt sínar hljóm­sveitir til þess að spila við hin ýmsu tæki­færi. Það hafi henni þótt afskap­lega gaman og  heyra má í rödd Ingu að þetta hafi verið góðir tímar.
Inga er spurð hvort það sé ekki rétt að hún sé metn­að­ar­gjörn og jafn­vel með svo­lítið stórt skap sem almenn­ingur hafi séð í tengslum við Klaust­urs­málið fræga.
„Já, ég hugsa það sé þannig,‘‘ segir Inga Sæland.

Viðtalið sem Reynir Trausta­son tók við Ingu Sæland má finna í heild sinni á síðu Mannlífs en þar fjallar Inga um Flokk fólks­ins, fjöl­skyld­una og bar­áttu­mál sín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu