Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vill banna blóðmerahald: „Auðvitað mun Ísteka beita samböndum og fjármunum til að stöðva það bann“

Vill banna blóðmerahald: „Auðvitað mun Ísteka beita samböndum og fjármunum til að stöðva það bann“

Ole Anton Bielt­ved­tver stofn­andi og for­maður Jarð­ar­vina, sam­taka um dýra- ,nátt­úru- og umhverf­is­vernd, ritar grein um blóð­mera­hald undir yfir­skrift­inni:

Á­form og yfir­lýs­ingar Ís­teka um dýra­vænt blóð­mera­hald stand­ast ekki! 

Þar segir Ole meðal ann­ars að „fram­kvæmda­stjóri Ísteka birti grein á Vísi nú um helg­ina, þar sem hann reynir að sann­færa les­endur um, að Ísteka gæti vel að vel­ferð dýr­anna, og, að blóð­mer­a­iðja fyr­ir­tæk­is­ins sé fag­leg og dýra­væn.

Arnþór Guð­laugs­son er fram­kvæmd­ar­stjóri Ísteka

Und­ir­rit­aður hefur skrifað 7 greinar um þá óiðju, sem hann telur blóð­mera­hald vera, og birt þær í Morg­un­blaði, Frétta­blaði og hér á Vísi síð­ustu þrjár vikur.“

Bætir við:

„Skal fyrst vísað til þess­ara greina, sem sýna, að áform og yfir­lýs­ingar Ísteka um dýra­vænt blóð­mera­hald stand­ast ekki.

Jafnvel þó að vilji fyr­ir­tæk­is­ins sé til staðar, sem ég efa ekki, enda gróði stór­felldur af þess­ari starf­semi, er dýra­vænt blóð­mera­hald óhugs­andi og ófram­kvæm­an­legt.

Hér skulu helztu rökin end­ur­tekin, til að auð­velda les­endum skoðun máls­ins:

1. Blóð­mer­arnar eru ótamdar, hálf­villt eða alvillt dýr, sem eiga ekki sam­skipti við menn, nema, þegar þau eru neydd í blóð­töku í 2-3 mán­uði á ári. Þær eru því allar varar um sig og fælnar, eru auk þess allar með lítil folöld, sem gerir þær ennþá var­kár­ari og stygg­ari.

2. Það liggur í hlut­ar­ins eðli, að það er eng­inn vegur, að skilja svona ótamda hryssu frá fol­aldi, leiða hana inn í þröngan blóð­töku­bás, reyra hana þar niður og festa með slám og reipum og snar­rífa svo höfuð upp á við og reyra það þar með hart strengdum reipum, helzt eins og í skrúfu­stykki, svo blóð­taka geti farið fram, í 15 langar mín­útur, í góðu án þess að dýrið streit­ist eða berj­ist á móti, oft­ast með öllum kröftum, til að reyna að losa sig úr prís­und­inni og undan ofbeld­inu, líka til að kom­ast aftur til­fol­alds­ins. Full­yrð­ingar um, að þessi blóð­taka geti farið fram með friði og spekt, í góðu, innan ramma dýra­vel­ferðar, þannig, að dýrið vinni með blóð­töku­mönnum, stenzt ekki; er hrein fásinna!!

3. Líf­fræði­legrar vel­ferðar dýrs­ins er heldur alls ekki gætt á full­nægj­andi hátt:

  • A. Hryss­urnar eru bæði fyl­fullar og með nýlega fæddu fol­aldi, eru sem sagt mjólk­andi. Þessu fylgir mikið lík­am­legt og and­legt álag fyrir hryss­urnar, og bannar reglu­verk þýzku mat­væla­stofn­un­ar­innar, Bundesamt für Verbraucherschutz und Lebensmittelsicherheit, blóð­töku af hryssu, þó að hún sé aðeins fyl­full, eða aðeins mjólk­andi, en íslenzku blóð­mer­arnar eru hvoru­tveggja; fyl­fullar og mjólk­andi. Þetta býður auð­vitað upp á það, að hryss­unum sé stór­lega ofboðið, and­lega og lík­am­lega.
  • B. Öll vís­indi, sem fyrir liggja, gefa til kynna, að ekki sé æski­legt eða dýra­vænt, að taka meira en 10% af blóði hryssu, sem þá er í standi til þess, að blóð­taka fari fram, og það ekki oftar en á 30 daga fresti.  Þetta er líka ein af reglum þýzku mat­væla-stofn­un­ar­innar. Við höfum talið, skv. þeim gögnum, sem við höfum haft aðgang að, að blóð­magn í íslenzkri hryssu sé 35-37 lítrar. Skv. þessu mætti taka mest 3,5 lítra af íslenzkri hryssu, einu sinni í mán­uði, ef vel­ferðar hennar væri gætt.

Ole færir í tal að „Ísteka lætur hins vegar taka 5 lítra af íslenzkum blóð­merum, í einu, og það á 7 daga fresti, alls 8 sinnum, í 2-3 mán­uði, haust hvert.

Miðað við öll þekkt vís­indi og alla þekkta staðla, er hér auð­vitað verið að mis­bjóða dýr­unum með stór­felldum hætti, líka líf­fræði­lega.“

Ole segir að Ísteka hafi stundað blóð­töku af íslenskum merum í tutt­ugu ár og mis­boðið þeim „skv. ofan­greindu og haft af því millj­arða gróða.“

Heldur áfram:

„Nú er mál að linni. Kæri les­andi, leggðu þitt af mörkum með því að und­ir­rita lista um bann við blóð­mera­haldi, þannig, að Alþing­is­menn kom­ist ekki undan því að sam­þykkja bann, þegar málið kemur fyrir Alþingi.“

Hann er öruggur á því að „auð­vitað munu alls kyns hags­muna­að­ilar, með Ísteka í far­ar­broddi, auk blóð­mera­bænda og ann­arra, sem hags­muni eiga, beita öllum sínum sam­böndum og fjár­munum til að koma í veg fyrir bann.

Það er því brýnt, að almenn­ingur, gott og dýra­vænt íslenzkt fólk, þið les­endur góðir, legg­ist öll með okkur á árarnar um það, að tryggja bann,“ segir Ole að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Blóðmerahald

AfhjúpunBlóðmerahald

PMSG: „Hormón eymdar“ frá upp­hafi til enda

Lyf úr með­göngu­horm­óni fyl­fullra, íslenskra hryssa, hafa þær „óæski­legu auka­verk­anir“ að of margir grísir, stundum of stórir, oft smáir og veikl­aðir, fæð­ast gyltum á þýskum svína­búum. Blóð­takan hefur frá því í byrjun nóv­em­ber, eftir áminn­ingu frá ESA, verið felld undir reglu­gerð um vernd dýra sem notuð eru í vís­inda­skyni. Það gæti breytt öllu, segja þýsku og sviss­nesku dýra­vernd­un­ar­sam­tökin sem rann­sakað hafa iðn­að­inn í fjögur ár.

Myndband

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi