Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hótaði að brjóta fætur Ragnars – Landsliðsmaðurinn neitar viðtali um meinta ofbeldishegðun

Hótaði að brjóta fætur Ragnars – Landsliðsmaðurinn neitar viðtali um meinta ofbeldishegðun
Mynd / Skjáskot RÚV.

Nágranni fyrr­ver­andi eig­in­konu lands­liðs­manns­ins Ragnars Sig­urðs­sonar hót­aði að brjóta fætur leik­manns­ins léti hann ekki af ofbeld­is­hegðun sinni í garð kon­unnar. Sá hinn sami til­kynnti ofbeldið til KSÍ án þess að knatt­spyrnu­sam­bandið aðhefð­ist nokkuð í mál­inu. Ragnar hefur neitað Mannlífi um við­tal vegna hegð­unnar sinnar.

Mannlíf greindi fyrst frá ofbeld­is­hegðun Ragnars síð­ast­liðið sumar. Frá­sagnir vitna sem Mannlíf ræddi við eru á þá leið að Ragnar hafi misst stjórn á sér og fengið reiði­kast á heim­ili sínu. Atburð­ur­inn átti sér stað í fjöl­býl­is­húsi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem Ragnar bjó með fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni, þegar hann var í heim­sóknum hér á landi sem atvinnu­maður erlendis. Þegar heim var komið gekk Ragnar ber­serks­gang á heim­il­inu, án þess að veita konu sinni sjá­an­lega áverka eftir því sem Mannlíf kemst næst. Vitnin bera því við að lands­liðs­mað­ur­inn hafi verið fluttur af heim­ili sínu af lög­reglu og var mak­inn fyrr­ver­andi í miklu upp­námi þessa nótt.

Sjá einnig:

Lands­liðið í stormi sam­fé­lags­miðla – Ásakanir um kyn­ferð­is­brot og heim­il­is­of­beldi

Nágranni sem hlúði að mak­anum fyrr­ver­andi þessa nótt hringdi dag­inn eftir í KSÍ og sagði starfs­manni knatt­spyrnu­sam­bands­ins frá því sem gerst hafði þessa nótt og kvart­aði yfir hegðun Ragnars. Mannlíf hefur ítrekað reynt að fá við­brögð frá KSÍ vegna máls­ins. Fyr­ir­spurnin var send með tölvu­pósti á for­mann, stjórn og starfs­fólk KSÍ, sem og lands­liðs­þjálf­ara karla­lands­liðs­ins en svörin eru alltaf á sömu lund:

„Við sjáum okkur ein­fald­lega ekki fært að tjá okkur um efni erind­is­ins.“

Ragnar hefur tjáð sig í við­tali fyrir nokkrum árum að hann hafi lengi átt erfitt með að hemja skap sitt, enda mik­ill keppn­is­maður. Mál hans hafa ekki farið fyrir dóm­stóla og fór Mannlíf yfir málið með lög­manni Ragnars. Eftir umhugsun ákvað Ragnar að gefa ekki kost á við­tali.

Í úttekt­ar­skýrslu ÍSÍ vegna mál­efna KSÍ er komið inn á umrætt atvik hér að ofan. Frá mál­inu er þannig greint í skýrsl­unni:

„Gunnar Gylfason, sem á þessum tíma var starfs­maður KSÍ og A-lands­liðs karla, greindi úttekt­ar­nefnd­inni frá því í við­tali að hann hefði nokkrum dögum eftir að lög­regla var kölluð að heim­ili A fengið sím­hring­ingu frá manni sem hann þekkti ekki. Af lýs­ingu Gunnars að dæma er um annað sam­tal að ræða en það sem nágrann­inn X átti við ótil­greindan starfs­mann KSÍ og rakið er hér að ofan.

Samkvæmt Gunnari mun sá sem hringdi í hann hafa sagt honum frá því að A hafi ein­hverjum kvöldum áður gengið ber­serks­gang í eða við íbúð sína og unnið skemmdir á henni og að nær­staddir hefðu verið ótta­slegnir. Gunnar hafi spurt mann­inn hvort hann hefði ekki hringt í lög­reglu og hún komið á stað­inn vegna þessa sem hann svar­aði ját­andi. Þegar Gunnar spurði hvað hann ætti að gera í mál­inu fyrst lög­reglan væri með með það sner­ist málið og mað­ur­inn hafi sagt Gunnari að ef A gerði þetta aftur myndi hann láta brjóta báða fætur hans en það væri vænt­an­lega ekki gott fyrir fót­bolta­mann. Gunnar kvaðst í við­tali við nefnd­ina alveg hafa séð A í ham og talið ólík­legt að þeim sem ætl­aði að brjóta á honum fæt­urna yrði vel ágengt með það.

Sjá einnig:

Segir tvo þjóð­þekkta Íslend­inga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi