Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Arnór Sigurðsson naut sín í fríi í Dúbaí: „Flöskuborð með Mbappe, vonandi áttu þið líka gott kvöld“

Arnór Sigurðsson naut sín í fríi í Dúbaí: „Flöskuborð með Mbappe, vonandi áttu þið líka gott kvöld“
Skjáskot/Instagram

Arnór Sig­urðs­son knatt­spyrnu­maður, fæddur 1999, spilar fyrir Venezia FC á láni frá CSKA Moskva sem miðju­maður.

Arnór spilar einnig fyrir íslenska lands­liðið enda er hann klár­lega einn allra besti knatt­spyrnu­maður okkar Íslend­inga frá upp­hafi; skor­aði meðal ann­ars gíf­ur­lega mik­il­vægt mark fyrir lið sitt CSKA Moskvu gegn stór­veld­inu Real Madrid, en þetta hafði hann að segja um markið gegn Real Madrid árið 2020:

Arnór fagnar hér frægu marki sínu gegn stór­veld­inu Real Madrid á heima­velli þess í Madrid, Santiago Bernabéu, sem er einn goð­sagna­kennd­asti leik­völlur allra tíma og einn sá fal­leg­asti

„Þeir voru hel­víti hroka­fullir. Þetta er klár­lega hápunkt­ur­inn á dvöl­inni hingað til,“ sagði Arnór Sig­urðs­son, lands­liðs­maður í fót­bolta og leik­maður CSKA Moskvu, þegar hann rifj­aði upp frammi­stöðu sína gegn stór­veldi Real Madrid.

Arnór skor­aði fyrsta mark sitt fyrir CSKA í 1-2 tapi gegn Roma á heima­velli í nóv­em­ber 2018, í Meist­ara­deild Evrópu. Hann bæði skor­aði svo og lagði upp mark í 3-0 sigri gegn sig­ur­sælasta liði keppn­innar frá upp­hafi, Real Madrid, á Santiago Bernabeu mán­uði síðar. „Maður var ein­hvern veg­inn ekk­ert að hugsa um þetta en svo kom stoðsend­ingin og þá pepp­ast maður upp. Svo þegar markið kemur þá var maður ein­hvern veg­inn hættur að trúa þessu. Þetta var svo óraun­veru­legt. Þetta var gæsa­húð alveg í gegn.“

Arnór er alinn upp hjá hinu forn­fræga stór­veldi ÍA, en árið 2017 hélt hann til IFK Norrköp­ing í Svíþjóð, og ári síðar var hann seldur til rúss­neska stór­liðs­ins CSKA Moskvu, og gerði 5 ára samn­ing við liðið.

Korn­ungur og gríð­ar­lega efni­legur Arnór Sig­urðs­son í bún­ingi upp­eld­is­fé­lags­ins, ÍA á Akranesi. Arnór breytt­ist mjög fljót­lega úr efni­legum leik­manni í frá­bæran, og á nóg eftir

Arnór skor­aði sitt fyrsta lands­liðs­mark  í 2-0 sigri gegn Andorra haustið 2019.

Arnór hér í lands­leik gegn einu besta lands­liði heims, Belgíu, í nóv­em­ber árið 2018

Og lands­liðs­mað­ur­inn Arnór Sig­urðs­son hefur greini­lega átt magnað kvöld Dúbaí, höf­uð­borg Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmanna, nú yfir hátíð­irnar.

Þar naut sín líka annar Íslend­ingur en sá er lög­maður en ekki fót­bolta­stjarna – sjálfur Sveinn Andri Sveins­son.

En Arnór var þó í aðeins „meira spenn­andi“ félags­skap, enda sást til hans í fríi í Dúbaí, og deildi því á twitter-reikn­ingi sínum að hann sæti með engum öðrum en franska fót­bolta­kapp­anum Kylian Mbappé, lík­lega besta fram­herja í heimi í dag, og mögu­lega einn af fimm launa­hæstu leik­mönnum heims, sem spilar fyrir franska risaliðið PSG og franska lands­liðið, besta lands­lið í heimi ásamt Ítalíu.

Hér skorar Kyriam Mbabbe í lands­leik fyrir Frakk­land á móti litla Íslandi

Marga dreymir örugg­lega um að vera í sæt­inu hans Arnórs Sig­urðs­sonar – eins besta knatt­spyrnu­manns Íslands frá upp­hafi, og bara vel skilj­an­legt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi