Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Staðgengill Kristjáns Þórs hættir störfum á Húsavík: „Og þau vilja bara fá mig suður“

Staðgengill Kristjáns Þórs hættir störfum á Húsavík: „Og þau vilja bara fá mig suður“

Hálfgert stjórn­leysi ríkir í bæj­ar­málum á Húsavík vegna fjar­vista Krist­jáns Þórs Magn­ús­sonar, sveit­ar­stjóra Norð­ur­þings, sem hefur verið í veik­inda­leyfi um langa hríð. Bæj­ar­stjórn er að vinna að fjár­hags­á­ætlun að sveit­ar­stjór­anum fjár­ver­andi. Stað­geng­ill Krist­jáns Þórs, Drífa Valdi­mars­dóttir fjár­mála­stjóri, hefur sagt starfi sínu lausu og hyggst hætta störfum.

Drífa Valdi­mars­dóttir hefur tekið slag­inn á Húsavík á meðan sveit­ar­stjór­inn er í veik­inda­leyfi.

Í sam­tali við Mannlíf seg­ist Drífa hafa verið að horfa í kringum sig í nokkurn tíma og hafi loks fundið hent­ugt starf. Hún segir ástæð­una fyrir brott­hvarfi sínu úr sveit­ar­stjórn Norð­ur­þings vera þá að hún sé búin að starfa þar í fjögur og hálft ár, á Húsavík, en fjöl­skylda hennar sé í Reykja­vík. „Og þau vilja bara fá mig suður.“

„Það starf sem ég hef þegið núna – ég sótti um það í ágúst og var ráðin í það núna í nóv­em­ber. Svo þetta hefur bara tekið þennan tíma.“

Drífa seg­ist verða í sveit­ar­stjórn Norð­ur­þings fram í febr­úar. „Það er svona við­miðið. Ég mun að sjálf­sögðu hjálpa Norð­ur­þingi við að ráða hér nýjan fjár­mála­stjóra og koma honum inn í störfin.“

Drífa mun svo hefja störf sem fram­kvæmda­stjóri leigu­fé­lags­ins Bríetar í Borg­ar­nesi. Hún stefnir því að því að vera búsett þar.

Drífa er stað­geng­ill sveit­ar­stjóra. Aðspurð segir Drífa að stefnt sé að því að hann komi til baka um ára­mót.

„Jú, ég geri ráð fyrir því að hann stefni að því að koma um ára­mótin. Það er upp­leggið hjá okkur.“

Hún segir engan annan vera í start­hol­unum til að taka við starfi sveit­ar­stjóra eða stað­geng­ils. „Ekki sem mér er kunn­ugt um.“

Fjöl­skylda Krist­jáns Þórs stefnir að flutn­ingi til Reykja­víkur fyrir ára­mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Slúður