Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ör fjölgun vegglistaverka í Reykjavík: „Við gerum þetta fyrir okkur sjálfa og alla hina“

Ör fjölgun vegglistaverka í Reykjavík: „Við gerum þetta fyrir okkur sjálfa og alla hina“
Samsett mynd
Mynd. Skjáskot/Reykja­vík­ur­borg

Á síð­ustu árum hefur vegg­lista­verkum fjölgað mikið í Reykja­vík og sífellt fleiri sækj­ast eftir því að hafa list af þessu tagi í sínu nán­asta umhverfi. Stefán Óli og Arnór Kári eru meðal ótal margra lista­manna sem standa á bak við ýmis verk í borg­inni en þeir voru að klára stóra mynd við Sunda­höfn.

Stefán og Arnór hófu sam­starf sitt nú í sumar þegar þeir tóku að sér að vinna nokkur verk á vegum Reykja­vík­ur­borgar, Torg í bið­stöðu og verkið í Sunda­höfn.

„Ég er búinn að krota á veggi síðan ég var krakki en það var ekki með­vituð ákvörðun að verða lista­maður,“ segir Stefán í sam­tali við Hrund Þórs­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa Ráðhúss Reykja­víkur.

„Nei, þetta er bara eitt­hvað sem maður er að gera og heldur því svo áfram af því manni finnst það ganga vel,“

bætir Arnór við. „Ég útskrif­að­ist úr Lista­há­skól­anum í mynd­list, en ég var svo sem ekk­ert að læra þetta þar.“

Fólk virð­ist njóta vegg­list­ar­innar
Þeir segja mis­jafnt hvernig verkin verði til. Stundum leiti fólk til þeirra en oft hafi þeir sjálfir

Mynd. Skjáskot/Reykja­vík­ur­borg

frum­kvæði að því að fá að mála á veggi sem henta vel til þess.

„Þegar við bönkum upp á hjá fólki hefur það oft ekki áttað sig á að það sé með fínan vegg til að mála á en þegar maður bendir á það finnst fólki það geggjuð hug­mynd,“ segir Arnór.

„Við spyrjum fyrst hvort við megum mála og síðan reynum við að finna ein­hverjar leiðir til að fjár­magna það,“ segir Stefán. „Þegar við byrj­uðum á þessum vegg var ekki víst að hann yrði styrktur. Við gerum þetta fyrir okkur sjálfa … og alla hina!“

Gera eitthvað fyrir hverfið

Mynd. Skjáskot/Reykja­vík­ur­borg

Verkið í Sunda­höfn blasir við langt að og breytir ásýnd svæð­is­ins mikið. Fólk sem vinnur í nágrenn­inu hefur þakkað Stefáni og Arnóri fyrir, en einnig hafa þeir fengið við­brögð til dæmis á sam­fé­lags­miðlum og í heita pott­inum í sund­laug­inni, þar sem þeir láta oft líða úr sér eftir anna­sama daga.

„Við erum alla­vega búnir að gera eitt­hvað fyrir hverfið og fólk virð­ist njóta þess,“ segir Stefán hóg­vær. „Þetta umbreytir svæð­inu, sem var mark­miðið.“

Arnór tekur undir. „Þetta hefur verið dálítið fal­inn blettur í borg­inni. Fólk er ekk­ert mikið að þvæl­ast um á gáma­svæð­inu, en þetta gefur mikið líf og sést langt að. Í dag eru eig­in­lega allir spenntir fyrir þessu,“ segir Stefán.

„Eftir því sem fleiri vegg­lista­verk eru máluð, því betur áttar fólk sig á því hversu nota­legt er að hafa mynd­list í umhverf­inu,“ segir Arnór. „Auðvitað vill einn og einn hafa allt hvítt og grátt, en ég sé þetta þannig að þótt ein­hver máli mynd sem ég er kannski ekk­ert hrif­inn af per­sónu­lega, út frá ein­hverri list­rænni skoðun, þá finnst mér samt betra að hafa mynd en bara hvítan vegg. Svo er líka alltaf hægt að mála nýtt.“

Óhefð­bundnar vinnu­að­stæður
Það má segja að vinnu­að­stæður Stefáns og Arnórs séu óhefð­bundnar. Nýjasta verk þeirra er í Sunda­höfn er á 500 fer­metra vegg, sem nær upp í um 45 metra hæð og til að kom­ast að honum þarf að príla upp nokkra stiga, sem verða bratt­ari eftir því sem ofar dregur. Þetta eru vinnu­að­stæður sem lista­menn­irnir þurfa að venj­ast, sem getur tekið á við hin ýmsu veð­ur­skil­yrði.

Þeir félagar segja verk á borð við þetta taka um tvær vikur í vinnslu ef veður er alltaf gott og þá er miðað við langa vinnu­daga.

„Svo vorum við miklu lengur að hanna vegg­inn og skipu­leggja hann,“ segir Stefán. „Mesta vinnan var að koma öllu á stað­inn. Þetta eru oft krefj­andi aðstæður og hér var ekki hægt að mæta bara með skot­bómu­lyftu á stað­inn og byrja. Við þurftum að koma öllu draslinu hingað upp, finna út hvernig við gætum hengt fest­ingar fyrir lyft­una upp á þakið, hag­ræða alls konar köplum og svo fram­vegis.“

Stefán segir að verkið hafi gengið eins og í sögu þrátt fyrir erf­iðar lægðir inn á milli.

„Þetta var bók­staf­lega eins og í ævin­týra­sögu,“ bætir Arnór við. „Það gekk á ýmsu og var rok og rign­ing nán­ast allan mán­uð­inn, en þetta hafð­ist með þraut­seigju.“

Ekki það auð­veldasta
Að sinna list­sköpun utandyra á Íslandi er kannski ekki það auð­veldasta en þeir félagar segja það ágætt yfir sum­ar­tím­ann. Erfiðast sé þegar óvissa um veður sé mikil enda kosti sem dæmi mikið að leigja lyftu.

„Þessu til­tekna verk­efni hér lýsi ég eins og fjall­göngu,“ segir Arnór. „Maður veit eig­in­lega ekk­ert; kemur upp á ein­hverja hæð og heldur að maður sé að ná toppnum en svo er fjallið miklu hærra og þannig heldur það áfram. Maður verður að taka eitt skref í einu. Taka til dæmis veðr­inu eins og það er. Þetta er þol­in­mæð­is­verk.“

Fjall­gangan er við­eig­andi mynd­lík­ing því um lík­am­lega erf­ið­is­vinnu er að ræða.

„Við tökum jóga­æf­ingar og teygjur uppi á lyft­unni, teygjum á bak­inu og svona,“ segir Arnór. „En ég hef alltaf gaman af því sem er lík­am­lega krefj­andi, svo fyrir mér er veggja­list full­komin blanda af lík­ams­rækt og list­sköpun,“ bætir Arnór við.

„Þetta er líka mjög skemmti­legt þegar veðrið er gott,“ segir Stefán. „Og svo er gaman þegar verkin fá að njóta sín og standa í ein­hvern tíma. Ég hef ekki verið mikið fyrir að halda list­sýn­ingar þar sem maður setur upp myndir en þarf að taka þær strax niður aftur.“

Hægt er að lesa frétt­ina í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag