Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragnheiður missti móður sína úr hræðilegum sjúkdómi: „Já, ertu dóttir mín, þú ert falleg.“

Ragnheiður missti móður sína úr hræðilegum sjúkdómi: „Já, ertu dóttir mín, þú ert falleg.“
Mynd. Skjáskot/RÚV

„Í raun er einnig ákveð­inn van­skiln­ingur eða skortur á við­ur­kenn­ingu gagn­vart þeirri sorg að missa frá sér ein­stak­ling í sjúk­dóm eins og Alzheimer. Hann er jú lif­andi þótt smátt og smátt hverfi minnið. Sumir breyt­ast líka mikið,“ segir Ragn­heiður Lár­us­dóttir, rit­höf­undur í við­tali við Vikuna, en hún sendi frá sér ljóða­bók­ina 1900 og eitt­hvað og hlaut fyrir Bók­mennta­verð­laun Tómasar Guð­munds­sonar og til­nefn­ingu til Maí­stjörn­unnar .

„Hún hélt alltaf sínum per­sónu­leika þótt hún myndi stundum ekki eftir mér. Ég sagði henni að ég væri dóttir hennar og hún svar­aði glöð: „Já, ertu dóttir mín, þú ert fal­leg.“ Vinkona mín fékk akkúrat öfug við­brögð frá móður sinni. „Ertu dóttir mín, þú ert ekk­ert sér­lega fal­leg.“ Það er öllu verra,“ þetta útskýri Ragn­heiður í sam­tali við Stein­gerði blaða­mann Vikunnar.

Ragn­heiður er fædd í Reykja­vík árið 1961 en ólst upp að mestu í Önund­ar­firði þar sem faðir hennar var prestur og móð­irin hjúkr­un­ar­fræð­ingur á heilsu­gæsl­unni á Flateyri. Fyrri bók hennar var end­ur­lit til þeirra tíma, æsk­unnar þegar ekki var sjón­varp á fimmtu­dögum og hvorki far­símar né skjáir trufl­uðu vit­und barna. Í bók hennar Gler­flísaklið er hún hún á per­sónu­legu nót­unum og nálægt þeirri mann­eskju sem hún er í dag. Þar er brugðið upp myndum af tveimur konum, móð­ur­inni sem er að hverfa í svart­hol Alzheimer-sjúk­dóms­ins og dótt­ur­innar sem er að ganga í gegnum skilnað.

Í bók hennar Gler­flísakliður byggja per­són­urnar á raun­veru­legum sam­skiptum.

„Samtölin eru sum mjög nákvæm. Móðir mín dó fyrir þremur árum og var þá orðin mjög veik af Alzheimer. Hætt að geta talað almenni­lega undir það síð­asta. Ég fann fyrir að sorgin vegna skiln­að­ar­ins var ekki við­ur­kennd í sam­fé­lag­inu. Maðurinn var ekki dáinn og ekki móðir mín heldur. Þetta var ansi mikið að takast á við allt á sama tíma, að þurfa auk þess að selja heim­ilið og byrja upp á nýtt. Ég mætti í vinn­una dag­inn eftir að hann labb­aði út. Vinkona mín og sam­starfs­kona spurði mig hvort ég væri veik. Ég svar­aði: „Nei, ég er ekki veik. Maðurinn minn til þrjá­tíu og sex ára gekk út í gær.“ Þá átt­aði ég mig á að þetta væri nokkuð mikið.“

Í raun er einnig ákveð­inn van­skiln­ingur eða skortur á við­ur­kenn­ingu gagn­vart þeirri sorg að missa frá sér ein­stak­ling í sjúk­dóm eins og Alzheimer. Hann er jú lif­andi þótt smátt og smátt hverfi minnið. Sumir breyt­ast líka mikið.

Blaða­maður spyr hvort að Ragn­heiður sé að nota skrifin til að kryfja þetta tíma­bil eða gera það upp?

„Já, það má alveg segja það. Þetta eru allt ný ljóð og ekki með­vitað að ég væri að nota þau sem þerapíu fyrir sjálfa mig en þau gögn­uð­ust samt þannig. Þegar ég var komin af stað með þetta fór ég líka að hugsa um að þetta gæti nýst ein­hverjum öðrum í svip­uðum aðstæðum. Hjóna­skiln­aðir eru auð­vitað mjög algengir og tíðni Alzheimers er að aukast jafn­framt því að þjóðin eld­ist.“

Ragn­heiður segir svo að lokum varð­andi næstu skref hennar í skrifum. „Ég hef ekki skrifað skáld­sögu og ég hef reynt að skrifa smá­sögur en finnst það ekki alveg mitt form enn þá. Ég er hins vegar með þriðja ljóða­hand­ritið í smíðum. Annars verður þetta bara að koma í ljós. Þetta kemur svona í höf­uðið á mér og er þar að velt­ast þar til ég skrifa það niður. Það hefur alltaf verið þannig. Þetta leitar á mig þar til ég verð bara að setj­ast niður og skrifa. En ég gerði það ekki í mörg ár þannig að margt fór bara for­görðum.“

Heimild:

Stein­gerður Stein­ars­dóttir. 2021. Sorg sem er ekki við­ur­kennd. Vikan

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu