Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gunnar Smári hjólar í útgerðirnar og lygina: „Meira og minna einkavinavætt til auðhringja“

Gunnar Smári hjólar í útgerðirnar og lygina: „Meira og minna einkavinavætt til auðhringja“

Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands, tekur saman skipt­ingu útflutn­ings­verð­mæta loðnu­kvót­ans í nýjum pistli sínum.

Þar fer hann yfir skipt­ingu útflutn­ings­verð­mæt­anna milli útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna sem eiga kvót­ann. Nú stefnir í stóra loðnu­ver­tíð, eftir loðnu­brest síð­ast­liðin tvö ár. Komandi ver­tíð hefur verið metin á 50-70 millj­arða króna í útflutn­ings­verð­mæti, sem eru um 1,5-2,0 pró­sent af lands­fram­leiðsl­unni.

Gunnar Smári fer yfir skipt­ing­una:

„Loðnu­kvót­inn fer til ell­efu fyr­ir­tækja. Ef við skiptum 60 millj­arða útflutn­ings­verð­mæti á milli þeirra er skipt­ingin þessi:

Ísfé­lagið: 11.992 m.kr.
Brim: 10.800 m.kr.
Síld­ar­vinnslan: 9.595 m.kr.
Vinnslu­stöðin: 7.397 m.kr.
Samherji: 5.517 m.kr.
Eskja: 5.284 m.kr.
Skinney-Þinganes: 4.882 m.kr.
Gjögur: 1.594 m.kr.
Runólfur Hall­freðs­son: 1.500 m.kr.
Loðnu­vinnslan: 1.050 m.kr.
Rammi: 390 m.kr.

Þarna sést að þrjú stærstu fyr­ir­tækin eru með meira en helm­ing af kvót­anum, 63% ef maður telur Samherja og Síld­ar­vinnsl­una saman. Fjögur stærstu fyr­ir­tækin eru með 75% af kvót­anum og sex stærstu með yfir 90%. Svona er sam­þjöpp­unin í sjáv­ar­út­vegi orðin. Miðin hafa verið einka­vædd og fáeinar stór­út­gerðir sölsað þau undir sig.

En þetta vitið þið öll. Og því miður yppta flest ykkar öxlum, dæsið og and­varpið: Ætli það sé ekki bara best að kjósa Framsókn? Ætli það sé ekki bara best að gera ekki neitt, leyfa þjóf­unum að ríkja yfir þjó­fræð­inu.“

Hann heldur áfram:

„Þetta með Framsókn er harm­saga Íslands eins og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er harm­saga. Þetta er flokkur sem var byggður á sam­vinnu­hreyf­ing­unni, sem var bylt­ing­ar­afl á Íslandi, átti stærstan þátt í að móta hér nútíma­sam­fé­lag.

Þegar hreyf­ingin klíku­vædd­ist varð Framsókn að flokki kommiss­ara í Sam­band­inu og þegar þeim tókst að eyði­leggja hreyf­ing­una varð Framsókn flokkur ólig­ar­kanna sem sölsuðu undir sig eigur sam­vinnu­hreyf­ing­ar­innar. Ólig­ar­k­arnir í Framsókn eru nákvæm­lega sömu teg­undar og ólig­ar­k­arnir sem náðu undir sig eigum almenn­ings í Rúss­landi eftir fall Sov­ét­ríkj­anna.

Að almenn­ingur skuli svara þessum þjófn­aði á almanna­eignum með því að spyrja hvort ekki sé bara best að hafa þetta svona, er merki um almennt sið­rof í íslensku sam­fé­lagi.

Og það sama á auð­vitað við einka­væð­ingu fiski­mið­anna. Eins og sést í dag þegar loðnu­stofn­inn bragg­ast. Megnið af kvót­anum rennur til fimm auð­hringja.“

Gríðarleg hækkun á markaðsvirði útgerðanna

Gunnar Smári segir að frá því að Haf­rann­sókn­ar­stofnun til­kynnti um auk­inn loðnu­kvóta hafi mark­aðsvirði útgerð­anna Brims og Síld­ar­vinnsl­unnar hækkað um 73,9 millj­arða króna.

„Þetta er svo fyndið. Þegar fréttir ber­ast af mögu­legum 50-70 millj­arða króna loðnu­ver­tíð þá hækkar virði tveggja útgerða sem eiga 1/3 af kvót­anum um meira en sam­an­lagt allt útflutn­ings­verð­mæti kvót­ans. Ef þessu er beitt á öll útgerð­ar­fyr­ir­tækin jafn­gildir þetta því að auk­inn loðnu­kvóti hækki verð­mæti þeirra um 217 millj­arða króna.

Ef við gerum ráð fyrir EBITDA (hagn­aður fyrir fjár­magns­kostnað, skatta, afskriftir og arð) verði á ver­tíð­inni eins og hún hefur verið hæðst í sög­unni eða um 33% af veiðum (og það sama gildi um vinnsl­una) þá skila um 60 millj­arða króna útflutn­ings­verð­mæti um 20 millj­arða króna EBITDA.

Hækkun verð­mæta fyr­ir­tækj­ana er því 10,85-föld mögu­leg EBITDA. Sem er tvö­föld hækkun miðað við stöðugan rekstur traustra fyr­ir­tækja. Sem loðnu­út­gerð er ekki. Það getur eng­inn spáð fyrir um kvót­ann næstu tvö árin, hvað þá tíu eða tutt­ugu.

Í dag er Brim metið í kaup­höll­inni á 16,9-falda EBITDA síð­asta árs og Síld­ar­vinnslan á 20,0-falda EBITDA. Annað hvort eru þessi fyr­ir­tæki stór­kost­lega ofmetin eða að mark­að­ur­inn veit að bók­færður hagn­aður er aðeins hluti raun­veru­legs hagn­aðar, að fyr­ir­tækin séu traust­ari en árs­reikn­ingar segi til um vegna þess að þau geti fært hagnað til dótt­ur­fyr­ir­tækja í útlöndum og bók­fært hann aðeins að litlu leyti hér heima til að losna undan sköttum og skyldum, launa­greiðslum og gjöldum.

En svona er Ísland í dag. Meira og minna einka­vina­vætt til auð­hringja sem reka sína stjórn­mála­flokka og sem almenn­ingur kýs vegna þess að fólk hefur misst von­ina um að hægt sé að byggja upp skárra og rétt­lát­ara sam­fé­lag. Hér eru reknar stofn­anir sem eru sjaldn­ast það sem þær segj­ast vera, ef þær segj­ast vinna fyrir almenn­ing eru þær í raun að vinna fyrir menn­ina sem rændu almenn­ing.

Og þegar búin er til kaup­höll til að skrá virði fyr­ir­tækja þá verður hún að brand­ara um leið. Verðið á ekk­ert skylt við innra virði fyr­ir­tækja eða raun­virði heldur end­ur­spegla vænt­ingar brask­ara og fjár­glæfra­fólks. Og bálið sem logar í kaup­höll­inni er kynt með líf­eyr­is­sparn­aði almenn­ings.

Það er alveg sama hversu van­trúa þú ert á íslenskt sam­fé­lag, hvað þú van­treystir stjórn­málum og við­skipta­líf­inu; reglan er sú að ástandið er í raun enn verra. Linnu­laus frétta­flutn­ingur úr þessum geirum þar sem látið er eins og ástandið sé normalt blekkir þig til að efast um eigin til­finn­ingu fyrir botn­lausri spill­ingu, græðgi og heimsku valda­stétt­ar­innar. Allt sem haldið er fram er lygi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvótinn

FréttirKvótinn

Sagan af vél­stjór­anum í Eyjum sem gagn­rýndi kvóta­kerfið: „Ég var tal­inn óalandi og óferj­andi.“

Stærsta útgerð­ar­fé­lagið í Vest­manna­eyjum, Ísfé­lagið stendur á tíma­mótum eftir að Guðbjörg Matth­í­as­dóttir færði eign­ar­haldið að mestu yfir á syni sína og skráði félagið á markað. Völd útgerð­ar­innar í Eyjum eru mikil og segir fyrr­ver­andi starfs­maður Ísfé­lags­ins, Árni Marz Frið­geirs­son, sögu af því þegar honum var sagt upp vegna greinar sem hann skrif­aði í DV um kvóta­kerfið.
InnlentKvótinn

Fyrrum Alþings­maður vill rót­tækar breyt­ingar: „Búið að rústa mörgum sveit­ar­fé­lögum“

Grétar Mar Jónsson, fyrrum þing­maður Frjáls­lynda flokks­ins, telur að Sam­fylk­ingin geti hjálpað sjó­mönnum. Næst­kom­andi föstu­dag verður hald­inn fundur um stjórn fisk­veiða á Íslandi á Kaffi Catalínu og hefst fund­ur­inn klukkan 17:00. Grétar Mar Jónsson, fyrrum þing­maður Frjáls­lynda flokks­ins, verður einn af frum­mæl­endum fund­ar­ins en ásamt því að hafa verið Alþing­is­maður er Grétar þaul­vanur skip­stjóri. Mannlíf heyrði í Grétari til að...
InnlentKvótinn

Guð­mundur Krist­jáns­son í Brimi spáir enda­lokum kvóta­kerf­is­ins: „Það deyja allir“

„Ertu undir eiði blaða­manns,“ spurði Guð­mundur Krist­jáns­son útgerð­ar­maður, oft kenndur við Brim, í upp­hafi við­tals við blaða­mann Stund­ar­innar, Ölmu Mjöll Ólafs­dóttur. Var hann þá búinn að spyrja ítar­lega um menntun og rétt­indi við­kom­andi, hvernig maður fái starf sem blaða­maður og hvort ekki þurfi lög­gild­ingu til. Þunga­miðja við­tals­ins er eign­ar­hlutur Guð­mundar af fisk­veiði­kvóta í íslenskri útgerð. Guð­mundur svar­aði öllum spurn­ingum blaða­manns,...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi