Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Í fréttum var þetta helst – Fótbrotinn prestur, ósáttur viðskiptavinur, nauðgun og annað fótbrot

Í fréttum var þetta helst – Fótbrotinn prestur, ósáttur viðskiptavinur, nauðgun og annað fótbrot

Fótur Þórhalls prests kubbaðist í sundur: „Konan mín gat ekki hringt á hjálp“

Séra Þór­hallur Heim­is­son

Þór­hallur Heim­is­son prestur fót­brotn­aði afar illa í göngu­skíða­slysi í Svíþjóð fyrir ári og tók það hann langan tíma að jafna sig eftir brotið. Fótur hans kubb­að­ist í sundur og var Þór­hallur lengi rúm­liggj­andi í kjöl­farið. Reynsla Þórhalls af sænsku heil­brigð­is­kerfi er upp á tíu sam­an­borið við íslenska kerfið.

Þór­hallur býr í Svíþjóð og er vanur göngu­skíða­maður. Fyrir tæpu ári fór hann með eig­in­konu sinni í ferð sem þau hjónin munu seint gleyma.

„Við Ingileif fórum í stutta göngu­skíða­ferð sem var svo lítið mál að við tókum ekki einu sinni sím­ana með okkur. En ég lenti í hálku og datt svona líka illa. Konan mín gat ekki hringt á hjálp, síma­laus, en ég var svo hepp­inn að það kom þarna „mis­kunn­samur sam­herji“, ung kona með bleikt hár, nagla í gegnum nefið og finnskan hreim, sem var með síma. Hún gat hringt á sjúkra­bíl sem kom í skyndi Ég er ágæt­lega fær skíða­maður en í þess­ari ferð missti ég ein­beit­ing­una eitt augna­blik og datt þannig að fót­ur­inn kubb­að­ist í sundur. Ég lá alveg flatur í tvo mán­uði eftir fallið, gekkst undir aðgerð og kynn­ist sænska heil­brigð­is­kerf­inu mjög vel,“ segir Þór­hallur um atburð­inn.

Í sænska heil­brigð­is­kerf­inu var prest­inum íslenska vel sinnt:

„Ég var fluttur á sjúkra­hús, fékk þar full­komna þjón­ustu, fór í aðgerð og þegar ég vakn­aði eftir fyrstu nótt­ina var mér réttur mat­seð­ill og mér boðið að velja og leið eins og ég væri á hót­eli. Eftir sjúkra­hús­vist­ina var ég fluttur heim með sjúkra­leigu­bíl og þegar ég kom heim var spít­al­inn búinn að útvega hjóla­stól, gera bað­her­bergið hæft fyrir sjúk­ling og heim­ilið hjóla­stóla­hæft, án þess að ég bæði um það. Allt var þetta ókeypis. Þannig er nú sænska vel­ferð­ar­kerfið, 100%. Á móti eru skattar þar auð­vitað tölu­vert hærri en hér.“

Sjá alla frétt­ina: Fótur Þórhalls prests kubb­að­ist í sundur: „Konan mín gat ekki hringt á hjálp“

Bryndís mjög ósátt við Curvy: „Konan sem vinnur þar sagði að ég væri löt og ætti að fara í rækt­ina“

Bryndís Odd­geirs­dóttir

Bryndís Odd­geirs­dóttir seg­ist hafa kynnst heldur betur óskemmti­legri og hrein­lega nið­ur­lægj­andi fram­komu þegar hún var í búð­inni Curvy.

Gefum henni orðið:

„Ég fór í versl­un­ina Curvy og bað um aðstoð við að finna mér réttan brjósta­hald­ara, og starfs­menn réttu mér nokkra, og ég mát­aði en mér fannst eng­inn ná að halda nógu vel á hlið­inni; þá sagði konan sem vinnur þar að ég væri bara löt og að ég ætti að fara í rækt­ina.

Þetta fannst mér mjög sær­andi og hef ekki getað farið þarna síðan; mér var bent á að fara í Misty af konu sem var að máta föt: Hún sá hversu nið­ur­brotin ég var,“ segir Bryndís og bætir við:

„Ég fór bara í mín föt og labb­aði út.

Að búð eins og þessi, Curvy, komi svona fram við kúnn­ana sína; ég á bara ekki til orð; ég hef verslað við Curvy í mörg ár, og aldrei neitt vesen eða leið­indi hingað til. Curvy aug­lýsir sig sem búð fyrir feitt fólk, og svo geta þeir ekki aðstoðað eins og fag­fólk.

Fólk frá Biggest Loser hefur oft verslað þarna, og fengið sér mjög góð föt, en hvernig þá ef þeir eiga ekki brjósta­hald­ara sem halda við?“ spyr Bryndís og er mjög ósátt við dóna­skap­inn sem henni var sýndur.

Sjá alla frétt­ina: Bryndís mjög ósátt við Curvy: „Konan sem vinnur þar sagði að ég væri löt og ætti að fara í rækt­ina“

Þetta er mað­ur­inn sem frels­is­svipti og nauðg­aði 14 ára stúlku – „Eitthvað sem ég gerði ekki“


Einar Þór Hreins­son er mað­ur­inn sem er grun­aður um að hafa frels­is­svipt 14 ára stúlku, haldið henni í bíl sínum í þrjár klukku­stundir, mis­þyrmt henni og nauðgað. Því heldur DV fram og segir Einar 35 ára gamlan mann sem hafi verið dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot í fyrra í Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands.

Líkt og Mannlíf greindi frá var Einar úrskurð­aður í gæslu­varð­hald en hann er grun­aður um að hafa frels­is­svipt og nauðgað 14 ára stúlku á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um síð­ustu helgi. Hann svipti stúlk­una frelsi í bíl sínum í þrjár klukku­stundir þar sem hann meðal ann­ars nauðg­aði henni. Gæslu­varð­hald yfir honum var ekki fram­lengt.

Samkvæmt RÚV átti Einar sam­skipti við stúlk­una í gegnum sam­fé­lags­miðla en þar var hann afar ágengur um að fá að hitta hana. Hann hafi svo sótt hana í heima­hús þar sem hún var gestur, síð­asta laug­ar­dags­kvöld, og haldið henni fang­inni í bíl sínum í þrjá klukku­tíma. Í bílnum hafi hann nauðgað barn­inu og beitt það öðru lík­am­legu ofbeldi. Eftir brotið hafi Einar ekið henni áleiðis að heim­ili hennar og sett hana út þar skammt frá.

Þegar stúlkan hafði ekki skilað sér heim á réttum tíma höfðu for­eldrar hennar sam­band við lög­regl­una og ósk­uðu eftir aðstoð við að leita að henni. Í sam­skiptum Einars við stúlk­una á sam­fé­lags­miðlum var honum tíð­rætt um aldur hennar. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rann­sakar nú málið.

Sjá alla frétt­ina: Þetta er mað­ur­inn sem frels­is­svipti og nauðg­aði 14 ára stúlku – „Eitthvað sem ég gerði ekki“

Sjötug kona beið fót­brotin eftir hjálp í níst­ings­kulda – Þó nokkrir bílar keyrðu fram hjá

Við bakka Lag­ar­fljóts

Sjötug kona féll í hálku nálægt heim­ili sínu austur á Héraði föstu­dag­inn 3. des­em­ber. Konan gat ekki risið aftur á fætur og veif­aði því bílum sem keyrðu fram hjá í von um hjálp. Allt kom fyrir ekki en þó nokkrir bílar keyrðu fram hjá án þess að konan væri virt við­lits.

Mjög kalt var í veðri og fannst kon­unni sem heil eilífð hefði liðið á meðan hún beið eftir „mis­kunn­sömum Samverja“ en senni­lega liðu um 20 mín­útur þar til „Sam­verj­inn“ lét sjá sig.

„Það var ungur strákur á mjög stórri vinnu­vél sem stökk úr vél­inni og hjálp­aði mér inn,“ sagði konan í sam­tali við Mannlíf.

Konan fór ekki til læknis fyrr en eftir helgi og kom þá í ljós að hún var fót­brotin og brotið er nálægt ökk­l­anum. Fékk hún gifs upp að hné en vegna þess að hún hefur ekki nægan kraft í hand­leggj­unum getur hún ekki not­ast við hækjur. Náðist að útvega henni hjóla­stól sem hún notar enda má hún ekki stíga í fót­inn.

„Mig langar endi­lega að koma kærum þökkum á fram­færi til unga manns­ins sem bjarg­aði mér úti í kuld­anum, ég náði ekki nafn­inu hans,“ sagði konan að lokum við Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi