Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórir Gröndal vill leggja niður ættarnöfn: „Mér ferst kannski ekki að vera að gagnrýna“

Þórir Gröndal vill leggja niður ættarnöfn: „Mér ferst kannski ekki að vera að gagnrýna“

Morg­un­blaðið birti í dag aðsenda greina eftir Þóri S. Gröndal, fyrr­ver­andi fisk­sala og ræð­is­manns í Ameríku, með fyr­ir­sögn­inni Blake Sasisson. Gagn­rýnir hann ný íslensk manna­nöfn og stingur upp á að ætt­ar­nöfn verði lögð niður á Íslandi.

Þórir hefur grein sína á að útskýra fyr­ir­sögn­ina. „Margir les­endur velta eflaust vöngum
og botna ekk­ert í fyr­ir­sögn þessa grein­ar­stúfs. Hún er nýtt lög­legt íslenskt manns­nafn.“ Næst segir hann að nýlega hafi Manna­nafna­nefnd sam­þykkt 23 ný íslensk nöfn, tvö þeirra séu í titl­inum. „Þegar svein­barn, sem nú væri skírt einu af nýju nöfn­unum, Sasi, full­orðn­ast
og fær sér konu og þau eign­ast dreng, sem þau skíra Blake, sem er eitt þeirra nýju, verður til manns­nafnið í fyr­ir­sögn­inni.“

Þá telur Þórir upp nokkur af nýju íslensku kvenna­nöfn­unum. „Nýju kvennöfnin, 11 að tölu, eru mörg furðu­leg og ill­skilj­an­leg fyrir gaml­ingja eins og mig. Meðal þeirra eru heitin Manley, Gjóska, Jasmin, Lilith, Vopna og Degen.“ Auk­in­heldur nefnir Þórir það sem hann kallar rúsin­una í pylsu­endandum, 4 ný kyn­laus nöfn, þau Villi­ljós, Sverð, Alpha og
Snæ. „Ég er ekki nógu vel að mér í þessum kyn­málum og því vaknar spurn­ing: Geta for­eldrar strax séð á nýfæddu barni hvort það er kyn­hlut­laust? Ég hefi alltaf haldið að
það kæmi í ljós seinna.“

Þórir S. Gröndal

Þóri fannst allt ein­fald­ara áður fyrr þar sem lang­flest unga­börn hlutu nöfn sem höfðu verið notuð í árhund­ruð á Íslandi. Þó seg­ist hann kannski ekki eiga að vera að gagn­rýna nýjar nafn­giftir. „Mér ferst kannski ekki að vera að gagn­rýna nýjar nafn­giftir. Þótt þessi mál hafi verið hefð­bundn­ari í gamla daga bar við að for­eldrar skelltu á börn sín ýmsum óvenju­legum nöfnum.“ Segir Þórir að sum börnin hafi þjáðst fyrir nafn­gift sína og nefnir sem dæmi frænda sinn sem hlaut nafnið Karl Marx en fað­ir­inn var mik­ill aðdá­andi rúss­nesku bylt­ing­ar­innar. Þá fékk móðir Þóris nafnið Mikk­el­ína María og var Þóri strítt mikið í skóla vegna nafn­giftar móður sinnar. „Krakkar geta verið grimmir og ég tók þetta nærri mér, en sagði mömmu aldrei af því.“

Því næst víkur Þórir að þeirri stað­reynd að Ísland hafi ákveðna sér­stöðu í heim­inum þegar kemur að nafn­giftum. „Ísland, sem hefir sér­stöðu á svo mörgum sviðum, er eitt fárra landa í heim­inum þar sem börn taka nafn for­eldris, langoft­ast föður, sem eft­ir­nafn og bæta við
dóttir eða sonur. Í flestum vest­rænum löndum gilda ætt­ar­nöfn og allir í einni fjöl­skyldu, ætt­lið eftir ætt­lið, bera sama eft­ir­nafnið.“ En nú segir hann að þessi regla okkar eigi í vök að verj­ast. Segir hann að fyrir löngu hafi verið tekin upp nokkur ætt­ar­nöfn á Íslandi, oft að dönskum sið. „Af og til hafa yfir­völdin reynt að sporna við nýjum ætt­ar­nöfnum (inn­skot blaða­manns, meðal ann­ars með stofnun Manna­nafna­nefndar) en árang­ur­inn hefir ekki verið mik­ill.“

Í næstu orðum Þóris má skynja hæðni, „Það er skilj­an­legt að sumir vilji halda í ætt­ar­nöfnin, sér í lagi ef ein­hver ætt­ing­inn hefir getið sér gott orð og kannski lands­frægð. Þá er flott að allir viti að hann eða hún sé frændi eða frænka. Svo má ekki gleyma snobb­inu, sem svo oft kúrir rétt undir yfir­borð­inu.“

Að lokum seg­ist Þórir vera far­inn að trúa því, eftir því sem hann eld­ist, að best væri fyrir Ísland ef hægt væri að leggja niður ætt­ar­nöfnin í eitt skipti fyrir öll. „Þá myndi ég heita Þórir Sig­urðs­son Guð­munds­son og Mikk­el­ínu Maríuson. Pabbi hét Sigurður Guð­mundur og svo myndi ég líka kenna mig við mömmu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag