Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Múli Árnason – Aldarminning: Röddin eina, sambandið við Sovétríkin og Djassinn

Jón Múli Árnason – Aldarminning: Röddin eina, sambandið við Sovétríkin og Djassinn

Líklega eru fá nöfn jafn sam­tvinnuð Rík­is­út­varp­inu og nafn Jóns Múla Árna­sonar þular.

Rödd Jóns Múla var ein­stök; var hann um ára­tuga­skeið ein þekktasta, ef ekki sú þekktasta, rödd íslensku þjóð­ar­innar; en hann starf­aði hjá stofn­un­inni í nær fjóra ára­tugi; þar sá hann einnig um róm­aða djass­þætti og kynnti þjóð­inni strauma og stefnur tón­list­ar­innar sem hann elskaði. Í þessu ljósi var Jón oft nefndur sveiflu­meist­ari Rík­is­út­varps­ins eða áróð­urs­meist­ari sveifl­unnar. Lög Jóns Múla, oft við texta Jónasar, bróður hans, hafa tekið sér trygga ból­festu í íslensku þjóð­arsál­inni og má þar nefna lög eins og; Fröken Reykja­vík, Einu sinni á ágúst­kvöldi, Gettu hver hún er? Augun þín blá o.fl.

Jón Múli átti ald­ar­af­mæli á síð­asta ári en hann fædd­ist á Kirkju­bóli í Vopna­firði, 31. mars 1921.

Virkur sósíalisti sem hlaut fangelsisdóm

Jón Múli var virkur félagi í Sós­í­alista­flokknum og síðar Alþýðu­banda­lag­inu. Hann hlaut fang­els­is­dóm fyrir þátt­töku sína í óeirðum á Aust­ur­velli og árás á Alþing­is­húsið 30. mars 1949, en var náð­aður. Hann var um skeið laun­aður starfs­maður MÍR, Menn­ing­ar­tengsla Íslands og Ráð­stjórn­ar­ríkj­anna, eins og hann segir frá í sjálfsævi­sögu sinni.

Hann fór í boðs­ferðir til Sov­ét­ríkj­anna og hélt oft uppi vörnum fyrir þau opin­ber­lega. Meðal ann­ars hélt hann því fram 1980 að Sov­ét­menn hefðu ekki ráð­ist inn í Afganistan, heldur veitt umbeðna aðstoð „sem betur fer“. Hann sagði 1981 að „fasískur rusl­ara­lýður“ kæmi fram í nafni Samstöðu í Póllandi og fagn­aði setn­ingu her­laga.

Sagði hann: „Ég vona, að ráð­staf­an­irnar komi ekki of seint til þess að bæta fyrir skemmd­ar­verk fyrr­nefnds hyskis og Pól­verjar fái að byggja æ feg­urra þjóð­líf undir for­ystu komm­ún­ista­flokks Póllands. Hann lengi lifi.“ Jón Múli var full­trúi Alþýðu­banda­lags­ins í útvarps­ráði 1978–1982.

„The US army is not a jazzband“

Jón Múli var þekkt­astur fyrir útvarps­störf sín en hann hóf að starfa í Rík­is­út­varp­inu 1946 og gegndi í gegnum tíð­ina ýmsum störfum þar. Hann var þulur, frétta­maður, full­trúi í tón­listar- og leik­list­ar­deild, frétta­rit­ari RÚV á ólymp­íu­leikum og ann­að­ist djass­þátta­gerð á árunum 1945–95. Jón var þekktur fyrir áhuga sinn og dálæti á djass­tón­list.

Sagan segir að Jón Múli hafi byrjað útvarps­feril sinn á því þegar hann kom inn í útvarps­þátt Einars Páls­sonar og gagn­rýndi hann fyrir að kunna ekki skil á helstu sól­óum Dukes Ell­ingtons. Einar á að hafa svarað honum: „fyrst að þú ert svona klár, af hverju kemur þú bara ekki í þátt­inn?“ Jón lét ekki segja sér það tvisvar og hóf skömmu síðar að ann­ast djass­þátt á rík­is­út­varp­inu, en hann mun hafa hlustað á djass allt frá 1934.

Vern­harður Linnet djass­fræð­ingur sagði frá því í blaða­grein að Jón Múli væri djass­fróður maður þegar þeir félagar voru staddir á nor­rænni djass­fræð­inga­ráð­stefnu í Noregi 1987. Jón Múli flutti þar erindi um fyrstu erlendu djass­tón­list­ar­menn­ina sem spil­uðu á stríðs­ár­unum á Íslandi. Eitthvað þótti mönnum und­ar­legt að Íslend­ingar stæðu ekki fremstir Norð­ur­landa­búa í djass­tón­list­inni vegna her­náms Breta og veru Banda­ríkja­manna á meðan Danir og Norðmenn voru undir hæl Þjóð­verja. Jón Múli svar­aði því til með ein­földum hætti: „The US army is not a jazzband.“

Ekki sáttir við áhuga hans á „stórhættulegri“ tónlist

Jón Múli naut mik­illar virð­ingar fyrir þá vakn­ingu sem hann kveikti með djass­þáttum sínum og þegar yngri djass­spil­arar gáfu út plötur áttu þeir til að til­einka honum plöt­una eða fá hann til að rita nokkur orð á plötu­umslög.

Jón Múli var einn af stofn­endum Jazzklúbbs Reykja­víkur sem starf­aði á árunum 1949–53 en sá klúbbur gaf m.a. út tíma­rit um djass. Ekki voru allir á eitt ánægðir með þessa fram­andi tón­list og sagan segir að kona ein hafi hellt úr fötu fullri af vatni yfir Jón Múla á förnum vegi, auk þess sem hann hafi verið kall­aður ýmsum ljótum nöfnum vegna áhuga hans á þess­ari „stór­hættu­legu“ tón­list. Þess má geta að djass­klúbb­ur­inn Múlinn var stofn­aður Jóni Múla til heið­urs.

Árið 1985 rit­aði Jón Múli bók­ina Djass sem var eins konar saga djass­ins. Í henni er m.a. að finna stuttan kafla um djass á Íslandi. Ritstörf hans náðu reyndar lengra en hann skrif­aði bæk­urnar; Þjóð­sögur Jóns Múla Árna­sonar I-III og Söngdansar I-II. Honum var margt til lista lagt, ásamt því að vera þulur og djass­ari fékkst hann við kennslu. Hann kenndi djass­sögu við Tón­list­ar­skóla Félags íslenskra hljóm­list­ar­manna um tíma.

Þrátt fyrir að vera þekkt­astur fyrir þul­ar­hlut­verk sitt kom Jón Múli (f. 1921) þó með margs konar hætti að tón­list. Hann nam hljóm­fræði og trompet­leik við Tón­list­ar­skól­ann í Reykja­vík frá árunum 1945-46 og lærði söng hjá Pétri Á. Jónssyni óperu­söngv­ara á árunum 1951 og 1952. Jón Múli var einn af stofn­endum Lúðra­sveitar verka­lýðs­ins árið 1953 og lék á kornett með sveit­inni í tæp­lega tutt­ugu ár. Lúðra­sveit verka­lýðs­ins gerði hann að heið­urs­fé­laga sveit­ar­innar árið 1991.

Jón Múli kom mikið að tón­list í gegnum ævina eins og fyrr kemur fram. Hann var tón­skáld og vann að mestu leyti með Jónasi, bróður sínum. Þeir sömdu söng­leik­ina Delerium Bubonis og Járn­haus­inn en einnig samdi hann tón­list­ina við söng­leik­ina Rjúkandi ráð og Allra meina bót, sem var gefin út á sam­nefndum plötum. Jón samdi tón­list í ein­hverjum mæli án þess að söng­leikir kæmu þar við sögu en lög sín kall­aði hann söngdansa.

Haukur Morthens flutti lögin hans

Lög hans hafa verið gefin út á plötum með ýmsum flytj­endum s.s. Hauki Morthens, Fjórtán fóst­bræðrum, Horna­flokki Kópavogs, Lúðra­sveit verka­lýðs­ins og söng­hópnum Rjúkandi, svo dæmi séu tekin, en einnig hafa ýmsir tón­list­ar­menn flutt lög hans á plötum honum til heið­urs eins og Lög Jóns Múla Árna­sonar (1981), Lög Jón Múla Árna­sonar við texta Jónasar Árna­sonar (1987), Melónur og vín­ber fín (1998), Söngdansar Jóns Múla Árna­sonar með Óskari Guð­jóns­syni og Delerað (2000), Keldu­landið með Óskari Guð­jóns­syni og Eyþóri Gunn­ars­syni (2001) og Á Ljúf­lings­hól (2009) þar sem Sigríður Thorlacius og Heið­ur­s­piltar syngja og leika lög hans. Enn fremur kom út 2011 þriggja platna safn, Söngdansar og ópusar. Einstök lög eftir Jón Múla hafa að auki komið út á tugum platna tón­list­ar­manna hér­lendis.

Jón Múli ann­að­ist útvarps­kynn­ingar á tón­leikum Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands allt frá stofnun hennar frá árinu 1950 til árs­ins 1990. Hann var full­trúi í útvarps­ráði um tíma og Nordjazz.

Það má því segja að starfsævi hans hafi að mestu legið innan dyra Rík­is­út­varps­ins. Rætur hans til útvarps­ins lágu enn dýpra því hann var kvæntur Ragn­heiði Ástu Pét­urs­dóttur og var um leið tengda­sonur Péturs Pét­urs­sonar, en þau voru bæði þulir hjá útvarp­inu. Til fróð­leiks má geta þess að Jón Múli er fóst­ur­faðir Eyþórs Gunn­ars­sonar tón­list­ar­manns og þess vegna tengda­faðir Ellenar Krist­jáns­dóttur söng­konu, en Eyþór er sonur Ragn­heiðar Ástu.

Stór­sveit Reykja­víkur fagn­aði ald­ar­af­mæli Jóns Múla Árna­sonar í Hörpu 21. mars 2021.  Flutt voru öll þekkt­ustu lög Jóns Múla í glæ­nýjum útsetn­ingum.  Gesta­söngv­arar voru Ellen Krist­jáns­dóttir, Jón Jónsson, Sigríður Thorlacius og Sigurður Guð­munds­son.

Jón Múli átti við veik­indi að stríða um tíma áður en hann lést 2002.

Heim­ildir:

„Hvað segir þú um inn­rás og her­nám Sov­ét­ríkj­anna í Afganistan?“ Morg­un­blaðið 10. jan­úar 1980; „Hef undrazt lang­lund­ar­gerð pól­skra komm­ún­ista,“ DV 15. des­em­ber 1981.

Lands­bóka­safn Íslands. 2021. Jón Múli Árnason – Sýning af til­efni ald­arminn­ingu 31. mars 2021. Reykja­vík.

Úr Þjóð­sögum Jóns Múla Árna­sonar; birt­ist í Morg­un­blað­inu 1998. Slóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag