Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segja konur áreittar og niðurlægðar á skipum Landhelgisgæslunnar

Segja konur áreittar og niðurlægðar á skipum Landhelgisgæslunnar
Land­helg­is­gæslan – Þór

Mannlíf hefur eftir áreið­an­legum heim­ildum úr nokkrum áttum, að innan sjó­deildar Land­helg­is­gæsl­unnar hafi við­geng­ist ein­elti og kyn­ferð­is­leg áreitni gagn­vart kven­kyns starfs­mönnum. Margar hafi hrökkl­ast frá Gæslunni í gegnum tíð­ina eða verið sagt upp.

Einn við­mæl­andi Mannlífs lýsir ástand­inu þannig að konur séu þar ítrekað áreittar kyn­ferð­is­lega og teknar af þeim laumu­myndir á far­síma, við lík­ams­rækt um borð. Þeim myndum sé svo deilt á milli karl­kyns skip­verja. Annar við­mæl­andi vitnar um að kvæntir yfir­menn séu að fá lægra settar konur um borð upp í brú til sín, til að daðra og „klappa þeim“ og þær þori ekki öðru en láta það við­gang­ast, af hræðslu við að deila við skip­herr­ann. Einnig tíðk­ist áfeng­is­neysla skip­verja um borð og að yfir­menn líti fram­hjá því.

Jónína Þórunn Hansen vann í tæpt ár hjá sjó­deild Land­helg­is­gæsl­unnar og var til­búin að koma fram undir nafni og segja frá því sem hún varð vitni að. Nefndi hún að hún hefði ítrekað komið að kven­kyns sam­starfs­fé­laga sínum hágrát­andi. „Vegna þess að henni fannst hún verið snið­gengin og úti­lokuð frá umhverf­inu,“ sagði Jónína við blaða­mann Mannlífs og bætti við „og ég reyndi bara að stappa í henni stál­inu og sagði henni að láta ekki nokkurn mann sjá sig grenja svona.“

Þá sagði Jónína að umtalið um aðra konu sem þar starf­aði hafi verið ljótt. „Hvernig þeir töl­uðu um laus­lætið í henni og hún væri að sofa hjá og reyna að skríða upp í bælið hjá mönnum,“ sagði Jónína.

„Hún er ekki gift kona en manni kemur bara ekki við hvar hún hendir brók­unum niður.“ Jónínu fannst það hvernig talað var um þessa konu vera svaka­legt og niðr­andi. „Konur hjá Gæslunni eru oft snið­gengnar, þær eiga ekk­ert að kunna og ekk­ert að geta,“ bætti hún við.

Sjálf sagð­ist Jónína aldrei hafa lent í neinu slæmu hjá sjó­deild Land­helg­is­gæsl­unnar en hafi orðið vitni að þessum ofan­greindu dæmum og bætti við að einn ungur maður hafi einnig lent í miklu ein­elti. „Af því að hann átti mömmu sem hafði unnið hjá gæsl­unni sem lög­maður, bara vegna þessa tengsla var komið öðru­vísi fram við hann.“

Hann hafi svo hrökkl­ast úr starfi.

Þá segir enn einn heim­ild­ar­maður Mannlífs að hann geti stað­fest „óðeðli­lega hegðun innan sjó­deildar Land­helg­is­gæsl­unnar.“ Þá segir hann enn­fremur að það sé erfitt fyrir konur að vinna þarna. „Þær falla bara í skugg­ann og eiga erfitt með að kom­ast að og hafa lít­inn stuðn­ing.“

Lestu allt um málið og meira til í brak­andi fersku helg­ar­blaði Mannlífs hér eða flettu blað­inu hér fyrir neðan: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum