Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Alice er í krabbameinsmeðferð: „Sagði mér strax að þetta liti ekki vel út“

Alice er í krabbameinsmeðferð: „Sagði mér strax að þetta liti ekki vel út“
Mynd. Skjáskot/reykja­vík knitt­ing festi­val

Alice Olivia Clarke heldur úti versl­un­inni Tíra í Firði versl­un­ar­kjarn­anum í Hafn­ar­firði þar sem hún selur ljóm­andi fylgi­hluti sem hún hefur hannað og búið til frá árinu 2008. Hlut­irnir eru úr sam­ofnum lopa og er end­ur­skins­þráður und­ir­staða Tíru, sem hefur hjálpað ótal Íslend­ingum að verða sýni­legri á und­an­förnum árum.

Ástæða þess að hún hóf fram­leiðslu á þessum fal­legu end­ur­skins­merkjum er að engu mun­aði að hún hafi ekið á mann­eskju sem var nær ósýni­leg í dökkum fötum í vetr­ar­myrkr­inu á Íslandi. Þá fór Alice að líta í kringum sig og tók eftir að of fáir voru með end­ur­skins­merki. En nú snýst þetta ekki bara um sýni­leika í svarta myrkri heldur mun fremur um að upp­lýsa. Auka vit­neskju um brjóstakrabba og að minna á brjósta­sjálfs­skoðun.

Nýir fylgi­hlutir gera það á ein­stakan hátt, en Alice er sjálf í miðri krabba­meins­með­ferð og er stærsta æxlið á stærð við Djúpa­lón­sperlu

Fjölskylda og vinir hafi myndað skjaldborg um hana

Hug­myndin af þessu verk­efni kviknað út frá því þegar: „ég fann sjálf æxlið,“ segir hún í sam­tali við Stein­gerði, blaða­mann Vikunnar. „Ég var bara að dansa heima, svona eins og maður gerir. Ég hef alltaf tékkað af og til og allt í einu fann ég eitt­hvað undir fing­ur­gómunum og hugs­aði með mér: Hey, hvað er í gangi. Eitthvað óvenju­legt var í brjóst­inu þannig að ég færði fing­urna neðar og undir hend­urnar og þar var eitt­hvað meira. Lækn­ir­inn minn, hún er dásam­leg. Hún sagði mér strax að þetta liti ekki vel út og upp í hug­ann kom bara: Já okei. Ég var komin í brjósta­mynda­töku innan örfárra daga og fékk nákvæm­ari skoðun. Ég fór líka í sónar og allan tím­ann meðan á því stóð fund­ust mér æxlin helst líta út eins og stein­arnir á Djúpa­lóns­sandi og þá fædd­ist þessi hug­mynd.“

Ágóði af sölu þess­ara ein­stöku fylgi­hluta mun renna til Krabba­meins­fé­lags­ins og styrkja rann­sóknir á brjóstakrabba­meini. Alice segir að fjöl­skylda hennar og vinir hafi myndað um hana skjald­borg og sýnt henni ein­staka umhyggju en það hafi sam­fé­lagið í Hafn­ar­firði gert líka.

Þegar ég fékk grein­ing­una hélt Kári í hönd­ina á mér. Ég fann að ég varð að loka á allt í smá­stund og sagði við hann: „Þú verður að hlusta og taka inn allar upp­lýs­ing­arnar. Ég verð bara að vera hérna inni í mér.“ Hann svar­aði. „Já, ég geri það.“ Allt í einu kom hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn með alls konar bæk­linga og upp­lýs­ingar um Ljósið og fleiri úrræði og ég tók við þeim og fór að skoða þá. Þá rann upp fyrir mér að þar voru engir eins og ég og ég velti fyrir mér, er ekk­ert dökkt fólk með krabba­mein?“

„Fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lagið er til­tölu­lega ungt á Íslandi og vantar enn þá fleiri liti hins mann­lega lit­rófs í bæk­ling­ana hér,“ segir Stein­gerður Stein­ars­dóttir, blaða­maður Vikunnar. Alice tekur heils hugar undir það en bætir við: „en við erum með alls konar fólk núna, í það minnsta er einn í hverri fjöl­skyldu sem er alls konar. Við verðum að fara að opna augun fyrir því. Það var meðal ann­ars þess vegna sem ég vildi takast á við þetta verk­efni. Hluti af því er að opna augu sam­fé­lags­ins fyrir fjöl­breytn­inni. Ég og Embla Sig­ur­geirs­dóttir leir­lista­kona völdum saman pal­lettu alls konar lita svo vör­urnar væru ekki bara bleikar, bláar eða hvítar til að skapa eitt­hvað sem tekur meira til­lit til allra. Þetta er mjög spenn­andi. Í stað þess að hrópa upp yfir mig, ooo af hverju er þetta svona hugsa ég alltaf, gerum eitt­hvað í því, breytum því.“

Var að hefja kynleiðréttingaferli

„Á þessum tíma var sonur okkar að hefja kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli. Við erum svo heppin að eiga þá stund sem mæli­kvarða á þær breyt­ingar sem hafa orðið í lífi okkar og þær áskor­anir sem við höfum þurft að takast á við.“

Sigtýr, eldri sonur Alice og Kára, er trans­maður og fjöl­skyldu­myndin er tekin á mjög dýr­mætu augna­bliki. „Eitt af því merki­leg­asta við þetta verk er að það er tíma­mælir. Það ger­ist á þess­ari upp­hafs­stundu ferl­is­ins og fangar það augna­blik um eilífð. Sonur okkar var á þessum tíma rétt að hefja kyn­leið­rétt­ing­ar­ferlið. Við erum svo heppin að eiga þá stund sem mæli­kvarða á þær breyt­ingar sem hafa orðið í lífi okkar og þær áskor­anir sem við höfum þurft að takast á við. Þegar ég er búin í lyfja­með­ferð­inni og þessu er öllu lokið ætla ég að fara út til Dan­merkur og horfa á mynd­verkið. Það verður áhuga­vert að sjá hversu mikið hán hefur breyst síðan þá. Það má líkja þessu við þegar börnin eru lítil og við horfum stundum á þau og veltum fyrir okkur hvernig þau muni líta út þegar þau vaxa upp. Nú horfi ég á son minn og sé hversu mynd­ar­legur, hæfi­leik­a­ríkur og sterkur hán er og það er dásam­legt. Að geta horfið aftur til þess augna­bliks þegar allt þetta var að hefj­ast er svo magnað.“

Styrmir, yngri sonur Alice og Kára, er núna í Lýð­há­skóla í Danmörku að læra inn­an­húss­hönnun, hús­gagna­hönnun, leir­list og eitt enn fag sem mamma hans man ekki hvað er í augna­blik­inu. „EEH, eitt­hvað skemmti­legt, eitt­hvað sem passar inn í þennan heim,“ segir hún og skelli­hlær. Kári átti dótt­ur­ina Ýr fyrir og Alice fékk hana í kaup­bæti. „Ég er búin að þekkja hana mjög lengi,“ segir Alice og vænt­um­þykjan leynir sér ekki í rödd­inni.

Kynntust í Kanada

En hvernig stóð á því upp­haf­lega að stúlka frá Ottawa í Kanada tók sig upp og hélt til Íslands? „Ég kynnt­ist mann­inum mínum, Kára Eiríks­syni, þegar hann var að læra arki­tektúr úti í Kanada fyrir þrjá­tíu árum. Við höfum verið saman lengi, lengi,“ segir hún og brosir sínu ljóm­andi brosi. Það er aug­ljóst að árin hafa liðið fljótt og ekki verið leið­in­leg. Þau bjuggu í Kanada í tvö ár meðan Kári var að klára námið en fluttu hingað árið 1993. „Ég hef í raun búið lengur á Íslandi en í Kanada,“ segir hún. „Ég var tutt­ugu og tveggja þegar ég kom og er nú fimm­tíu eins árs.“

Hjónin búa í gömlu húsi í miðbæ Hafn­ar­fjarðar. Þar er meðal ann­ars að finna fal­leg mósaíkborð eftir hana og í kjall­ar­anum er arki­tekta­stúdíó Kára og vinnu­stofa.

Heimild:

Stein­gerður Stein­ars­dóttir.2021. „Ég vel mína slagi vand­lega.“ Vikan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu