Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Grafarþögn hjá Gæslunni – Þetta eru spurningarnar sem Georg vill ekki svara

Grafarþögn hjá Gæslunni – Þetta eru spurningarnar sem Georg vill ekki svara

Georg Kr. Lárusson, for­stjóri Land­helg­is­gæsl­unnar, neitar að ræða við Mannlíf um meint ofbeld­is­brot, ein­eltiskúltur og nið­ur­lægj­andi hegðun í garð kven­kyns starfs­manna innan skipa­deild­ar­innar. Í tvær vikur hefur blaða­maður reynt að fá sam­tal við for­stjór­ann og fá svör við spurn­ingum, en það hefur reynst ómögu­legt og lætur Georg ekki ná í sig.

Fyrir tveimur vikum upp­lýsti Mannlíf, fyrstur fjöl­miðla um meint kyn­ferð­is­legt áreiti skip­herra Land­helg­is­gæsl­unnar á hendur und­ir­manna sinna.

Lang­flestum spurn­ingum Mannlífs hefur hins vegar ekki verið svarað af hálfu Gæsl­unnar, hvorki af hálfu for­stjór­ans né upp­lýs­inga­full­trú­ans, Ásgeirs Erlends­sonar. Af öllum sam­skiptum fjöl­miðl­is­ins við starfs­menn Gæsl­unnar er ljóst að spurn­ingar sem tengj­ast meintu kyn­ferð­is­legu áreiti innan vinnu­stað­ar­ins eru illa séðar og hefur Ásgeir ítrekað borið fyrir sig trún­aði. Það er, hann geti ekki rætt þessi mál.

Á borði upp­lýs­inga­full­trú­ans hafa spurn­ingar lengi legið og nú er orðið ljóst að Georg neitar að svara þeim líka. Ásgeir svarar því einu til að hann geti ekki tjáð sig um ein­staka mál, sem er algengt svar þegar menn eru spurðir óþægi­legra spurn­inga. Benti Ásgeir svari sínu til stuðn­ings, á stefnu Land­helg­is­gæsl­unnar er kemur að ein­elti og ofbeldi á vinnu­stað. Þar kemur fram að gæta þurfi trún­aðar við þol­anda og ger­anda í málum sem gætu komið upp.

Sjá einnig: Þetta er skip­herra Gæsl­unnar sem sendur var í leyfi – Meint kyn­ferð­is­leg áreitni til rann­sóknar

Spurn­ingar blaða­manns snéru aftur á móti flestar um við­brögð Gæsl­unnar við eldri málum, þessu nýja máli sem teng­ist

einum af skip­herrum Land­helg­is­gæsl­unnar

, og voru ekki á þann hátt að svar við þeim gæfu upp við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar máls­að­ila.

Í vik­unni reyndi blaða­maður svo enn og aftur að fá sam­band við for­stjóra Gæsl­unnar, Georg Kr. Lárusson, svo hægt væri að leggja fyrir hann spurn­ingar er varða við­brögð Gæsl­unnar við mál­unum sem komu upp nýlega sem og gömul mál. Blaða­manni var neitað um sam­band við for­stjór­ann, fékk heldur ekki upp­gefið net­fang hjá Georgi en bent á að senda rit­ara hans póst. Í póst­inum sem sendur var á rit­ar­ann var það tekið skýrt fram að spurn­ing­unum væri beint til Georgs for­stjóra.

Póst­ur­inn var hins vegar áfram­sendur á upp­lýs­inga­full­trú­ann Ásgeir sem svar­aði engum spurn­ingum, vís­aði ein­göngu til fyrri svara. Þegar blaða­maður svar­aði því til að erindið hafi ekki verið ætlað honum, heldur Georgi fékk hann svör frá upp­lýs­inga­full­trú­anum seinna um kvöldið. „Þetta er svar Land­helg­is­gæsl­unnar við fyr­ir­spurn­inni.“

Það verður að telj­ast alvar­legt að for­stjóri rík­is­stofn­unar þori ekki að svara spurn­ingum fjöl­miðla um meint ofbeld­is­brot innan stofn­un­ar­innar og feli sig á bak­við trúnað, þegar spurn­ing­arnar eru flestar almenns eðlis, um við­brögð og gang rann­sóknar.

Hér fyrir neðan eru spurn­ing­arnar sem Georg þorir ekki að svara:

1. Hverjir rann­saka meint kyn­ferð­is­brot skip­herr­ans Thorben Lund?
2. Hvaða fag­að­ilar hafa komið að mál­inu?
3. Hafa meintir þolendur fengið hjálp, til dæmis frá Stíga­mótum?
4. Í hverju fólst sáttin í eldri málum Gæsl­unnar og hvernig voru málin unnin?
5. Í eldri málum tengdum kyn­ferð­is­legri áreitni, voru þá þolendur og ger­endur leiddir saman á sátt­ar­fund, ef svo er, hver stýrði þeim sátt­ar­fundum og hverjir voru við­staddir. Var fag­að­ili á staðnum?
6. Eru þessi mál sem komið hafa upp ein­ungis tengd skipa­deild Land­helg­is­gæsl­unnar eða tengj­ast þau öðrum deildum Gæsl­unnar?
7. Hafa komið upp svipuð mál í Flug­deild Land­helg­is­gæsl­unnar?
8. Hafa borist kvart­anir vegna ein­eltis inn á borð Gæsl­unnar? Ef svo er, hvernig var tekið á þeim málum?
9. Hefur verið kvartað undan Thorbeni Lund vegna ein­eltis, áfeng­is­drykkju og/eða ann­arra mála?
10. Ertu sáttur við að innan Land­helg­is­gæsl­unnar þrí­fist áreitis og ein­elt­is­menn­ing líkt og fram hefur komið í sam­tali mínu við aðila tengdum Gæslunni, bæði nafn­greindum og ónafn­greindum?
11. Nú hef ég heyrt að mikil orka hafi farið í það hjá Land­helg­is­gæsl­unni, síðan Mannlíf sagði frá kyn­ferð­is­legri áreitni sem á að hafa átt sér stað, að finna upp­ljóstr­ara innan Gæsl­unnar, í stað þess að reyna að upp­ræta óæski­lega hegðun innan Gæsl­unnar. Er það satt?
12. Hvernig miðar rann­sókn­inni á meintum brotum Thorbens Lund?
13. Eru kon­urnar sem saka Thorben Lund enn við störf hjá Land­helg­is­gæsl­unni?
14. Mun Thorben Lund fá aftur stöðu sem fastur skip­herra hjá Land­helg­is­gæsl­unni ef hann reyn­ist hafa áreitt und­ir­menn sína kyn­ferð­is­lega?

Smelltu hér til að lesa allt um málið í brak­andi fesku helg­ar­blaði eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi