Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Páll Ásgeir, blaðamaður og fjallagarpur: „Gengum alltaf út frá því að allir væru óhamingjusamir“

Páll Ásgeir, blaðamaður og fjallagarpur: „Gengum alltaf út frá því að allir væru óhamingjusamir“
Páll Ásgeir Ásgeirs­son. Mynd/Ferða­fé­lag Íslands

Páll Ásgeir Ásgeirs­son, rit­höf­undur, blaða­maður og leið­sögu­maður, er einn reynd­asti far­ar­stjóri Íslands. Hann hefur um ára­bil starfað fyrir Ferða­fé­lag Íslands og hefur farið fjöl­margar ferðir með hópa á Hvanna­dals­hnúk, hæsta tind Íslands. Hann býr sömu­leiðis yfir gríð­ar­legri reynslu í blaða­mennsku.

Páll Ásgeir var gestur Reynis Trausta­sonar í hlað­varp­inu „Mann­lífið“.

Skammast sín enn fyrir sumar forsíður

Hann hóf blaða­manna­feril sinn á Ísafirði, hjá vest­firska Frétta­blað­inu.

„Ég held að það hafi verið 1984 eða 1985. Ég held að það telj­ist vera upp­haf þess tíma­bils ævi minnar. Ég er þá að verða þrí­tugur.“

„Ég lærði mjög margt í blaða­mennsk­unni. Ég lærði svona lífsmáta. Því að blaða­manns­hatt­ur­inn, hann leyfir þér að spyrja hvern sem er að hverju sem er. Þú þarft enga ástæðu aðra en starfið.

Þetta starf kennir þér líka að horfa gagn­rýn­inn í kringum þig. Blaða­menn læra svo­lítið vel á sam­fé­lagið – svona sam­setn­ingu þess og upp­bygg­ingu. Þannig að þetta er skemmti­lega fjöl­breytt og lif­andi starf. En það verður samt í starfi, til dæmis á dag­blaði, að einn dagur er öðrum líkur.

Ég var árum saman með helg­ar­út­gáf­una og þá hugsar maður í vikum. Föstu­dagur, sem er skila­dag­ur­inn fyrir blaðið, er eini dag­ur­inn í vik­unni sem skiptir máli. Maður þarf að vera klár með eitt­hvað sem er í lagi og það eru sumar for­síður á helg­ar­blaði sem ég skamm­ast mín fyrir enn þann dag í dag, en það eru líka sem betur fer mjög margar sem ég er ánægður með.“

Gengu út frá því að fólk væri óhamingjusamt

Páll segir að þegar hann líti til baka yfir fjöl­miðla­fer­il­inn geri hann í raun­inni ekki upp á milli ein­stakra mála sem honum þykja minn­is­stæð­ust. Honum hafi hins­vegar þótt skemmti­legt þegar blaða­menn settu sér hinar ýmsu vinnu­reglur.

„Ég man eftir því að einu sinni fengum við mik­inn áhuga á því að taka við­töl án þess að skrifa neitt hjá okkur og án þess að vera með seg­ul­band. Við stóðum í þeirri trú að ef við­mæl­and­inn segði eitt­hvað sem væri þess virði að prenta það í blað­inu myndum við muna það.

Við urðum að hætta þessu, vegna þess að þetta stress­aði svo við­mæl­end­urna.

Það var ekki það að – þetta er í sjálfu sér ekk­ert flókið – þú sest niður með manni og talar við hann í klukku­tíma og það sem þú labbar með út úr her­berg­inu … ef þú manst það ekki til þess að skrifa einnar síðu við­tal úr því, þá er það ekki merki­legt. Þá er þetta eitt­hvað sem skiptir ekki máli. En þetta stress­aði við­mæl­endur óstjórn­lega.

Svo man ég eftir annarri hand­hægri vinnu­reglu sem við komum okkur upp. Að ganga alltaf út frá því að allir væru óham­ingju­samir og öll við­töl sem við tókum, hvort sem það voru kynn­ing­ar­við­töl eða fólk stóð í ein­hverjum áföngum eða átökum í sínu lífi eða eitt­hvað svo­leiðis, þá nálg­uð­umst við við­mæl­endur okkar alltaf út frá því að þeir væru óham­ingju­samir.

Við stóðum í þeirri trú og ég stend enn í þeirri trú að það skili árangri, að horfa þannig á málin.“

Eina skiptið í dómsal

Talið berst að stefnu Páls með for­síður á sínum tíma, en þær voru stundum taldar ansi hvassar og vöktu athygli. Í því sam­hengi nefnir Reynir for­síðu helg­ar­blaðs DV árið 2001 sem bar fyr­ir­sög­ina „Hvíta Ísland.“ Í helg­ar­við­tal­inu sem bar fyr­ir­sögn­ina var rætt við vara­for­mann Félags íslenskra þjóð­ern­is­sinna, sem lét þar hafa eftir sér grófa, rasíska orð­ræðu.

„Það er eina skiptið sem ég hef skrifað eitt­hvað í blöðin og þurft að mæta í dóm­sal út af því, vegna þess að hann var kærður. Það er eini dóm­ur­inn sem hefur gengið um kyn­þátt­a­níð, ef ég man rétt og ég þurfti að mæta í dóm­sal og stað­festa að ég hefði tekið þetta við­tal og hann hefði sagt þetta allt saman.

Þetta byggð­ist á þeirri afstöðu að það ætti að lýsa inn í skúma­skotin.

Það voru þrjú systk­ini undir Eyja­fjöllum sem stofn­uðu þennan stjórn­mála­flokk sem byggð­ist á hug­sjónum nas­ist­anna og það var ein­hver umræða um það hvort það ætti að hunsa þau, það er að segja ekki vera að kynna flokk­inn og þessar hug­myndir, eða hvort það ætti að veita þeim athygli.

Við unnum út frá því að það ætti að lýsa inn í þetta myrka skúma­skot, fórum bara vel að þeim og fengum þetta við­tal.“

Skipið sem sökk – DV í klóm pólitískra afla

Um enda­lok DV þessa tíma segir Páll:

„Skipið sökk. Ég skrif­aði þá grein sem ég er alltaf mjög ánægður með, í Tímariti Máls og menn­ingar. Hét hún ekki „Dagurinn sem skipið sökk“? Ég held það.“

Í grein­inni var sagt frá því hvernig stjórn­mála­öflin höfðu teygt sig inn á blaðið, sem end­aði með því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var kom­inn með mann inn í rit­stjórn­ina. Þessi póli­tísku afskipti af fjöl­miðlum voru sann­ar­lega ekki eins­dæmi á þessum tíma.

Páll lýsir atviki á fjöl­miðl­inum, sem hann skrif­aði um í grein­inni:

„Þetta var rétt fyrir ein­hverjar kosn­ingar. Maðurinn sem við erum að tala um heitir Ólafur Teitur Guðnason. Það voru átök um það hvað ætti að vera á for­síðu helg­ar­blaðs­ins föstu­dag­inn fyrir kosn­ingar. Það var þrasað um þetta alla vik­una og á end­anum þá sætt­ust menn á það að ég færi norður á Akureyri og tæki við­tal við Kristján Jóhanns­son  óperu­söngv­ara.

Það var dásam­legt ferða­lag, því Kristján er nátt­úr­lega alveg óstjórn­lega skemmti­legur maður. Hann fór í við­tal­inu að skamm­ast eitt­hvað út í mennta­mála­ráðu­neytið. Þá var ekki byrjað að byggja Hörpu enn þá. Þetta voru skammir til stjórn­valda fyrir að veita ekki fé í bygg­ingu tón­list­ar­húss.

Þegar við vorum búin að ganga frá blað­inu, þegar ég var að ganga út úr hús­inu þá sá ég út undan mér að Óli Teitur stóð og var að lesa yfir umbrotið og svo kall­aði hann í Jónas Har­alds­son og Óla Björn og sagði: „Þetta er massívur áróður gegn Sjálf­stæð­is­flokknum. Við verðum að gera eitt­hvað í þessu.“

Ég man eftir því að þeir horfðu svona til mín, af því að ég var á útleið, svona eins og til að vita hvort ég myndi skipta mér eitt­hvað af þessu. Ég hélt bara áfram út.

Þú ert orð­inn ofboðs­lega taugastrekktur ef þú heldur að það sem einn óperu­söngv­ari norður á Akureyri segi hafi ein­hver áhrif á kosn­inga­úr­slit. Þá ertu að standa dygg­ari varð­stöðu en var ætl­ast til af þér, held ég.“

Fjöllin og leiðsögumaðurinn

Páll seg­ist ekki hafa fengið skyndi­legan áhuga á fjalla­mennsku, heldur hafi hann verið alinn upp í nátt­úr­unni, í návígi við fjöllin í mik­illi úti­vist og smala­mennsku. Hann hafi því alltaf verið hand­geng­inn nátt­úr­unni.

„Ég tala enn þá um þetta eins og að vera úti að leika sér. Það er alveg sama hvað þú ert að gera utandyra, hvort þú ert að ganga eða hjóla eða hlaupa eða klifra eða hvað, aðal­at­riðið er að vera úti.

Það er sam­band manns­ins við nátt­úr­una – það er orku­upp­sprettan. Heil­brigður lífs­stíll og vellíðan sem fylgir í kjöl­farið er bara bónus. En við erum að næra sál­ina fyrst og fremst með því að fara út að leika okkur.

Mér finnst ég hafa gert þetta alla mína ævi, en það er ekki fyrr en ég sest í stjórn Ferða­fé­lags Íslands 2005 eða 2006, ef ég man rétt … fram að því hélt ég að ég hefði ekki þol­in­mæði til þess að vera leið­sögu­maður. En svo liðu eitt eða tvö ár og þá fór ég að fást við þetta fyrir ferða­fé­lagið og þá rann það upp fyrir mér að ég var búinn að ná því and­lega jafn­vægi að geta gert þetta. Því það þarf tölu­verða þol­in­mæði í þetta.“

Frá því að Páll fór að starfa sem leið­sögu­maður hafa vin­sældir hinna ýmsu fjalla­ferða og ann­arra úti­vi­star­ferða stór­auk­ist hjá Ferða­fé­lagi Íslands.

„Þetta helst í hendur við stór­auk­inn áhuga Íslend­inga á sínu eigin landi og auk­inn áhuga á úti­vist og heil­brigðum lífs­stíl. En síðan reis svona auka­bylgja í Covid-far­aldr­inum. Þegar Íslend­ingar komust ekki til útlanda og fóru í auknum mæli að ferð­ast um sitt eigið land.

Við héldum kannski fyrst að það yrði bara eitt sumar, sum­arið 2020, þegar landið var hálf­part­inn lokað. Svo sáum við í sumar að þetta heldur áfram, vegna þess að það var ekki minni aðsókn í sum­ar­leyf­is­ferðir og öll þessi verk­efni hjá Ferða­fé­lag­inu í sumar en sum­arið áður.

Ferða­fé­lagið stendur núna þannig að það eru fleiri félags­menn en nokkru sinni fyrr og starf­semin er í gríð­ar­lega miklum blóma.“

Mikilvægt að leiðsögumenn geri sér grein fyrir ábyrgðinni

Páll hefur lent í hinu og þessu í fjalla­ferðum sínum, þótt hann hafi ekki lent í alvar­legum háska. Hann hefur ekki dottið og meiðst, en hann hefur lent í slæmum aðstæðum, vondu veðri og slíku.

„Þegar ég hef lent í lífs­hættu hef ég alltaf verið bara með sjálfan mig. Ég hef aldrei sett neitt fólk í lífs­hættu. Sér­stak­lega á meðan ég var yngri, þá var maður kapp­sam­ari heldur en nú, þannig að stundum gösl­að­ist maður lengra en maður hefði átt að gera, sneri of seint við og svona.“

Honum þykir afar mik­il­vægt að nýir leið­sögu­menn geri sér grein fyrir ábyrgð­inni sem fylgir starf­inu og ef hann væri að halda erindi fyrir verð­andi leið­sögu­menn myndi hann ráð­leggja þeim að byrja á því að taka sjálfa sig út úr miðj­unni.

„Maður er ábyrgur fyrir lífi og öryggi fólks á fjöllum, hvort sem það er verið að fara á Esjuna eða hæsta fjall á Íslandi. Maður má aldrei gleyma því. Þessir leið­angrar, stórir og smáir, snú­ast ekki um það sem ég get eða það sem ég ræð við, þeir snú­ast um öryggi hóps­ins.

Þess vegna þarf maður eins fljótt og maður getur í þessum verk­efnum að temja sér þá auð­mýkt sem þarf til að taka sínar eigin sjálf­stæðu ákvarð­anir án þess að láta þrýst­ing frá hópnum eða ein­hverja mark­miða­setn­ingu trufla sig og snúa bara við þegar maður heldur að hóps­ins vegna sé þetta orðið gott í dag og það væri verið að hætta öryggi þeirra ef haldið væri áfram.

Það hvort þú myndir per­sónu­lega leysa verk­efnið og fara á topp­inn, það kemur þessu máli ekk­ert við. En það tekur mann svo­lít­inn tíma að læra þetta og safna sér þeirri reynslu og þeirri innri ró sem þarf til þess að gera þetta svona.“

Þarf ekki að verða elstur á Hvannadalshnúk

Þær eru orðnar ansi margar, ferðir Páls upp á Hvanna­dals­hnúk, hæsta tind Íslands:

„Ég fór fyrst upp á Hvanna­dals­hnúk 1994. Svo liðu mjög mörg ár þar til ég fór aftur, en eftir að ég fór að vinna við leið­sögn þá er ég senni­lega búinn að fara … ætli það hafi ekki byrjað aftur svona 2006, 2007, eitt­hvað svo­leiðis.

Svo hafa nú stundum komið ár sem ég hef sleppt því, en ég fór upp síð­ast­liðið vor. Það er ekk­ert kapps­mál fyrir mig að vera elstur í hópnum, þannig að ég er að hugsa um að leggja þetta á hill­una. Ég er ekki viss um að ég fari upp í vor, sko. Ég sé það ekki fyrir mér. Ég gæti það alveg, það er ekki það, en það hefur allt sinn tíma.

Þegar ég lít yfir hóp þátt­tak­enda í þessum verk­efnum, eins og að ganga á Hvanna­dals­hnúk, ætli með­al­ald­ur­inn í þessum hópum gæti ekki verið ein­hvers staðar á milli 38 og 45 ára. Þetta er fólk svona að nálg­ast miðjan aldur. Þegar ég var fer­tugur, ef ég hefði þá verið á leið upp á Hvanna­dals­hnúk, og hefði kom­ist að því að far­ar­stjór­inn væri 25 árum eldri en ég … ég er ekki viss um að mér hefði þótt það traust­vekj­andi. Ég er ekki viss um að mér hefði þótt svona sér­stakur ávinn­ingur af því. Elsti maður sem ég hef farið með upp var 75 ára og honum gekk ágæt­lega, en eins og ég segi, það er mér ekk­ert kapps­mál að vera elstur í leið­angrinum.“

Aðspurður hvernig hann telji að snúa megi við lýð­heilsu­vanda þjóð­ar­innar og rísandi tíðni offitu, segir Páll það eflaust geta verið mjög flókið mál.

„Það eina sem ég vil segja um það er að allar rann­sóknir sýna að öll hreyf­ing skilar árangri. Sá sem temur sér það að fara út að hreyfa sig, þótt það séu ekki nema tíu mín­útur á dag, ef það er með reglu­legum hætti, burt­séð frá heilsu þátt­tak­enda og aldri þeirra og ásig­komu­lagi þegar þetta hefst, þá skilar þetta alltaf árangri. Bæði til bættrar heilsu og síðan, í fram­hald­inu, þyngd­ar­taps.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag