Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eva Ruza reynir að hafa flækjustigið sem minnst: „Ég get orðið rosalega matsár“

Eva Ruza reynir að hafa flækjustigið sem minnst: „Ég get orðið rosalega matsár“
Eva Ruza Mynd: Biggi Breiðfjörð

„Ég vil bara hafa mat­inn minn bragð­góðan og ég get orðið rosa­lega matsár. Sem er sér­stakt, þar sem elda­mennskan mín hefur ekki alltaf heppn­ast og hafa aðrir þurft að þjást vegna hennar. Ég verð samt aldrei matsár við sjálfan mig. En ef ein­hver annar eldar vondan mat, þá er það allt önnur saga og þá verður Ruzan ekki sátt.“

Fékk ekki sam­hæf­ingu í vöggu­gjöf
Eva Ruza, þús­und­fjala­smiður er Mat­gæð­ingur Mannlífs þessa vik­una. Eva seg­ist vera allt í senn ham­fara­kokkur, ástríðu­kokkur, brussu­kokkur, smá subbu­kokkur og inn á milli góður kokkur.

„Mér var ekki gefin sam­hæf­ing lík­am­ans í vöggu­gjöf, þannig að það þvælist stundum fyrir

Ljós­mynd­ari: Þorgeir Ólafsson

mér í elda­mennsk­unni. Ég er nýbúin að möl­brjóta lok á upp­á­halds­pott­inum mínum og skil ekk­ert hvernig það gerð­ist. Mér líður eins og ég hafi fleygt því í gólfið. Sam­hæf­ing lík­am­ans um að kenna. Hend­urnar voru ekki að tala saman.“

Eva seg­ist halda það að hún hafi lag­ast mikið þegar kemur að elda­mennsk­unni;

„en svo byrja ég að elda og þá kemur í ljós að ég er bara alls ekk­ert búin að lag­ast. Ég elska samt rosa­lega mikið að elda og finnst ekk­ert skemmti­legra en að dunda mér við að elda og und­ir­búa. Eldhúsið og Siggi mað­ur­inn minn, eru ekki alveg eins hrifin af upp­á­tækj­unum mínum því það er alltaf eins og hita­belt­is­stormur hafi flogið inn um eld­húsið eftir að ég elda…en ég meina ef mat­ur­inn heppn­ast, þá er það það sem skiptir máli. Svo tekur upp­þvotta­vélin og tuskan við rest­inni.“

Mastera rétt­inn
Um þessar mundir eru það asískar núðlur með nauta­þynnum sem hún Eva upp­götv­aði hjá henni Berg­lindi Hreiðars á gott­eri.is sem er í upp­á­halds.

„Ég er orðin klár­ust í heimi að elda þær og hef smá áhyggjur af því að fjöl­skyldan fái leið á þessum rétt. Það væri pirr­andi því ég er búin að mastera hann. En á meðan þau kvarta ekki, þá held ég bara áfram að elda hann.“

Á týpískum degi í lífi Evu fær hún sér alltaf hreina AB mjólk og múslí í morg­un­mat og hún seg­ist elska það alltaf jafn mikið. Í hádeg­inu þá er ekk­ert betra en grænn smoothie. Í smoothie setur hún ban­ana, epli, spínati, sítrónu, frosnu mangó, engi­fer, dass af vatni og dass af djús; „mixa í drasl og voila. Mjög ferskur og góður.“

Kvöld­mat­ur­inn er frekar venju­legur og reynir Eva á virkum dögum að vera ekk­ert að flækja hlut­ina neitt svaka­lega. Kjúlli, spag­hetti, fiskur og þetta týpíska verður oft­ast fyrir val­inu.

