Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Systurskip Barkar bætti glænýtt heimsmet: „Við hugsum á svipuðum nótum og landsliðið í handbolta“

Systurskip Barkar bætti glænýtt heimsmet: „Við hugsum á svipuðum nótum og landsliðið í handbolta“
Vilhelm í Fugla­firði Mynd: Samherji

Ekki stóð heims­met Barkar NK, sem hann setti fyrir helgi en í gær bætti Vilhelm Þor­steins­son EA metið. Landaði skip Samherja 3.448 tonnum af loðnu í Fugla­firði í Færeyjum. „Þessi syst­ur­skip eru þau burð­ar­mestu í flot­anum, metin falla með öðrum orðum hratt á þess­ari stærstu loðnu­ver­tíð um langt ára­bil,“ segir á vef Samherja.

Samkvæmt Akureyri.net tók rúm­lega tutt­ugu klukku­stundir að dæla úr Vilhelmi Þor­steins­syni í Fugla­firði og sagði Guð­mundur Þ. Jónsson, skip­stjóri að Fær­ey­ingar hafi verið mjög svo ánægðir með gæði afl­ans og fitu­inni­hald.

„Staðan er ein­fald­lega sú að bræðsl­urnar á Íslandi hafa ekki undan þegar vel veiðist og þess vegna var stefnan tekin á Færeyjar, sigl­ingin er hátt í þrjú hund­ruð sjó­mílur frá mið­unum austur af Langa­nesi. Við fylltum skipið í sjö holum, stærsta holið var 600 tonn og þá drógum við aðeins í eina og hálfa klukku­stund. Annars vorum við oft­ast að draga í sex til átta klukku­stundir, þannig að þetta gekk allt saman mjög vel, að vísu þurftum við að lóna í um hálfan sól­ar­hring vegna brælu,“ segir skip­stjór­inn á vef fyr­ir­tæk­is­ins. Að sögn Guð­mundar er afl­anum dælt beint í vinnslu en ekki í tanka eins og tíðkast yfir­leitt á Íslandi.

„Nei við erum nú ekk­ert sér­stak­lega að keppa á þessum syst­ur­skipum um Íslands­metin, þetta eru ein­fald­lega mjög góð og öflug skip með mikla burð­ar­getu. Það skiptir mestu að koma með gott hrá­efni að landi og þessi skip eru vel búin á allan hátt. Þannig var með­al­hit­inn á hrá­efn­inu 2,1 gráða þegar því var dælt til verk­smiðj­unnar.“

„Við leystum land­festar í Fugla­firði á sjö­unda tím­anum í morgun og nú er bara að sigla á miðin. Veiðin hefur verið góð und­an­farna daga og verður von­andi svo áfram. Það verður vænt­an­lega nokkuð þröngt á mið­unum, því norski flot­inn er mættur á svæðið. Þetta nýja skip hefur reynst afar vel og það var ánægju­legt að sigla í land með full­fermi. Við hugsum á svip­uðum nótum og lands­liðið í hand­bolta, fók­us­inn er á næsta túr.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil