Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristján Þór Júlíusson var bæjarstjóri á Ísafirði þegar Samherji keypti Guðbjörgina

Kristján Þór Júlíusson var bæjarstjóri á Ísafirði þegar Samherji keypti Guðbjörgina

Kristján Þór Júl­í­us­son var bæði stjórn­ar­for­maður Samherja og bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar þegar Samherji keypti útgerð­ar­fé­lagið Hrönn hf. inn í fyr­ir­tækið, ásamt tog­ar­anum Guð­björgu ÍS og þeim kvóta sem henni fylgdi.

Eins og kom fram í Bak­sýn­is­spegli gær­kvölds­ins áttu atburðir loka­þáttar Ver­búð­ar­innar sér hlið­stæðu í raun­veru­leik­anum.

Hösk­uld­ar­við­vörun! Hér á koma fram ákveðin atriði sem áttu sér stað í loka­þætti Ver­búð­ar­innar.

HG Sæfang og Þor­björgin áttu sér fyr­ir­myndir í útgerð­ar­fé­lag­inu Hrönn hf. og tog­ar­anum Guð­björgu ÍS á Ísafirði. Gunnar Már, sá sem mætti á svæðið og keypti upp allt heila klabbið, á sér fyr­ir­mynd í Þor­steini Má Bald­vins­syni en Samherji með Þorstein Má fremstan í flokki keypti Hrönn hf. og Guð­björg­ina inn í Samherja árið 1997.

Svikin loforð

Þor­steinn Már, for­stjóri og einn aðal­eig­enda Samherja, gaf það út í við­tali við Rík­is­út­varpið að Ísfirð­ingar þyrftu engar áhyggjur að hafa af við­skipt­unum. Breyt­ingin myndi ekki draga úr umsvifum í bænum. Hann lof­aði líka eig­endum Hrannar hf., sem og íbúum Ísa­fjarðar, að Guð­björgin yrði áfram gul, að hún yrði áfram ÍS og að hún yrði áfram gerð út frá Ísafirði.

Þessi þrjú lof­orð voru að end­ingu öll svikin en Þor­steinn Már gerði lítið úr því á sínum tíma. Hann sagði yfir­lýs­ing­una sann­ar­lega hafa verið mis­tök en að ekki hafi verið um „bind­andi lof­orð“ að ræða. „Aðstæður í sjáv­ar­út­vegi eru það breyti­legar að það verður að við­ur­kenn­ast. Sjáv­ar­út­veg­ur­inn er eins og sjór­inn, síbreyti­legur,“ sagði hann í við­tali við Morg­un­blaðið.

Kristján Þór liðkaði fyrir trausti bæjarbúa og fyrri eigenda

Yfir­lýs­ing Samherja var á sínum tíma studd af bæj­ar­stjóra Ísa­fjarðar. Það var Kristján Þór Júl­í­us­son, sem seinna átti eftir að verða sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og kom­ast dug­lega í umræð­una eftir sím­tal sem hann átti við Þorstein Má, eftir að upp komst um við­skipta­hætti Samherja í Namibíu.

Kristján Þór Júl­í­us­son og staða hans, bæði sem stjórn­ar­for­maður Samherja á þessum tíma og bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar, átti ríkan þátt í því að Ísfirð­ingar, sem og fyrri eig­endur Hrannar hf., treystu þessum nýju eig­endum og yfir­lýs­ingum þeirra. Fyrir lok árs­ins 1997 var Kristján Þór hættur sem bæj­ar­stjóri og far­inn norður. Í byrjun árs 1998 bauð hann sig fram sem bæj­ar­stjóra­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar á Akureyri um vorið. Hann vann þær kosn­ingar og sat sem bæj­ar­stjóri frá árinu 1998 til 2006.

Í ljós hefur komið að yfir­lýs­ing Sam­herj­a­manna gagn­vart Ísfirð­ingum og fyrri eig­endum Hrannar hf. voru meira en bara munn­leg. Til er skrif­legt plagg með yfir­lýs­ing­unni en þar stendur:

„Frétta­til­kynn­ing. Hlut­hafar Samherja h.f. Akureyri og Hrannar h.h. Ísafirði hafa und­ir­ritað sam­komu­lag um að sam­eina þessi sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki. Sam­komu­lag er um að útgerð Guð­bjargar ÍS verði óbreytt frá því sem verið hefur á Ísafirði.“

Yfir­lýs­ingin er und­ir­rituð af Þor­steini Má Bald­vins­syni fyrir hönd Samherja og Ásgeiri Guð­bjarts­syni fyrir hönd Hrannar hf. Hún er dag­sett þann 7. jan­úar árið 1997.

Afrit af skrif­legu yfir­lýs­ing­unni.

Guð­björgin átti aldrei eftir að landa aftur á Ísafirði. Fljót­lega hafði Samherji flutt kvóta tog­ar­ans yfir á önnur skip í sinni eigu og tveimur árum síðar hafði skipið verið selt til Þýska­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi