Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Geir um heillandi heimsálfu: „Nýleg dæmi á Íslandi áminning um vandann“

Geir um heillandi heimsálfu: „Nýleg dæmi á Íslandi áminning um vandann“
Sam­starfs­að­ilar á Félags­vís­inda­stofn­un­inni í Bissá. Frá vinstri: Ludmila Abinande Barreto Ferreira, Zeca Jandi, Geir, Fatou N´dure Baboudóttir og Jónína Ein­ars­dóttir

„Það hefur alltaf verið erfitt að kynn­ast marg­vís­legum birt­ing­ar­myndum fátæktar og þá sér­stak­lega dauðs­föllum kvenna vegna barns­burðar og ungra barna sem auð­veld­lega hefði verið hægt að koma í veg fyrir með betri þjón­ustu. Hár mæðra- og barna­dauði í Afríku og víðar í lág­tekju­löndum er óásætt­an­legur þar sem við höfum þekk­ing­una til að koma í veg fyrir hann. Það er háð hverju til­viki fyrir sig hvernig ég hef brugð­ist við en nær­vera og auð­mýkt gagn­vart hverri áskorun hefur reynst mér best.“

Þetta segir Geir Gunn­laugs­son, eig­in­maður, faðir, afi, barna­læknir, pró­fessor emer­ítus í hnatt­rænni heilsu, for­maður Afríku 20:20 – áhuga­manna­fé­lags um Afríku sunnan Sahara og kjör­ræð­is­maður Gíneu-Bissá á Íslandi. Við fengum að heyra frá reynslu hans í Afríku og hvað varð til þess að hann hóf þessa veg­ferð.

Fyr­ir­lögn á Planet Youth spurn­inga­list­anum í Bissá í júní 2017.

Afríka sunnan Sahara er heillandi heimsálfa

„Við Íslend­ingar njótum þeirra for­rétt­inda að lifa í sam­fé­lagi þar sem friður ríkir. Friður er

Super Mama Djombo við Þor­valds­eyri undan Eyja­fjalla­jökli í ágúst 2010

mik­il­væg auð­lind en það þarf ekki mikið til að kveikja elda sem erfitt er að slökkva, þess sjást því miður dæmi mjög víða. Það þarf því að hlúa að og efla frið um allan heim svo börn og full­orðnir fái tæki­færi til að vaxa, þroskast og lifa í sam­ræmi við getu sína og óskir og þannig lagt sterk­ari stoðir undir þau sam­fé­lög þar sem þau eru og vilja búa. Vopnuð átök, vax­andi áhrif hnatt­rænnar hlýn­unar og ójöfn­uður eru áskor­anir sem við eigum að láta okkur varða og þar vísar unga fólkið okkur áfram veg­inn, sem endranær.“

Afríka sunnan Sahara er heill­andi álfa eins og Geir hefur fengið að kynn­ast í gegnum störf og ferða­lög. Áhrifa nýlendu­stefn­unnar gætir enn og Geir segir að rót­gró­inn ras­ismi á heims­vísu sé ein afurð hennar sem þurfi að berj­ast gegn með öllum ráðum. Rányrkja auð­linda sé einn angi hennar og stunduð í mörgum löndum, gjarnan í skjóli spill­ingar, og alþjóð­legt átak þurfi til þess að vinna gegn henni.

„Nýleg dæmi um þetta hér á landi ættu að vera okkur á Íslandi áminn­ing um vand­ann. Ég er þó sann­færður um að álfan muni með tíð og tíma ná miklum árangri, bæði í félags- og efna­hags­legu til­liti, en um tveir af hverjum þremur íbúum álf­unnar eru yngri en 25 ára. Fram­tíð­ar­horfur álf­unnar er einmitt eitt við­fangs­efna í nýrri bók um álf­una sem ég er að vinna að ásamt sam­starfs­fólki í Afríka 20:20.“

Uppspretta skemmtilegrar reynslu

röð til­vilj­ana mynda ákveðið mynstur sem hefur lagt grunn að fjöl­breyttum starfs­ferli

Það kom Geir mest að óvart hvernig röð til­vilj­ana mynda ákveðið mynstur sem hefur lagt grunn að fjöl­breyttum starfs­ferli og verið upp­spretta skemmti­legrar reynslu fyrir alla fjöl­skyld­una. Fyrst má nefna mik­il­vægi tungu­mála­kunn­áttu og hvernig þekk­ing á spænsku óvænt ruddi leið hans til Gíneu-Bissá þar sem portú­galska er opin­bert tungu­mál. Vegna vinnu hans þar bauðst honum að koma í fram­halds­nám í barna­lækn­ingum við Karol­inska/St. Göran barna­sjúkra­húsið í Stokk­hólmi þar sem hann lauk dokt­ors­prófi í barna­lækn­ingum og meist­ara­prófi í lýð­heilsu. Hvoru tveggja var byggt á verk­efnum frá starfs­vett­vangi hans í land­inu. Á sama hátt fór Jónína kona hans í nám í mann­fræði en hún er í dag pró­fessor í þeirri fræði­grein við Háskóla Íslands.

„Það kemur einnig á óvart hvernig reynsla á vett­vangi í Gíneu-Bissá hefur nýst í öðrum störfum mínum hér á landi, t.d. sem for­stöðu­maður Mið­stöðvar heilsu­verndar barna innan Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, pró­fessor í lýð­heilsu við Háskól­ann í Reykja­vík, land­læknir og nú sem pró­fessor í hnatt­rænni heilsu við Háskóla Íslands.“

unnið við kennslu og rann­sóknir á Íslandi, í Gíneu-Bissá í Vestur-Afríku og Malaví í sunn­an­verðri Afríku

 Und­an­farin sex ár hefur Geir verið pró­fessor í hnatt­rænni heilsu í félags­fræði-, mann­fræði- og þjóð­fræði­deild á félags­vís­inda­sviði Háskóla Íslands, nú emer­ítus. Starfið hefur verið honum ein­stak­lega gef­andi þar sem hann hefur unnið við kennslu og rann­sóknir á Íslandi, í Gíneu-Bissá í Vestur-Afríku og Malaví í sunn­an­verðri Afríku.

Löng saga sem á rætur í áhuga á fólki

Þegar Geir er aðspurður hvers vegna hann hafi farið þessa leið, svarar hann að það sé; „löng saga sem á rætur í áhuga á fólki, við hvers konar aðstæður. Ferð til Mexíkó 1971-72 lagði m.a. grunn, sem ég og eig­in­kona mín Jónína Ein­ars­dóttir fylgdum eftir með spænsku­námi og ferða­lögum um Mexíkó, Mið-Ameríku og Kúbu árin 1979 og 1980 eftir að við lukum háskóla­námi, ég með lækna­próf en hún sem efna­fræð­ingur og kenn­ari. Eitt leiddi af öðru og fyrir röð til­vilj­ana, m.a. vegna spænsku­kunn­áttu og fyrri ferða­laga, buð­ust okkur störf í Gíneu-Bissá, ég fyrir sænsku þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­un­ina Sida, Jónína fyrir Afrika­grupp­erna sem eru sænsk félaga­sam­tök sem studdu m.a. fólk til sjálf­boða­liða­starfa í álf­unni. Þangað komum við fyrst árið 1982 og dvöldum þar í þrjú ár sem lagði grunn að lif­andi tengslum við land og þjóð í sem hefur haldið í nær fjóra ára­tugi.“

End­ur­bygg­ing og stækkun grunn­skól­ans í Dorse í Biombosýslu í júlí 2021

Gínea-Bissá er lítið land, tæp­lega þriðj­ungur af stærð Íslands, í dag með tæp­lega tvær millj­ónir íbúa. Í land­inu eru um tveir tugir þjóð­ern­is­hópa með tungu­mál sem eru sum jafn fram­andi og íslenska er rúss­nesku.

„Það var því mikil reynsla fyrir mig að vinna í þessu umhverfi við lækn­ingar á börnum, for­varnir og rann­sóknir, bæði í höf­uð­borg­inni og úti á landi. Samtímis hafði Jónína umsjón með og var kenn­ari í nýju námi fyrir meina­tækna við nýstofn­aða lýð­heils­u­rann­sókn­ar­stofu lands­ins.

ein­stök reynsla að finna fyrir þeirri bjart­sýni og gleði almenn­ings

Geir talar um að það hafi verið mjög gott að búa í land­inu og ein­stök reynsla að finna fyrir þeirri bjart­sýni og gleði almenn­ings sem fylgdi því að vera búinn að losa sig undan fjötrum nýlendu­stefnu Portú­gala eftir 11 ára vopn­aða bar­áttu. Hún end­aði 25. apríl 1974 með nellíku­bylt­ing­unni þegar m.a. fjöldi fyrr­ver­andi áhrifa­manna í portú­galska hernum í Gíneu-Bissá steypti fas­ista­stjórn­inni í Lissa­bonn af stalli, enda bar­áttan löngu töpuð í fyrrum nýlendum þeirra í álf­unni, ekki bara í Gíneu-Bissá. Portú­galar hafa því að vissu leyti frels­is­bar­áttu í fyrrum nýlendum að þakka að þeir los­uðu sig nokkuð frið­sam­lega undan ein­ræð­is­stjórn lið­inna ára­tuga.

Á tímum mikilla breytinga

 Þegar þau hjónin komu til Gíneu-Bissá vorið 1982 var mik­ill skortur á mennt­uðu fólki og til dæmis var nán­ast eng­inn með lækn­is­menntun. Rafmagn var stop­ult, og þau þakk­lát ef það fékkst þó ekki væri nema í 8-12 klst dag­lega. Síma­kerfið var með mjög tak­mark­aða dreif­ingu og því not­uðu þau aldrei síma fyrstu þrjú árin sem þau bjuggu í land­inu.

Við fundum mjög fyrir þessum breyt­ingum gegnum sam­starfs­fólk okkar sem sá lífs­kjör sín fara hratt versn­andi á þessum árum.

„Við komum til Gíneu-Bissá á tímum mik­illa breyt­inga. Stefna Alþjóða­bank­ans, s.k. upp­bygg­ingar- og aðlögun­ar­stefna (á ensku structural adju­st­ment program (SAP)), gekk þá í ljósum logum um álf­una. Í dag er hún tekin sem dæmi um hvernig stefna nýfrjáls­hyggju, hönnuð af fyrrum nýlendu­herrum, var látin ríða á nýfrjálsum löndum með hörmu­legum afleið­ingum fyrir fólkið. Við fundum mjög fyrir þessum breyt­ingum gegnum sam­starfs­fólk okkar sem sá lífs­kjör sín fara hratt versn­andi á þessum árum. Margar rann­sóknir hafa síðan sýnt fram á að þess­ari stefnu fylgdi hærri mæðra- og barna­dauði, svo dæmi séu tekin. “

Sú gef­andi reynsla að búa og starfa í Gíneu-Bissá leiddi til þess að þau hjónin ákváðu að fara á ný til Gíneu-Bissá 1993 með þremur sonum þeirra, þá 2, 6 og 7 ára gömlum. Geir starf­aði fyrir Hjálp­ar­stofnun dönsku kirkj­unnar (DCA) sem ráð­gjafi hér­aðs­stjórnar heilsu­gæslu Biombosýslu. Á meðan vann Jónína að öflun gagna fyrir dokt­ors­verk­efni sitt í mann­fræði þar sem hún skoð­aði við­brögð mæðra við barna­dauða. Þau bjuggu í fimm ár í litlu þorpi um 40 km utan höf­uð­borg­ar­innar sem var ómet­an­leg reynsla fyrir þau öll.

Sérstaklega ánægjulegt að hafa lagt eitthvað af mörkum

„Þegar ég lít til baka er ég svo stoltur af öllum þeim störfum sem ég hef fengið tæki­færi til að sinna hér heima á Íslandi og erlendis. Það er þó sér­stak­lega ánægju­legt að hafa lagt eitt­hvað af mörkum í landi eins og Gíneu-Bissá og síðar við heilsu­gæslu­verk­efni Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar Íslands í Monkey Bay í Malaví en ég var ráð­gjafi stofn­un­ar­innar um það verk­efni í rúman ára­tug. Mér þykir einnig vænt um að hafa lagt hönd á plóg­inn þegar Unicef á Íslandi var að taka sín fyrstu skref á Íslandi og ákvað að veita stuðn­ing við Gíneu-Bissá. Ég er stoltur af því að sögu­fræg­asta hljóm­sveit Gíneu-Bissá, Super Mama Djombo, sem er jafn­gömul lýð­veld­inu, skuli hafa komið til Íslands þrisvar sinnum. Hún kom fyrst árið 2007 til að taka upp hljóm­diskinn Ar puro við bestu aðstæður og því fylgt eftir með tveimur tón­leikum  á Lista­há­tíð í Reykja­vík 2008 og tón­leika­ferð um landið sum­arið 2010. Tónlist sveit­ar­innar er sam­ofin nýfengnu sjálf­stæði þjóð­ar­innar og þeim breyt­ingum sem hafa fylgt og tengslin við Ísland hafa síðan haft marg­vís­leg áhrif á tón­list­ar­líf lands­ins.“

Á þeim tíma voru hund­ruð s.k. með­al­drægra kjarn­orkuflauga stað­settar víða í þétt­býli Vestur-Evrópu og ógn­uðu lífi og heilsu fólks um alla álf­una á tímum kalda stríðs­ins.

Hann seg­ist einnig vera stoltur af Frið­ar­göng­unni frá Stokks­nesi að Höfn í Horna­firði sem hann tók þátt í að skipu­leggja ásamt öðru góðu fólki árið 1981. Á þeim tíma voru hund­ruð s.k. með­al­drægra kjarn­orkuflauga stað­settar víða í þétt­býli Vestur-Evrópu  og ógn­uðu lífi og heilsu fólks um alla álf­una á tímum kalda stríðs­ins. Hann starf­aði þá sem heilsu­gælsu­læknir á Höfn og stóð stuggur af þess­ari þróun ásamt mörgum öðrum í bænum en þá var rat­sjár­stöð banda­ríska hers­ins starf­andi í u.þ.b. 20 km frá Höfn þar sem þau bjuggu.

„Ég hef líka margs að minn­ast af fjöl­breyttum rann­sóknum sem ég hef unnið að, bæði hér heima og erlendis. Þar mætti til dæmis nefna rann­sóknir um brjósta­gjöf, kól­eru og misl­inga, líf og heilsu ung­linga og heim­il­is­of­beldi og afleið­ingar þess á Íslandi. Útgáfa bók­ar­innar Afríka sunnan Sahara í brennid­epli var einnig ánægju­legur áfangi, gefin út af Afríka 20:20 árið 2007. Einnig vil ég sér­stak­lega nefna tvær bækur um sið­inn að senda börn í sveit sem ég vann að með Jónínu og öðru góðu sam­starfs­fólki. Þær voru gefnar út af Hinu íslenska bók­mennta­fé­lagi í nóv­em­ber 2019, það er Send í sveit. Þetta var í þjóð­arsál­inni, fræði­leg grein­ing á siðnum frá fjöl­mörgum sjón­ar­hornum og mynda­bókin Send í sveit. Súrt, saltað og heima­bakað. Þó svo ég hafi aldrei sjálfur farið í sveit þá var sið­ur­inn alls­ráð­andi þegar ég var alast upp í Reykja­vík og borgin tæmd­ist af krökkum sem fóru í sveit á sumrin. Þessi siður er enn við lýði en í miklu minna umfangi en áður og í breyttu formi. Því var mik­il­vægt að skrá­setja þessa reynslu núlif­andi Íslend­inga, eins og við höfum gert í þessum tveimur bókum. “

Nokkuð vel geymt leyndarmál

Geir sinnir nú starfi sínu sem pró­fessor emer­ítus við Háskóla Íslands við kennslu og rann­sóknir. Hann er nú leið­bein­andi tveggja dokt­or­snema við Háskóla Íslands. Önnur þeirra vinnur við að rann­saka marg­vís­legar birt­ing­ar­myndir ójöfn­uðar í lífi ung­linga í Gíneu-Bissá, hin vinnur að rann­sóknum á kyn­heil­brigði kvenna í Malaví með áherslu á aðgang að getn­að­ar­vörnum.

Síð­ast­liðin ár hefur Geir verið að vinna að frek­ari rann­sóknum meðal ung­linga í Gíneu-Bissá, og er þátt­tak­andi í Planet Youth verk­efn­inu sem leitt er af Rann­sóknir og grein­ingu við Háskól­ann í Reykja­vík.

„Það er lík­lega nokkuð vel geymt leynd­ar­mál að áhrifa Planet Youth gætir í rúm­lega þriðja tug landa og hund­ruðum sveit­ar­fé­laga í Evrópu, Norður- og Suður-Ameríku og Ástralíu – og í Afríku sunnan Sahara gegnum vinnu okkar í Bissá. Ég er einmitt að fara til Guanoju­ato í Mexíkó til að að taka þar þátt í ráð­stefnu í lok nóv­em­ber vegna inn­leið­ingar á aðferða­fræði Planet Youth í hér­að­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu