Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég hef oft valdið mér og öðrum vonbrigðum“

„Ég hef oft valdið mér og öðrum vonbrigðum“

Okkar eini sanni Magni Ásgeirs­son er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Magna þarf ekki að kynna fyrir nokkrum manni, enda einn ást­sæl­asti söngv­ari þjóð­ar­innar. Rokk­ar­inn, laga­höf­und­ur­inn, við­burða­stjór­inn og fjög­urra barna fað­ir­inn með meiru, hefur verið búsettur á Akureyri um ára­bil. En Magni er fæddur og upp­al­inn á Borg­ar­firði eystri og hefur verið einn af skipu­leggj­endum Bræðsl­unnar, tón­list­ar­há­tíðar sem haldin er á hans gömlu heima­slóðum og fór fyrst fram árið 2005.
Mannlíf komst að því að Magni er afar hand­lag­inn, hann getur verið eig­in­gjarn, en segir það mik­il­væg­asta í líf­inu að hugsa um eitt­hvað annað en sjálfan sig.

Fjöl­skyldu­hagir? Gríð­ar­lega ham­ingju­sam­lega giftur Eyrúnu Huld í 11 ár – Við eigum fjóra stráka – Marinó Bjarna, Egil Ásberg, Kára Sæberg og Hrafn Eyberg.

Menntun/atvinna? Sorglega lítil – Ég er búinn að vinna sem tón­list­ar­maður í breið­asta skiln­ingi þess orðs síð­ustu 15 ár. Á og rek tón­list­ar­skóla, er við­burða­stjóri og skipu­leggj­andi tón­leika, spila í nokkrum böndum og sem og gef út tón­list.

Upp­á­halds­sjón­varps­efni? Það er eig­in­lega allur fjand­inn – mér finnst fátt betra að horfa á en góða heim­ilda­þætti um tón­list og dæg­ur­sögu, síðan eru það Vikings, Breaking Bad, bara eitt­hvað sem nær mér á hverjum tíma. Síðan reynum við hjónin að finna góðar ser­íur til að horfa á saman.

Leikari? Ólafur Darri.

Rit­höf­undur? Gerður Kristný.

Bók eða bíó? Ég er bíó­kall – finnst ofsa­lega gaman að sjá helst ein­hverja mar­vel-vit­leysu í bíó.

Besti matur? Eitthvað sem við eldum saman og njótum með fjöl­skyldu og vinum – getur verið svo margt.

Kók eða pepsí? Kristall – hætti hinu fyrir löngu eftir allt of mikla neyslu!

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Borg­ar­fjörður eystri er í fyrstu fimm sæt­unum.

Hvað er skemmti­legt? Að eiga þessa fjöl­skyldu og vini – það er ekki sjálf­gefið að finna þannig ham­ingju.

Hvað er leið­in­legt? Að eiga ekki alltaf orku í að sinna öllum litlu hlut­unum sem gefa líf­inu gildi.

Hvaða flokkur? Held að ég sé í O blóð­flokki 😉

Hvaða skemmti­staður? Græni hatt­ur­inn!

Kostir? Er vel giftur! Held lagi ágæt­lega, er hávax­inn þannig að ég næ í efri skápana, er þrif­inn, hef ágætis jafn­að­ar­geð, er býsna hand­lag­inn …

Lestir? Get verið hund­leið­in­legur ef ég verð svangur, get verið mjög gleym­inn, get verið eig­in­gjarn.

Hver er fynd­inn? Augljósa svarið er senni­lega Ari eða Laddi, en það rétta er fólk sem hefur húmor fyrir sjálfu sér og tekur lífið ekki of alvar­lega.

Hver er leið­in­legur? Sá sem hefur áhyggjur af hlutum sem skipta engu máli í stóra sam­heng­inu og sér bara það sem er beint fyrir framan nefið á honum.

Trúir þú á drauga? Ekki endi­lega drauga en það er eitt­hvað þarna.

Stærsta augna­blikið? Þegar Marinó fædd­ist og ég varð pabbi!

Mestu von­brigðin? Ég hef oft valdið mér og öðrum von­brigðum – það er samt ekk­ert alltaf nei­kvætt, því þannig lærir maður hægt og bít­andi að verða almenni­legur!

Hver er draum­ur­inn? Hann er eig­in­lega að ræt­ast á hverjum degi sem ég vakna með fjöl­skyld­unni – trikkið er að fatta það og lifa draum­inn – ekki alltaf vera að elt­ast við hann.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Að fá að spila með Stuð­mönnum fer frekar ofar­lega á þann lista!

Ertu búinn að ná öllum þínum mark­miðum? Auðvitað ekki!

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Þau eru alltof mörg til þess að ég fari að tína eitt­hvað til …

Sorg­leg­asta stundin? Þegar mamma dó.

Mesta gleðin? Endalaus atriði sem tengj­ast fjöl­skyldu minni – það er líka ótrú­leg gleði sem fylgir því að standa á sviði stundum.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Að hugsa um eitt­hvað annað en sjálfan sig …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu