Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigurjón Kjartansson er með hænur í garðinum: „Kannski felst lífsgátan í að díla við eigin drauga“

Sigurjón Kjartansson er með hænur í garðinum: „Kannski felst lífsgátan í að díla við eigin drauga“
Sigurjón Kjart­ans­son

„Þetta er nú bara þannig að mig lang­aði til að verða frjáls maður á frjálsum mark­aði og vil vera meira sjálf­stætt í minni vinnu. Það er ekk­ert sem úti­lokar það að ég haldi áfram að vinna eitt­hvað með RVK Studios. Ég er sem sagt bara að segja upp minni föstu stöðu þar sem þró­un­ar­stjóri,“ segir Sigurjón Kjart­ans­son. Hann segir að hann og Baltasar Kormákur, eig­andi RVK Studios, séu enn hinir mestu mátar og að þessi ákvörðun hans hafi mætt fullum skiln­ingi.

Þegar Sigurjón er spurður um verk­efni fram undan seg­ist hann meðal ann­ars vera að und­ir­búa hátíðar- og aðventu þriðju­dags­kvöld Tvíhöfða sem haldið verður í Háskóla­bíói 7. des­em­ber. „Það er alltaf eitt­hvað á teikni­borð­inu svo sem. Ég hef jafn­hliða störfum mínum hjá RVK Studios verið með viku­lega útvarps­þætti með honum vini mínum Jóni Gnarr.“ Og Jón Gnarr er nátt­úr­lega hinn Tví­höfð­inn.

Það er ekk­ert sem úti­lokar það að ég haldi áfram að vinna eitt­hvað með RVK Studios.

Mikill lærdómur

Sigurjón hóf störf hjá RVK Studios árið 2012 og segir hann að Ófærð­ar­ser­í­urnar standi upp úr sem og Katla. „Þetta eru stærstu verk­efnin sem ég hef gert með RVK. Fyrsta próf­raunin sem ég fór í gegnum var fyrsta ser­ían af Ófærð; það er einn stærsti sig­ur­inn okkar og ser­ían varð gríð­ar­lega vin­sæl um allan heim og ól af sér tvær ser­íur í við­bót. Svo þótti mér mjög vænt um Kötlu og svo má ekki gleyma Hulla-ser­í­unum tveimur sem við gerðum með Hugleiki Dagssyni og Borg­ar­stjór­ann með Jóni Gnarr. Það eru mjög góðar og vel heppn­aðar ser­íur sem mér þykir vænt um. Þetta hefur verið gríð­ar­lega góður tími og góður skóli að vinna þessa hluti með Balta og fleirum þannig að ég er bara glaður í sinni. Þetta hefur gefið mér mikið.“

Sigurjón hafði komið að ýmsum hand­ritum í gegnum tíð­ina svo sem Pressu, Rétt og Svarta engla og vann þá með öðrum hand­rits­höf­undum. „Það má segja að ég hafi van­ist þeirri starfs­að­ferð, allt frá tímum Fóst­bræðra, að öll sagan er saumuð saman af hópi frekar en einum hand­rits­höf­undi. Þegar ég fór svo að vinna við Ófærð þá vann ég með fjöl­þjóð­legum hug­mynda­hópi af þremur mis­mun­andi þjóð­ernum svo sem Clive Bradley frá Bret­landi og Soniu Moyer­soen frá Frakk­landi. Ég hef lært mjög mikið af þessu. Í kjöl­farið, þegar hand­rit er til­búið, vinnur maður svo með leik­stjórum, leik­mynda­fólki, tón­skáldum, klipp­urum og fleirum að und­ir­bún­ingi fyrir tökur þannig að þetta er gríð­ar­lega víð­feðm vinna og það eru mikil for­rétt­indi að kynn­ast öllum hliðum svona fram­leiðslu þar sem ég fylgdi þessu í raun­inni frá fyrsta skrefi þar til þátt­ur­inn fór í loftið.“

Í vinnu sinni hjá RVK Studios hefur Sigurjón tamið sér þá vinnu­að­ferð að vera við­staddur á töku­stað og starfa sem svo­kall­aður „showrunner“ í Ófærð og Kötlu. „Það hefur kennt mér gríð­ar­lega mikið hvað varðar alla þætti kvik­mynda­gerðar. Ég hef ein­hvern veg­inn lært að bera meiri virð­ingu fyrir störfum allra deilda og ekki síst leik­ara; ég kom inn í þetta á sínum tíma kannski ferskur úr grín­heim­inum með ákveðna for­dóma gagn­vart leik­urum af því að ég sjálfur hafði verið frekar svona „la la“ leik­ari í grín­heimum. En svo fór ég að vinna með alvöru leik­urum eins og Ólafi Darra, Ilmi, Ingvari E. og fleirum sem taka hlut­verkin sín svo alvar­lega og ná að setja raun­veru­legt kjöt á beinið í sam­starfi við okkur hand­rits­höf­undana. Það hefur verið gríð­ar­lega gef­andi vinna. Ég lærði af þeim og Balta að bera meiri virð­ingu fyrir starfi leik­ar­ans heldur en ég hafði gert.“

Það hefur kennt mér gríð­ar­lega mikið hvað varðar alla þætti kvik­mynda­gerðar.