„Ég hef alltaf verið með­vituð um hvað ég borða og hvað ég gef fjöll­unni að borða, þannig að ég reyni að hafa þetta hollt og gott og reyni að hafa flækju­stigið sem minnst.“

Vill ekki mat sem hún hefur ekki bragðað áður

Mynd úr einka­safni Evu Ruza

Eva seg­ist vera með frekar ein­falda bragð­lauka en hún vilji alls ekki sterkan mat, ekki of krydd­aðan og hún borða ekk­ert sem hún veit ekki nú þegar hvernig bragð­ast.

„Ég byrj­aði ekki að borða tómata og sveppi fyrr en ég var tví­tug, held ég. Mér fannst svo ógeðs­leg áferðin á þeim og mér fannst þeir ,,virka“ svo vondir. Greyið mamma þurfti alltaf að sigta sveppa­súpu fyrir mig á jól­unum svo að ég myndi borða hana. Hef samt aðeins þroskast í dag og borða sveppi og tómata eins og eng­inn sé morg­un­dag­ur­inn. Ég hljóma næstum því eins og 12 ára sonur minn núna.“

Skemmti­legt er frá því að segja að eitt skiptið eld­aði Eva kjúkling og franskar með upp­þvotta­bursta. Þau hjónin voru nýflutt í fyrstu íbúð­ina sína og buðu bestu vin­konu í mat.

„Ég ætl­aði að vera rosa grand á því og elda heilan kjúkling og fröllur í fyrsta sinn. Svo sitjum við inn í stofu á meðan mat­ur­inn mallar og Auður vin­kona mín segir; ,,það er rosa­leg bruna­plast lykt hérna“ . Ham­fara­kokk­ur­inn var að sjálf­sögðu ekki búinn að finna neina lykt. En við förum inn í eld­hús og kíkjum inn í ofn­inn. Þá gaus þessi rosa­lega lykt beint i fésið á okkur. Ég ríf plöt­una út úr ofn­inum. Hangir ekki hel­vítis upp­þvotta­burst­inn neðan úr plöt­unni allur snar­bráðn­aður fastur við plöt­una. Þá hafði ég kippt honum óvart með þegar ég setti plöt­una í ofn­inn og var búin að elda hann í rúman klukku­tíma. Kjúkling­ur­inn var hins vegar bragð­góður og engum varð meint af…nema burst­anum. Ég not­aði hann samt til að vaska upp eftir kvöldið. Virkaði fínt. Mæli samt ekki með að elda þá.“

Asískar núðlur

Fyrir 4-6 manns

  • 375 g núðlur (6 „blocks“)
  • 500 g nauta­kjöt
  • Brokkoli­haus
  • 4-5 gul­rætur
  • ½ blað­laukur
  • Kikkoman soyasósa
  • Kikkoman ter­i­yaki sósa
  • Hoisin sósa
  • Sweet chili sósa
  • Ólífu­olía
  • Salt, pipar, hvít­lauks­duft
  • 100 g ristaðar og salt­aðar kasjú­hnetur

Aðferð

  1. Grillið/eldið nauta­lund­ina og hvílið á meðan þið útbúið núðl­urnar.
  2. Skerið brokkoli í bita og lauk og gul­rætur í strimla.
  3. Steikið brokkoli og gul­rætur á með­al­háum hita upp úr vel af ólífu­olíu í stutta stund. Hellið 4 msk af vatni og 2 msk af soyasósu á pönn­una og hrærið vel í þar til vök­vinn gufar upp.
  4. Bætið þá lauknum saman við ásamt meira af ólífu­olíu og kryddið til með salti, pipar og hvít­lauks­dufti.
  5. Blandið á meðan saman í skál 6 msk af Hoisin sósu, 2 msk soyasósu, 2 msk ter­i­yaki og 4 msk sweet chili sósu og hellið yfir græn­metið.
  6. Sneiðið kjötið í þunna strimla og blandið saman við.
  7. Sjóðið núðl­urnar sam­kvæmt leið­bein­ingum á pakka og hrærið vel saman við í lokin, toppið með kasjú­hnetum.

Smelltu hér til að lesa allt um málið í brak­andi fesku helg­ar­blaði eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi