Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hannes Hólmsteinn segist hafa deilt við Davíð Oddsson: „Honum fannst ég of hlynntur ríka fólkinu”

Hannes Hólmsteinn segist hafa deilt við Davíð Oddsson: „Honum fannst ég of hlynntur ríka fólkinu”

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son pró­fessor við Stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands er gestur í áður óbirtum hlað­varps­þætti Sölva Tryggva­sonar. Þar seg­ist hann ekki alltaf hafa verið sam­mála einum besta vini sínum, Davíð Oddssyni þegar kom að Baugs­mál­inu og almennt þegar kemur að málum auð­manna.

Þegar Sölvi spyr Hannes út í Davíð Oddsson og Baugs­málið segir Hannes:

„Kannski var það eitt af mál­unum þar sem ég var ekki alltaf sam­mála Davíð. Ég hef hvergi sagt þetta áður, en það sem hann deildi á mig og ég deildi á hann var að honum fannst ég of hlynntur ríka fólk­inu og þá getur þú sagt þér það sjálfur að ég hafði meiri samúð með mönnum eins og Jóni Ásgeiri heldur en Davíð. Svo skamm­aði ég Davíð stundum fyrir að gefa ekki alveg nóg af sér gagn­vart fjöl­miðla­mönnum eins og þér til dæmis. Hann dró sig meira í skel en ég hefði viljað af því að hann er það skemmti­legur og góður í að segja frá,” segir Hannes og bætir svo við að hann hafi verið ánægður með ummæli Jóns Ásgeirs í við­tali hjá Sölva.

„Ég var ánægður með að Jón Ásgeir hafi bent á það í þætt­inum hjá þér að ég hafi skrifað gott yfir­lit um það hvað útlendu bank­arnir og stjórn­völd erlendis hirtu eignir á smán­ar­verði af bönk­unum.”

Í við­tal­inu rifjar Hannes upp tvö mis­mun­andi til­felli þar sem Hann, Davíð og Kjartan Gunn­ars­son fór út að borða á Hótel Holti, með þrjá­tíu ára milli­bili.

„Davíð er enn einn af mínum bestu vinum og við erum alltaf í nánu sam­bandi og höfum verið í gegnum tíð­ina. Ég mundi það einmitt fyrir við­talið hjá þér þegar við Davíð sátum saman í kvöld­verð fyrir næstum því nákvæm­lega 30 árum síðan. Þá sátum á Hótel Holti til að fagna því að Davíð var að mynda sína fyrstu rík­is­stjórn. Við sátum þarna ég, Davíð, Kjartan Gunn­ars­son, Björn Bjarna­son og eig­in­konur þeirra þriggja. Þetta var mjög eft­ir­minni­legt kvöld og okkur leið svo­lítið eins og við hefðum sigrað heim­inn.

Svo líða nokkuð mörg ár og aftur hitt­umst við á sama stað árið 2009 og það er á bak­við það svo­lítil saga. Ég átti erindi niður í bæ og þá var þar mót­mæla­fundur vegna Icesave samn­ing­anna og ég tók mér þar stöðu eins og hver annar. Þá sér einn frétta­maður mig í röð­inni og vildi taka við mig við­tal þar sem ég myndi útskýra af hverju ég var á móti Icesave samn­ing­unum. Við förum að Dóm­kirkj­unni, en þar var gerður aðsúgur að mér og byrjað að kasta í mig alls kyns hlutum. Það var ein­kenni­legt að verða fyrir þessu í okkar ofbeld­is­lausa landi. Ég veit ekki hvort þau hafa haldið að ég bæri ábyrgð á banka­hrun­inu, en svo var líka áhuga­vert að allir aðrir sem sáu þetta sátu bara hjá og eng­inn gerði sig lík­legan til að hjálpa mér, heldur tóku þetta bara upp á sím­ana sína. Mér tókst að kom­ast við illan leik inn í Alþing­is­húsið og átti fótum mínum fjör að launa. Skömmu eftir þetta hringir sím­inn og það er Davíð Oddsson, sem hafði séð hvað ég var grátt leik­inn í sjón­varps­frétt­unum. Hann segir að hann og Kjartan Gunn­ars­son vilji bjóða mér út að borða til að reyna að láta mér líða betur eftir þetta. Og þá sátum við á sama borði og 18 árum fyrr og áttum aftur góða kvöld­stund. En þetta sýnir hversu skjótt veður geta skipst í lofti.”

Viðtalið við Hannes er eitt af nokkrum gömul en óbirtum við­tölum sem Sölvi tók en hann hefur boðað að hann muni birta þau öll von bráðar. Bogi Ágústs­son hefur beðið hann að birta það ekki og það sama má segja um Krumma Björg­vins­son og Hermann Hreið­ars­son. Ástæðan fyrir því að við­tölin voru ekki birt á sínum tíma er sú að Sölvi lok­aði á alla þætti sína í kjöl­far ásak­ana tveggja kvenna á hendur honum en þær segja hann hafa beitt þær ofbeldi. Sölvi hefur neitað þessum ásök­unum.

Sjá einnig: Yfir­lýs­ing kvenn­anna í heild sinni: „Sölvi rauk þá upp og hrinti mér í gólfið“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi