Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stærsta augnablik Heiðu þegar sonurinn fæddist heill á húfi 7 vikum fyrir tímann „Þvílíkt þakklæti“

Stærsta augnablik Heiðu þegar sonurinn fæddist heill á húfi 7 vikum fyrir tímann „Þvílíkt þakklæti“

Söngdívan Aðal­heiður Ólafs­dóttir, eða Heiða eins og hún er oft­ast kölluð, er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Flestir ættu að kann­ast við Heiðu, hvort sem það er úr Söngvakeppni sjón­varps­ins, Idol stjörnu­leit, þar sem Heiða end­aði í 2. sæti árið 2005, Frostrósum, hljóm­sveit­inni Url og svona mætti lengi telja, því Heiða hefur komið víða við á tón­list­ar­ferli sínum.
Mannlíf komst að því að Heiða drekkur mikið af svörtu sterku kaffi, hún er með frest­un­ar­áráttu og leið­ist sam­sær­is­kenn­inga­fólk.

Fjöl­skyldu­hagir? Nýgift honum Helga mínum (Helgi Páll Helgason), gift­umst 24. júlí síð­asta sumar og eigum sam­an­lagt þrjú börn, Huga Hrafn 16 ára, Kristínu Maríu að verða 14 ára og Snorra 6 ára og svo eigum við hana Ástríði kisu.  

Menntun/atvinna? Eftir stúd­ents­prófið frá Versl­un­ar­skól­anum hélt ég áfram að mennta mig í söng og tón­list í hinum ýmsu skólum og útskrif­að­ist síðan sem leik­kona frá Circle In The Square Theater School í New York árið 2009. Starfa við fjöl­breytt störf tengd list­unum. 

Upp­á­halds sjón­varps­efni? Get alltaf horft á þætti af 30 rock, Friends, Seinfeld og Parks and Recreations, svo gott að gleyma sér í einum og einum stuttum grín­þætti. Annars er Breaking bad á toppnum yfir fram­úr­skar­andi vel gert drama efni, öfunda þá sem eiga eftir að horfa.

Leikari? Meryl Streep er drottn­ingin.

Rit­höf­undur? Jojo Moyes er ofsa­lega góð í að skrifa róm­an­tískar ást­ar­sögur með áhuga­verðu “twisti” og síðan er Camilla Lackberg upp­á­halds í spennu­bók­unum. 

Bók eða bíó? Bók, er ofboðs­lega léleg í að fara í bíó.

Besti matur? Mjög erfitt að segja þar sem ég er mik­ill mat­ar­perri, elda mikið og alls­konar og elska að prófa nýja rétti. En þar sem hátíð­irnar eru nýaf­staðnar að þá er matur tengdur jól­unum mér afskap­lega kær og ég get ekki gert upp á milli ham­borg­ara­hryggs­ins eða skötunnar. Ég borða afgang­inn af hryggnum í þrjá daga nán­ast og talandi um töl­una þrjá að þá borð­aði ég þrisvar skötu þessi jól, fór á árlegt skötu­deit mitt og vin­konu minnar á Þrem Frökkum, við hjónin héldum skötu­boðið okkar á Þor­láks­messu og fékk svo líka skammt með fjöl­skyld­unni á Hólmavík í jóla­heim­sókn­inni þangað. Klikk myndu sumir segja, en skyn­semi segi ég!

Kók eða Pepsí? Hvorugt, koff­einið mitt kemur úr sterku svörtu kaffi og mikið af því.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Hólma­víkin mín þar sem ég er fædd og upp­alin og bara Strand­irnar eins og þær leggja sig og svo nýja heim­ilið okkar fjöl­skyld­unnar, en útsýnið okkar er hreint út sagt guð­dóm­legt og ég stari og nýt í þakk­læti á hverjum degi.

Hvað er skemmti­legt? Vera jákvæð og bjart­sýn og njóta hverrar stundar með fólk­inu mínu því hver dagur er gjöf.

Hvað er leið­in­legt? Að vera í kringum fólk sem lifir í for­tíð­inni, sér alltaf verstu mögu­legu útkom­una og hefur glasið sitt alltaf hálf tómt. Maður þarf að hafa sig allan við að smit­ast ekki af slíkri orku.

Hvaða flokkur? Er ótta­legur miðju­moð­ari, en bara í póli­tík. 

Hvaða skemmti­staður? Hef ekki komið inná slíkan í langan tíma en minn skemmti­staður er klár­lega borð­stofu­borðið heima þegar það er fullt af skemmti­legu fólki í mat­ar­boði og góðu stuði.

Kostir? Jákvæðni/bjart­sýni, góður dass af „þetta redd­ast” og fjöl­skyldu­rækin.

Lestir? Frest­un­ar­árátta, of mik­ill dass af „þetta redd­ast” og með­virkni.

Hver er fynd­inn? Helgi mað­ur­inn minn, Snorri sonur minn og Halldór bróðir.

Hver er leið­in­legur? Sam­sær­is­kenn­inga­fólk.

Trúir þú á drauga? Já auð­vitað, alin uppá Ströndum, drullu­hrædd alltaf sem barn við allar þessar óværur, en hef tekið þær í sátt í dag, að mestu. 

Stærsta augna­blikið? Þegar sonur minn fædd­ist heill á húfi eftir að drífa sig í heim­inn með bráða­keis­ara sjö vikum fyrir tím­ann. Þvílíkt þakk­læti!

Mestu von­brigðin? Þegar Donald Trump náði að verða for­seti Banda­ríkj­anna, á ennþá erfitt með að trúa þessum hryll­ingi. 

Hver er draum­ur­inn? Að fjöl­skyldan fái að eld­ast saman.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Kannski ekki afrek en það allra merki­leg­asta og besta á árinu var að gift­ast ást­inni minni.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Alls ekki!

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Núna er tími skemmti­legra barna brand­ara á heim­il­inu þar sem son­ur­inn er 6 ára og elskar að grína. Hann er nýbyrj­aður að horfa á Ladda grín sem gleður mig, en brand­ar­arnir kannski aðeins of langir til að skrifa hér, en um leið og ég nefni Ladda þá er ég viss um að allir fái minn­ingu af ein­hverju góðu Ladda gríni, bara gjössovel og njótið á minn­inga stræti segi ég nú bara.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Mörg, ég er ótrú­lega mikil brussa og er yfir­leitt 10 skrefum á undan mér og skvett­ast áfram með til­heyr­andi hlutum sem brotna, fernum sem hell­ast niður, fötum sem fá á sig bletti og ótelj­andi skiptum þar sem ég rek mig í, hrasa og svona gæti ég lengi talið. 

Sorg­leg­asta stundin? Það er óhjá­kvæmi­lega þau skipti sem ást­vinir kveðja. 

Mesta gleðin? Að verða móðir.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Þakklæti, vera í núinu og njóta litlu hlut­anna, ham­ingjan er í hvers­deg­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu