Húsnæðið sem hýsir Hárhornið á Hlemmi er nú í eigu kínverskra fjárfesta, sem búsettir eru hér á landi. Torfi heitinn Geirmundsson hárgreiðslumeistari rak stofuna um langt árabil og tók dóttir hans, Lilja við af honum látnum.
Eiríkur Jónsson segir frá kaupunum á heimasíðu sinni í dag. Þar segir að kaupverðið sé trúnaðarmál en Jörundur Guðmundsson, fyrrum eigandi húsnæðisins, sem er á verðmætum stað í miðbænum, planleggur að flytja til Danmerkur von bráðar þar sem hann hyggst njóta ellinnar. Jörundur rak sjálfur hárgreiðslustofu á horninu áður en Torfi tók við.
Kaupin munu ekki hafa nein áhrif á starfsemi hárgreiðslustofunnar en samkvæmt Eiríki mun Lilja og starfsfólk hennar halda starfinu áfram á Hárhorninu en hárgreiðslustofan hefur um langt skeið verið leiðandi í lágu verði á klippingum, samkvæmt Eiríki.































Athugasemdir