Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sindri Ploder, listamaður með Downs, teiknar og gerir skúlptúra: Gluggabréf eru sérlega skemmtileg

Sindri Ploder, listamaður með Downs, teiknar og gerir skúlptúra: Gluggabréf eru sérlega skemmtileg

Sindri Ploder er ungur maður sem vakið hefur athygli fyrir myndir sínar og skúlp­t­úra. Hann er með Downs-heil­kenni og er lífs­glaður og sáttur í eigin skinni að sögn móður hans, Svöfu Arn­ar­dóttur, og lætur hann ekki fötl­un­ina hamla sér; hún segir að hans helsta fötlun sé mikil heyrn­ar­skerð­ing sem getur gert sam­skipti erfið við þá sem ekki skilja tákn með tali.

Mannlíf hafði sam­band við þau mægðin til að kynn­ast Sindra og lista­verkum hans. Svafa kom spurn­ingum blaða­manns áleiðis til Sindra og svar­aði svo fyrir hans hönd.

Sindri hefur haft gaman af því að teikna frá því hann var strákur og und­an­farin ár hefur hann lagt áherslu á að teikna and­lit og að gera skúlp­t­úra. (https://www.facebook.com/tilverur)

Sumir eru grimmir og reiðir en flestir eru glaðir

„Honum finnst bara sjálf­sagt að mynd­irnar hans líti svona út og það er gaman að teikna and­lit og alls kyns svip­brigði. Sumir eru grimmir og reiðir en flestir eru glaðir. Frændi hans gaf honum raf­magns­út­skurð­ar­hníf og Sindri fór að skera kalla út í tré­drumba sem áttu að not­ast sem eldi­viður. Honum finnst líka gaman að tálga greinar með hníf og búa til stóra göngustafi eins og tröllin nota til að ferð­ast um fjöllin. Honum finnst gaman að drekka úr fal­legum bollum og það er mjög gott að drekka sóda­vatn úr Sindra­krús,“ segir Svafa, en fram­leiddar eru krúsir með myndum eftir Sindra. Svafa og faðir Sindra, Björgvin Ploder, bjuggu krús­irnar til og segir Svafa að Sindra finn­ist ekki gaman að vera með í að búa til krúsir. „Hann vill bara teikna mynd­irnar sem fara á krús­irnar, en við getum gert rest.“ Þess má geta að krús­irnar fást í Álfa­gulli í Hafn­ar­firði.

Teppin í framleiðslu

Sindri hefur tekið þátt í ýmsum sýn­ingum. Hann tók meðal ann­ars þátt í hönnun leik­myndar tékk­nesks leik­húss fyrri hluta árs­ins 2016 fyrir leik­gerð á Skugga-Baldri eftir Sjón, sem sýnt var í Hafn­ar­hús­inu nokkrum sinnum og er enn í sýn­ingu í Prag.

„Árið 2016 kom leik­stjóri, Kamila Políková, frá Prag í Hitt húsið þar sem Sindri var að teikna og vildi fá hann til þess að vera með í að búa til leik­mynd fyrir leik­gerð af Skugga-Baldri eftir Sjón. Það var sett upp í Hafn­ar­hús­inu og þar var hann í marga daga með þeim að teikna. Það þótti honum gaman og svo sá hann leik­ritið. Árið 2019 bauð leik­stjór­inn honum út til Prag að sjá sýn­ing­una þar, svo Sindri fór þangað með okkur for­eldrum sínum. Flestir sem að sýn­ing­unni standa buðu honum svo í ferða­lag um Tékkland þar sem hann sá kirkju sem búin var til úr manna­beinum og það þótti honum flott. Fullt af haus­kúpum og örugg­lega draugum. Svo fór hann í mjög margar stórar og gamlar kirkjur og fékk góðan mat.“

Teikn­ingar Sindra voru not­aðar á ull­ar­teppi sem Mundi hann­aði

Sindri tók þátt í sam­sýn­ingu á vegum Listar án landamæra 2017 þar sem hann vann með hönn­uð­inum Munda vonda þar sem teikn­ingar Sindra voru not­aðar á ull­ar­teppi sem Mundi hann­aði. Sindri tók einnig þátt í List án landamæra 2019 þar sem hann sýndi ull­ar­teppin og nýja tréskúlp­t­úra. Einnig sýndi hann með List án landamæra í Bóka­safni Sel­tjarn­ar­ness í októ­ber 2020. Fyrsta einka­sýn­ing hans var í Listasal Mos­fells­bæjar jan­úar–febr­úar 2021 og í des­em­ber 2021 tók hann þátt í sam­sýn­ingu í Núllinu (Banka­stræti) ásamt öðrum ungum lista­mönnum.

Þegar Sindri hélt sýn­ingu í Listasal Mos­fells­bæjar í fyrra voru nokkur teppi til sýnis sem Sindri og hönn­uð­ur­inn Mundi vondi unnu saman fyrir List án landamæra 2017. Að sögn Svöfu vildu margir kaupa svona teppi, en þau voru öll í einka­eigu svo hún og faðir Sindra töl­uðu við Varma og þar voru prjónuð svona teppi úr lambsull. „Þau eru mjúk og stinga næstum ekk­ert. Sindri fékk líka að skoða verk­smiðj­una og allar prjóna­vél­arnar og valdi svo liti. Það áttu að vera þrenns konar lita­sam­setn­ingar en Sindri vildi hafa fjórar þannig að teppin eru blá/hvít, svart/hvít, græn/hvít og app­el­sínugul/svört. Honum finnst app­el­sínugula teppið flott­ast og á eitt svo­leiðis sjálfur.“ Teppin, eins og krús­irnar, fást í Álfa­gulli.

Tónlist, leikhús og ferðalög

Það sem Sindra finnst skemmti­leg­ast að gera fyrir utan að teikna er að hlusta á tón­list, fara í leik­hús og ferð­ast og þá helst til útlanda. „Ekki er verra ef þetta tvennt fer saman og hefur hann farið í leik­hús í London, New York og Prag. Hann á stórt bún­inga­safn og bregður sér reglu­lega í allra kvik­inda líki og setur upp leik­sýn­ingar í stof­unni.“

Hvað með hindr­anir?

„Honum finnst hann hvergi mæta neinum hindr­unum og það er bara ágætt að vera ekki eins og aðrir. Honum finnst líka gaman að fara til tann­læknis og að fá bréf; glugga­bréf eru sér­lega skemmti­leg.“

Hvað er það skemmti­leg­asta sem Sindri hefur gert og hvað er það erf­ið­asta?

„Það skemmti­leg­asta sem hann hefur gert er að fara til útlanda, en það leið­in­leg­asta er þegar stóri bróðir hans dó,“ segir Svafa, en stóri bróðir Sindra hét Fróði og lést í apríl 2020 28 ára gam­all.

Blessuð sé minn­ing hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag