Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Yfirlýsing kvennanna í heild sinni: „Sölvi rauk þá upp og hrinti mér í gólfið“

Yfirlýsing kvennanna í heild sinni: „Sölvi rauk þá upp og hrinti mér í gólfið“

Tvær konur hafa leitað til lög­reglu vegna meints ofbeldis af hálfu Sölva Tryggva­sonar. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem lög­mað­ur­inn Kristrún Elsa Harð­ar­dóttir, sem send var að beiðni kvenn­ana. Kristrún segir umbjóð­endur sína kjósa að koma ekki fram undir nafni.

Í yfir­lýs­ing­unni kemur fram að önnur konan hefur kært Sölva fyrir lík­ams­árás. Hún segir atvikið hafa átt sér stað á heim­ili hennar þann 14. mars síð­ast­lið­inn. Lögregla kom á vett­vang. Farið var með Sölva á lög­reglu­stöð og skýrsla tekin af honum þar.

Þá segir einnig í yfir­lýs­ingu Kristrúnar að önnur kona til sín í dag í kjöl­far fréttaum­fjöll­unnar síð­ustu daga.

Sjá einnig: Catalina hótar Sölva – Kallar hann lygara og seg­ist ætla birta við­kvæm gögn: „Ég mun dreifa öllu“

Hér er yfir­lýs­ing kvenn­anna í heild sinni:

Und­ir­rituð getur stað­fest það að til mín hafa leitað tvær konur sem lýst hafa ofbeldi af hálfu Sölva Tryggva­sonar fjöl­miðla­manns.

Önnur konan hefur kært Sölva fyrir lík­ams­árás. Hún kveður atvikið hafa átt sér stað á heim­ili hennar hinn 14. mars sl. Lögregla kom á vett­vang. Farið var með Sölva á lög­reglu­stöð og skýrsla tekin af honum þar. Síðar um kvöldið var tekin skýrsla af umbjóð­anda mínum á heim­ili hennar.

Hin konan leit­aði til mín fyrst í dag eftir að hafa fylgst með fjöl­miðlaum­fjöllun síð­ustu daga. Hún kveðst hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­broti af hálfu Sölva á heim­ili hans hinn 22. júní 2020 og kveðst loks nú hafa hug­rekki til að kæra brotið til lög­reglu. Beiðni um skýrslu­töku til að leggja fram kæru hefur þegar verið send lög­reglu. Sú kona kveðst hafa kynnst Sölva á Tinder og hafi sagt honum að hún væri með reikn­ing á Onlyfans. Hann hafi þá boð­ist til að vera með henni í mynd­bandi án þess að sæist í and­lit hans en hún hafi þá sagt honum að hún ynni ein­göngu með ein­stak­lingum sem hún þekkir og treystir.

Í fram­haldi kveður hún þau hafa ákveðið að hitt­ast á heim­ili Sölva til að kynn­ast og spjalla. Sú heim­sókn end­aði að hennar sögn með því að hann braut á henni kyn­ferð­is­lega.

Umbjóð­endur mínir kjósa að koma ekki fram undir nafni þar sem um þjóð­þekktan mann er að ræða og vilja þær ekki beina athygli fjöl­miðla að sinni per­sónu. Þær segja hins­vegar að það sé þeirra sam­fé­lags­lega skylda að leiða sann­leik­ann í ljós.

Með­fylgj­andi er yfir­lýs­ing frá öðrum umbjóð­anda mínum vegna máls­ins sem hún óskaði eftir að ég kæmi á fram­færi við fjöl­miðla:

„Ég hafði ekki séð fyrir mér að tjá mig um þetta mál í fjöl­miðlum. Mér finnst ég hins­vegar til­neydd til þess að gera það þar sem að Sölvi kom fram í hlað­varps­þætti sínum í gær­kvöld og ræddi um okkar sam­band og atvik sem átti sér stað hinn 14. mars sl. Þar fór hann með rangt mál og þykir mér nauð­syn­legt að leið­rétta það sem þar kom fram. Ég er ekki að stíga fram til þess að ráð­ast á hann. Það er hins­vegar mik­il­vægt að sann­leik­ur­inn komi í ljós.

Það er rétt að við Sölvi áttum í ást­ar­sam­bandi í rúma fjóra mán­uði. Sam­bandið var litað af and­legu ofbeldi hans í minn garð og dómer­andi per­sónu­leika hans. Hann sýndi mér sífellt meiri yfir­gang eftir því sem leið á sam­bandið. Þá sýndi hann mér einnig yfir­gang í kyn­lífi og spurði mig tví­vegis á meðan á því stóð hvort ég vildi að hann nauðg­aði mér. Það fyllti mig við­bjóði og óör­yggi í sam­skiptum við hann. Í lok jan­úar 2021 fórum við saman í bústað­ar­ferð sem end­aði með því að hann tók brjál­æðiskast og ég varð mjög hrædd. Eftir það töl­uðum við lítið sem ekk­ert saman í mánuð.

Í byrjun mars 2021 fórum við að tala saman aftur. Hinn 14. mars sl. kom Sölvi til mín, við fórum í göngutúr og stopp­uðum til að ræða málin. Hann fór þá að segja að hann vildi þetta sam­band ekki lengur. Ég sagði þá að hann ætti ekki að vera í sam­bandi sem hann vildi ekki og gekk í burtu. Hann brjál­að­ist þá og öskr­aði á mig að koma til baka. Þá var fólk á hest­baki sem fór þarna hjá og ætti að hafa heyrt hvað gekk á. Við öskrin og upp­námið varð ég hrædd og hringdi í vin­konu mína og bað hana að sækja mig.

Eftir að vin­kona mín kom þá fatt­aði ég að lykl­arnir mínir voru í bílnum hans og ég þurfti að fara til baka og sækja þá. Hann náði þá að sann­færa mig um að fara með honum aftur heim til mín. Hann sótti mat og við borð­uðum. Eftir það fór hann aftur að tjá mér að hann vildi þetta sam­band ekki lengur. Ég sagði það gott og vel. Svo virt­ist þá sem hann væri ósáttur með hversu lítil við­brögð mín voru og tjáði ég honum þá að mér þætti hann ekki vera góð mann­eskja. Hann væri með grímu úti í sam­fé­lag­inu og að fólk vissi ekki hver hann væri í raun og veru. Ég bað hann þá að fara, yfir­gefa heim­ili mitt en hann neit­aði því. Ég sagði honum þá að ég myndi segja öllum hvaða mann hann hefði að geyma.

Sölvi rauk þá upp og hrinti mér í gólfið. Þegar ég stóð upp þá tók hann mig háls­taki með báðum höndum og sagði mér að taka þetta til baka en ég neit­aði. Hann sleppti þá tak­inu og hringdi í lög­reglu og til­kynnti að hér væri mann­eskja að hóta honum að eyði­leggja mann­orð hans. Þá kom lög­regla á stað­inn og ég greindi þeim frá ofbeld­inu sem hafði átt sér stað. Farið var með Sölva á lög­reglu­stöð í skýrslu­töku og síðar um kvöldið var tekin skýrsla af mér á heim­ili mínu.

Ég vil taka fram að ég veit ekki hvaðan sú saga sem nú er í fjöl­miðlum er til­komin en hún kemur ekki frá mér. Ég er ekki vænd­is­kona og atvikið sem um ræðir átti sér stað 14. mars sl. en ekki fyrir tveimur vikum. Hvort fleiri atvik hafi átt sér stað með öðrum konum er eitt­hvað sem Sölvi þarf að svara fyrir en ekki ég.

Að end­ingu vil ég óska eftir því að fjöl­miðlar birti ekki nafn mitt af til­lit­semi við fjöl­skyldu mína.“

Með kveðju,

Kristrún Elsa Harð­ar­dóttir, lög­maður

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