Sigurjón er búinn að vera lengi í brans­anum og segir hann að ástæða þess teng­ist upp­haf­lega ást á miðl­inum. „Það má segja að ég hafi orðið almenni­lega ást­fang­inn af sjón­varpi þegar við Jón Gnarr vorum að byrja í Dags­ljósi árið 1995; þá ein­hvern veg­inn komu öll púsl saman í hausnum á mér. Ég er af fyrstu kyn­slóð á Íslandi sem ólst upp við sjón­varp. Ég lærði dag­ana út frá því hvenær The Flint­sto­nes voru og svo fram­vegis af því að þeir þættir voru sýndir á mið­viku­dögum. Síðan fór ég að vinna út frá því hvenær væru fimmtu­dagar; já, það var þegar það var ekk­ert sjón­varp.“ Hann nefnir líka kúreka­seríu sem fékk íslenska nafnið „Í Heið­ar­garði“ þar sem per­sónur voru kall­aðar íslenskum nöfnum í íslensku þýð­ing­unni. „Svo má ekki gleyma Dallas sem hafði gríð­ar­lega áhrif á mig. Það var stór­kost­legt fyr­ir­bæri. Ég hef allar götur síðan verið mik­ill sjón­varps­maður og eftir að ég byrj­aði að vinna í þessu sjálfur hef ég verið mjög áfram um það að vegur sjón­varps­þátta­gerðar yrði meiri og betri hér á landi með áherslu á leikið efni. Sá draumur hefur að mörgu leyti ræst.“

Svo má ekki gleyma Dallas sem hafði gríð­ar­lega áhrif á mig.

Myrk og dramatísk

Það eru ekki ein­ungis Fóst­bræður sem eiga hug Sig­ur­jóns þessa dag­ana heldur líka rokk­hljóm­sveitin HAM en Sigurjón hefur í rúm 30 ár verið með­limur hennar; hljóm­sveitin hefur starfað með hléum og nú er eitt hléð að verða búið.

„Við förum okkur hægt en örugg­lega. Það er alltaf eitt­hvað að kokk­ast hjá okkur. Við hitt­umst síð­ast um dag­inn og ræddum að það þyrfti að fara að spýta í lóf­ana og fara af stað með eitt­hvað verk­efni sem er kannski ekki tíma­bært að segja frá núna.“

Stíllinn hjá HAM er myrkur. „Hann hefur verið það í gegnum tíð­ina. Hann er dramat­ískur. Margir vilja afgreiða þetta sem bölv­aðan hávaða en það er kannski bara allt í lagi. Við fórum af stað með það mark­mið að verða háværasta hljóm­sveit á Íslandi og það hefur gengið ágæt­lega hjá okkur. Við spilum ekki mjög aðgengi­lega tón­list en kannski er hún að verða aðeins aðgengi­legri eftir því sem ald­ur­inn fær­ist yfir. Ég veit það ekki. En við gerum fyrst og fremst það sem and­inn blæs okkur í brjóst,“ segir hand­rits­höf­und­ur­inn og laga­höf­und­ur­inn en lögin sem hann semur með HAM eru jú myrk og dramat­ísk. „Það er ein­hver drama­fík­ill í mér sem fær útrás þarna og víðar. Mitt eilífð­ar­verk­efni í líf­inu er að halda því þannig að drama sé í list­inni og skrif­unum en ekki í líf­inu. Dramað verður alla­vega alltaf minna og minna vona ég eftir því sem ald­ur­inn fær­ist yfir. Nú eru komnar hænur í garð­inn hjá okkur, það er svona nokkuð drama­laust að sinna þeim.“

Það er ein­hver drama­fík­ill í mér sem fær útrás þarna og víðar.

Sigurjón er spurður hvort til­finn­ing­arnar og lífs­reynsla hans komi ekki í gegn við hand­rits­skrif og laga­smíði.

„Jú, tví­mæla­laust. Þetta kemur allt í gegn. Það að skrifa og semja tón­list er alltaf ein­hver speglun á því sem maður er að ganga í gegnum í sínu einka­lífi. Það hefur hjálpað mér en ég hef oft skrifað mig út úr erf­iðum hlutum. Kannski felst lífs­gátan í að díla við eigin drauga; díla við sinn eigin skít með ein­hverju móti – ann­að­hvort í gegnum sköpun eða kannski að deila því með öðrum og hjálpa öðrum. Það þarf alltaf ein­hverjar leiðir til að tappa af og sumir nota til dæmis sál­fræð­inga eða trúna. Það svo sann­ar­lega getur dýpkað að hafa lifað. Við sem erum komin yfir fimm­tugt búum að ákveð­inni reynslu. Lífið er aldrei slétt og fellt. Og það er gott að vera búinn að ganga í gegnum ýmis­legt af því að það nýt­ist manni í svo mörgu. Maður er aðeins vitr­ari ef maður leyfir sér að þroskast á réttan hátt, fest­ist ekki ein­hvers staðar og heldur áfram að leita.“

Það hefur hjálpað mér en ég hef oft skrifað mig út úr erf­iðum hlutum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu