Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Fótur Þórhalls prests kubbaðist í sundur: „Konan mín gat ekki hringt á hjálp“

Séra Þórhallur Heimisson
Séra Þór­hallur Heim­is­son Mynd: Óðinn Jónsson

Þórhallur Heimisson prestur fótbrotnaði afar illa í gönguskíða­slysi í Svíþjóð fyrir ári síðan og tók það langar tíma að jafna sig eftir brotið. Fótur hans kubbaðist í sundur og var hann lengi rúmliggjandi í kjölfarið. Reynsla Þórhalls af sænsku heilbrigðis­kerfi er upp á tíu saman­borið við íslenska kerfið.

Þórhallur býr í Svíþjóð og er vanur göngu­skíðamaður. Fyrir tæpu ári fór hann með eiginkonu sinni í ferð sem þau hjónin munu seint gleyma.

„Við Ingileif fórum í stutta göngu­skíðaferð sem var svo lítið mál að við tókum ekki einu sinni símana með okkur. En ég lenti í hálku og datt svona líka illa. Konan mín gat ekki hringt á hjálp, símalaus en ég var svo heppinn að það kom þarna „miskunn­samur samherji“, ung kona með bleikt hár, nagla í gegnum nefið og finnskan hreim, sem var með síma. Hún gat hringt á sjúkrabíl sem kom í skyndi Ég er ágætlega fær skíða­maður en í þessari ferð missti ég einbeitinguna eitt augnablik og datt þannig að fóturinn kubbaðist í sundur. Ég lá alveg flatur í tvo mánuði eftir fallið, gekkst undir aðgerð og kynnist sænska heilbrigðis­kerfinu mjög vel,“ segir Þórhallur um atburðinn.

Í sænska heilbrigðis­kerfinu var prestinum íslenska vel sinnt:

,,Ég var fluttur á sjúkrahús, fékk þar fullkomna þjónustu, fór í aðgerð og þegar ég vaknaði eftir fyrstu nóttina var mér réttur matseðill og mér boðið að velja og leið eins og ég væri á hóteli. Eftir sjúkra­húsvistina var ég fluttur heim með sjúkra­leigubíl og þegar ég kom heim var spítalinn búinn að útvega hjólastól, gera baðherbergið hæft fyrir sjúkling og heimilið hjólastóla­hæft, án þess að ég bæði um það. Allt var þetta ókeypis. Þannig er nú sænska velferðar­kerfið, 100%. Á móti eru skattar þar auðvitað töluvert hærri en hér“

Þórhallur er nú orðinn góður af brotinu og eins og nýr. Hann segist annars reyna að hugsa vel um heilsuna. Í ætt hans er hjarta­kvilli en faðir hans, Heimir Steinsson, lést fyrir aldur fram úr þeim kvilla. „Ég reyni því eins og ég get að huga að hreyfingu og mataræði og umfram allt að hugsa jákvætt,“ segir Þórhallur og brosir. „Ég tók til dæmis meðvitaða ákvörðun þegar ég fótbrotnaði, að nýta tímann í eitthvað jákvætt og uppbyggilegt. Þetta var markviss ákvarðana­taka“ segir hann og hlær. „Hættan á að falla í svartsýni og neikvæðni í slíkum aðstæðum er töluverð og ég vissi það. Ég skrifaði því heila bók í rúminu, en hún heitir „Allt sem þú vilt vita um Biblíuna“

Heimild: Lifðu núna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Fjórar unglingsstúlkur eru í haldi í Malang, grunaðar um aðild að dauða skólastúlku.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli