Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jólin í minningu Árna Árnasonar símritara í Vestmanneyjum

Jólin í minningu Árna Árnasonar símritara í Vestmanneyjum

Fyrir tæpum ára­tug kom út bókin Eyjar og úteyja­líf. Þar er að finna úrval verka eftir Árna Árnason sím­rit­ara frá Grund.

„Þar er vísað til Árna Árna­sonar (1901-1962) sem jafnan var og er nefndur Árni sím­rit­ari í Eyjum enda hans aðal­starf frá því um tví­tugt til ævi­loka. Ástríða hans var að safna hvers kyns heim­ildum um Vest­manna­eyjar fyrri tíðar. Enda þótt bókin sé tæp­lega 500 síður er þar aðeins að finna sýn­is­horn af elju­verki hans. Að gefa verk Árna út í heild sinni hefði orðið mikið rit­safn en í Hér­aðs­skjala­safni Vest­manna­eyja eru varð­veittir 12 kassar með 338 stökum efn­is­at­riðum eða umfjöll­un­ar­efnum með hendi hans.

Innan marka þess að Vest­manna­eyjar er eina við­fangs­efnið má und­ar­legt heita hversu efnið er ótrú­lega fjöl­breyti­legt. Mestur bjór­inn er í grein­ar­gerð Árna um bjarg­veiði­menn í Vest­manna­eyjum frá upp­hafi og fram yfir 1950. Þar eru til­greindir 175 bjarg­veiði­menn og um flesta tekin saman ítar­leg ætt­rakn­ing og oft­ast bráð­skemmti­legar og lif­andi per­sónu­lýs­ingar.

Þá hefur Árni tekið saman miklar heim­ildir um tón­list­ar­sögu Vest­manna­eyja og upp­haf kór­a­starfs hér sem og um sögu leik­listar í Eyjum. Einnig er þar að finna sam­an­tektir um svo óskyld efni sem um fugla­veiðar, minni­stæða ein­stak­linga úr Eyjum, hrakn­ingar á sjó, búhætti á fyrri tíð, atvinnu­sögu, eigin kveð­skap og ann­arra, upp­haf ýmissa nú hvers­dags­legra þæg­inda á borð við hand­vagn­inn, bif­reið­ina, reið­hjólið, lagn­ingu vega, jafn­vel saga fyrstu rak­vél­ar­innar í Vest­manna­eyjum er rakin!

Af þess­ari upp­taln­ingu, sem aðeins nefnir fáeina efn­is­þætti, má ljóst vera að ekki kennir ýmissa heldur allra grasa í gögnum Árna. Það er létt og ljúft að týn­ast þar inni!

Rétt er að taka fram að heild­ar­safn Árna er öllum aðgengi­legt þar sem það sem ekki komst í bók­ina var sett inn á menn­ing­ar­vef Vest­manna­eyja­bæjar, heima­slóð.is.

Í til­efni jóla skal hér gripið niður í þennan ótrú­lega sjóð þar sem Árni ræðir um jólin og kirkju­ferðir fyrir um 150 árum síðan hér í Eyjum. Til hægð­ar­auka eru settar milli­fyr­ir­sagnir og sam­an­tekt hans stytt nokkuð. Rétt er að geta þess að útgangs­punktur Árna er heim­ilið á Vestari-Bústöðum, sem hann þekkti vel til. Bæði var Árni sjálfur þar fæddur og þar bjuggu lengi móð­ur­afi og –amma hans, sæmd­ar­hjónin Lárus Jónsson hrepp­stjóri og Kristín Gísla­dóttir.

Hefjum för okkar á deg­inum í dag – fyrir réttum 150 árum.

Þorláksmessa:

Á Búa­stöðum, sem var stórt og all­vel efnað heim­ili á síns tíma vísu, var á Þor­láks­messu hafður fiskur að morgni. Síðar um dag­inn voru stundum höfð fisk­tálkn, sem rifin höfðu verið úr hausum dag­inn áður og lögð í bleyti. Þau voru gjarna soðin í hangi­kjöts­soði og fram­borin með flat­kökum eða brauði. Þetta þótti ágætur matur og sjaldan mun hafa heyrst að hann væri ekki sam­boðin degi hins heilaga Þorláks. Ekki var þetta fastur siður en ekki óal­gengur meðal bænda. Sést af því að flest var notað og nýtt til hins besta. Um kvöldið var svo salt­aður fugl ásamt garða­mat og gjarna flat­kaka með.

Aðfangadagur jóla:

Á aðfanga­dag jóla var einnig hafður fiskur um morg­un­inn, nýr ef til var en ann­ars og oft­ast salt­aður eða sig­inn. Um hádegið var haft kaffi, smurt brauð og kökur, en í mið­deg­is­mat kjöt­súpa og síðan kaffi með kökum. Þá var t.d. höfð hin svo­nefnda “Imbukaka“ með kaff­inu, sem síðar hlaut nafnið jóla­kaka. Hún var hnoðuð, bökuð í potti á hlóðum og ílát hvolft yfir meðan að hún bak­að­ist. Ekki verður nú vitað hvaðan þetta Imbunafn á kök­una er komið, en senni­lega frá ein­hverri Ingi­björgu, sem fyrst hefir komið með upp­skrift hennar til Eyja. Senni­lega nokkuð gömul nafn­gift.

Jóladagur:

Á jóla­dag­inn var farið á fætur klukkan sex, gefið kaffi og brauð. Þareftir var jóla­lest­ur­inn les­inn. Til morg­un­verðar var oft hafður hrís­grjóna­grautur með rús­ínum í og sætri mjólk útá, ásamt smurðri flat­köku. Klukkan tíu var búið að borða og fór þá fólk að búast í spari­fötin, allir sem það gátu. Enginn sem heilsu hafði mátti sitja heima. Þegar komið var frá kirkj­unni fékk fólkið kaffi með smurðu brauði og kökum. Seinnipart dags­ins var haft kjöt til matar ásamt garða­mat. Fékk hver maður t.d. vænan salt­kjöts­bita, álíka af hangi­kjöti, 1 til 2 flat­kökur, 2 til 3 rúllupylsu­sneiðar, og þessutan eitt eða tvö hangi­kjöts­rif. Auðvitað fékk hver og einn jóla­kerti og var það skammtað um leið og mat­ur­inn. Að sjálf­sögðu var íslenskt smjör með brauð­matnum og munu flestir hafa haft a.m.k. ein­hvern vott af því um jólin. Á Búa­stöðum var oft­ast nægi­legt af íslensku smjöri þó ekki væri bruðlað með það. Hvers­dags­lega var að lang­mestu leyti not­aður bræð­ingur.

Heimboð milli hátíða:

Hér voru mikið tíðkuð heim­boð búenda í milli húsa um jólin og nýárið. Þáðar voru góðar veit­ingar og ýmis­legt sér til gam­ans gert t.d. mikið spilað á spil og voru algeng­ustu spilin „púkk“ og „alkort“. Til gjald­mið­ils í spilum hafði fólk fiskikvarnir eða jafn­vel gler­brot en síðar óbrenndar kaffi­baunir. Á meðan hús­bænd­urnir voru í heim­boðum til kunn­ingj­anna, fékk heima­fólkið að skemmta sér. Fékk það þá oft­ast mat í eina góða mál­tíð.

Gengið til kirkju:

Oft var nokkrum erf­ið­leikum bundið að kom­ast til kirkju t.d. aft­an­söngs­ins og vera á ferli utan þorps­ins í myrkri. Vegir voru fáir um þorpið sjálft og helst engir utan þess, nema Kirkju­veg­ur­inn „neðan úr sandi“ og upp að kirkju, Vil­borg­ar­staða­vegur frá versl­un­ar­staðnum og upp á Vil­borg­ar­staði. Aðal­vegur þorps­ins var ann­ars Strand­veg­ur­inn, sem var frá Aust­ur­búð­inni með­fram aðal­at­hafna­svæð­inu við hrófin, fiskikrónum og Læknum, vestur að Júl­íus­haab, (Tanga).

Engin voru götu­ljósin og allt hulið glóru­lausu myrkri. Var göngu­færi þess­vegna stundum slæmt vegna bleytu og mold­ar­eðju um troðn­inga og þröngar slóðir. Umferð­ina bættu mikið ljós­luktir, sem hvert heim­ili átti og not­aði til kirkju­ferða og ann­arrar umferðar er kvölda tók. Þetta voru litlar hand­luktir úr þunnum við og léttum. Þær höfðu gler á þrem köntum en renni­loka á einum. Í lukt­inni brann eitt kerta­ljós og var loft­ræst­ing undir hand­fang­inu. Hún var borin fyrir gang­andi fólk­inu og lýsti furðu vel þareð líka oft voru margir á ferð saman með luktir t.d. í kirkju­ferðum. Ekki þættu þessar luktir merki­legar nú til dags, en þá þóttu þær fínar og ómissandi hverju heim­ili.

Það var mjög skemmti­legt og hátíð­legt að sjá frá Búa­stöðum, þegar ljósin komu austan frá Kirkju­bæj­unum í langri röð eftir götu­slóð­unum á tún­unum á leið til aft­an­söngs­ins. Framhjá Búa­stöðum fór hóp­ur­inn klukkan hálf sex og hélt vestur eftir. Þar bætt­ust svo við í röð­ina fjöl­skyldur Búastaða, Nýja­bæjar og Ólafs­húss. Varð þetta þá orð­inn all­fjöl­mennur hópur, máske 25 til 30 manns og margar luktir lýstu leið­ina.

Í forkirkju Landa­kirkju höfðu margir þann sið að skipta um skó, áður en þeir gengu í kirkj­una. Var þetta tíðum nauð­syn­legt ef kirkju­fólkið hafði lent í slæmri færð og veðri. Skammt ofan og sunnan við Landa­kirkju stóð til skamms tíma hlaðin grjót­varða. Hún var nokkru hol að innan neðst. Þar geymdu ofan­byggjarar þ.e. þeir, sem bjuggu fyrir ofan hraun, stundum líka nefnd „fyrir ofan leiti“, skó sína meðan þeir gengu í kirkj­una. Fólk úr ,,upp­girð­ing­unni“ þ.e. Vest­ur­húsum, Ólafs­húsum, Nýjabæ, Búa­stöðum, Odds­stöðum og Túni geymdu skó sína í forkirkj­unni, er þurfa þótti í svo­nefndum skó­pokum. Það voru litlir pokar saum­aðir upp úr striga­pokum.

Varðan fyrir sunnan kirkj­una dró nafn sitt af skó­geymslu Ofan­byggjara og var nefnd Skóvarða. – Kirkju­ferðin á stór­há­tíðum var ekki svo lít­ill við­burður í lífi almenn­ings. Ljósa­dýrð kirkj­unnar hreif fólkið, því lítið var um ljós í þann tíma á heim­ilum manna, nema til allra nauð­syn­leg­ustu þarfa. Kirkjan upp­ljómuð af kerta­ljósum, var í augum fólks­ins ógleym­an­legt must­eri ljóss og dýrðar. Ljósa­hjálm­arnir þrír, ljós­bog­inn framan kórs­ins, alt­ar­is­stjak­arnir ber­andi stór og mikil ljós, auk minni tví­arma kerta­stjaka frammi yfir bekkj­a­röð­unum niðri, allt glóði þetta í birtu og undra­feg­urð svo fólk fékk ofbirtu í augun.“

Heimild:

Kári Bjarna­son. 2021, 23. des­em­ber. Jólin í minni Árna Árna­sonar sím­rit­ara. Vest­mann­eyjar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil