Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fyrirmynd Þorbjargarinnar í Verbúðinni og kaup Samherja: „Guðbjörgin verður áfram gul“

Fyrirmynd Þorbjargarinnar í Verbúðinni og kaup Samherja: „Guðbjörgin verður áfram gul“

Þessi bak­sýn­is­speg­ill birt­ist þann 14. febr­úar síð­ast­lið­inn og er nú end­ur­birtur.

Guggan verður áfram gul og gerð út frá Ísafirði.

Þessu lýstu Sam­herj­a­menn yfir, með Þorstein Má Bald­vins­son fremstan í flokki, þegar þeir keyptu útgerð­ar­fé­lagið Hrönn hf. á Ísafirði árið 1997. Hrönn átti og rak skipið Guð­björg­ina ÍS og gerði hana út frá Ísafirði.

Í loka­þætt­inum í sjón­varps­þátta­ser­í­unni Ver­búð­inni í gær er að finna speg­il­mynd þess­ara atburða. Í þátt­unum heitir fyr­ir­tækið sem er selt HG Sæfang og skipið Þor­björgin. Atburða­rásin er nokkurn veg­inn sú sama, þrátt fyrir breyt­ingar á per­sónum og leik­endum. Sá sem tal­inn er end­ur­spegla Þorstein Má Bald­vins­son heitir í þátt­unum Gunnar Már og fer með hina fleygu setn­ingu: „Þor­björgin verður ennþá gul og hún verður gerð út frá Vest­fjörðum.“

Þor­steinn Már Bald­vins­son

Kaupverðið leynilegt

Í DV þann 10. jan­úar árið 1997 má finna frétt um söl­una og vanga­veltur um sölu­verðið með fyr­ir­sögn­inni „Guð­björgin breytt­ist í gull og sjö hlut­hafar fá um tvo millj­arða“.

„Við höfum haft mikla ánægju af þessu starfi og hvað það hefur gengið vel í gegnum árin. Við sáum hins vegar að við þurftum að breyta um, við áttum ekki nógan kvóta til að tryggja rekstur Guð­bjarg­ar­innar og þess vegna var gripið til þessa ráðs,“ segir Marías Þ. Guð­munds­son, einn af stærstu hluthöfunum í Hrönn hf. sem nú hefur sam­ein­ast Samherja. Kaup Samherja á Akureyri á útgerð­arfélag­inu Hrönn hf. Ísafirði og á tog­ar­anum Guðbjörginni ÍS hafa vakið blendin við­brögð á Vestfjörðum þótt full­yrt sé bæði af eig­endum Hrannar og Samherja að Guðbjörgin verði áfram gerð út fráÍsafirði. Í með­fylgj­andi grafi er reynt að slá verði á Hrönn og eignir hennar við yfirtöku Samherja og mun láta nærri aðseld hafi verið verð­mæti í kvóta og öðrum eignum fyrir 1,9 millj­arða króna. Það má því segja að Guggan hafi breyst í gull í einu vet­fangi. „Guðbjörgin verður áfram á Ísafirði undir sínum lit og sínum ein­kennum og það er okkur mik­ils virði,“ segir Marías.

Hvorki Marías og hinir eig­endur Hrannar, né eig­endur Samherja, vildu gefa upp kaup­verð Hrannar hf. Samkvæmt Maríusi áttu engir pen­ingar að fara á milli manna við kaupin. Hann sagði í við­tal­inu við DV að Hrönnin ásamt öllum gögnum og gæðum fyr­ir­tæk­is­ins yrði metin inn í Samherja. Strax og gengið yrði frá kaup­unum með lög­form­legum hætti myndu svo eig­endur Hrannar hf. fá hluta­bréf í Samherja út frá eign­ar­hluta þeirra.

Því hafði verið velt upp að Hrönn hf. hefði verið hlut­falls­lega metin inn í Samherja upp á 6 pró­sent. Það inni­héldi kvóta Guð­bjarg­ar­innar, Guð­björg­ina sjálfa sem var þá metin á 1,5 millj­arða króna, þar af með millj­arð í skuldir. Til við­bótar kæmu svo fast­eignir og lausafé.

„Þetta er frá­leit tala,“ sagði Marías þegar hann ræddi við DV.

Eft­ir­far­andi segir í sömu frétt í DV:

Eigendur Hrannar voru systk­inin Ásgeir, Margrét, Ragn­heiður, Hörður og Guð­bjartur Guð­bjartsbörn, Marías Þ. Guð­munds­son og Guð­mundur Guð­munds­son, bróðir Maríasar. Enginn eig­end­anna hefur viljað láta uppi um eign­ar­hlut hvers og eins, en eftir því sem DV kemst næst mun Ásgeir Guð­bjarts­son hafa verið stærsti hlut­haf­inn með um 30% eign­ar­hlut, Margrét systir hans komið næst með um 25%, þá Marías Þ. Guð­munds­son með 20% og Guð­mundur bróðir hans með um 17%. Láta mun nærri að sam­an­lagður eign­ar­hlutur þeirra Ragn­heiðar, Harðar og Guð­bjarts Guð­bjarts­sonar sé um 8% og skipt­ist hann jafnt milli þeirra mun láta nærri að þau hafi eign­ast rúmlega 50 milljóna króna hlut í Samherja.

Þau hluta­bréf sem stærsti hlut­haf­inn, Ásgeir Guð­bjarts­son, mun fá í hendur verða líklega með stærri tölu á, eða um 570 milljónir króna. Hlutur Margrétar verður um 475 milljónir króna, Maríasar um 380 milljónir króna og Guð­mundar ríflega 320 milljónir. Eftir að búið verður að ganga lögform­lega frá þessum kaupum, sem að sögn Maríasar verður trúlega í lok febrúar eða í byrjun mars, er ætl­unin að setja hlutafélagið Samherja á almennan hlutafjármarkað. Samherji er nú tal­inn vera virði um 10 millj­arða króna, en því hefur verið spáð að gengi bréfanna á mark­aði verið mjög hátt.

Guð­björgin.

„Bæjarbúar voru sviknir“

Í grein­ingu Gunnars Smára Egils­sonar, innsta kopps í búri Sós­í­alista­flokks­ins og fyrrum fjöl­miðla­manns, á þessum við­skiptum Samherja við kaupin á Hrönn hf. frá árinu 2019 segir:

„Samherji gaf ekki aðeins út ný hluta­bréf í tengslum við þessi kaup. Frænd­urnir gáfu líka út lof­orð að halda starf­semi Hrannar gang­andi á Ísafirði og að Guggan myndi landa þar öllum sínum afla. Og sam­bæri­leg lof­orð voru gefin gagn­vart Grind­vík­ingum, um stór­fellda atvinnu­upp­bygg­ingu. Þessi lof­orð voru full­kom­lega inni­stæðu­laus, frænd­urnir sviku þau svo fljótt að engar líkur eru á að þeir hafi nokkru sinni ætlað að standa við þau. Með þessum lof­orðum, sem á Ísafirði voru studd karakt­er­vott­orði frá bæj­ar­stjór­anum, Kristjáni Þór Júl­í­us­syni, féllust fyrri eig­endur á að Samherji tæki yfir rekst­ur­inn. Hug­myndin var að rekst­ur­inn yrði óbreyttur, að eig­endur gætu varið eign sína og bæj­ar­búar haldið vinnu sinni. Eig­end­urnir voru hólpnir og hafa örugg­lega hlegið alla leið í bank­ann. En bæj­ar­búar voru sviknir. Guggan land­aði aldrei á Ísafirði, kvót­inn var fluttur á önnur skip Samherja og Guggan var seld úr landi 1999, til fyr­ir­tækis Samherja í Þýska­landi.

Hagnaður Samherja af þessum snún­ingi á eig­endum Fiski­mjöls og lýsis og Hrannar, og á bæj­ar­búum í Grinda­vík og á Ísafirði, nam um 18.378 m.kr. miðað við núvirði kvót­ans. Þá reiknum við aðrar eignir í þessum við­skiptum upp á núll; rekstur, hús, skip og tæki. Ef við reiknum með 3,5% ávöxtun á þessa fjár­hæð frá árinu 1997 þá ætti hún að hafa ávaxt­ast og orðið að um 40,5 millj­örðum króna í dag. Það jafn­gildir um 36,5% af auð Samherja í dag.“ 

Þegar Samherji keypti útgerð­ar­fé­lagið Hrönn hf. inn í fyr­ir­tækið sagði for­stjóri Samherja, Þor­steinn Már Bald­vins­son, í við­tali við Rík­is­út­varpið að Ísfirð­ingar þyrftu engar áhyggjur að hafa af við­skipt­unum. Breyt­ingin myndi ekki draga úr umsvifum í bænum. Loforðin hans þrjú, að Guð­björgin yrði áfram gul, að hún yrði áfram ÍS og að hún yrði áfram gerð út frá Ísafirði, voru að end­ingu öll svikin. Reyndar var það svo að Guð­björgin land­aði aldrei aftur á Ísafirði og Samherji flutti kvót­ann á önnur skip í sinni eigu. „Guggan“ var svo seld til Þýska­lands ein­ungis tveimur árum síðar.

Gunnar Smári Egilsson Mynd. Skjáskot/RÚV

„Ég bara sagði þetta“

„Mér brá þegar ég sá afla­tölur fyrir Guð­björg­ina á síð­asta ári. Tölurnar voru eins og þarna væri trilla á ferð­inni í sam­an­burði við hina frysti­tog­ar­ana. Þeir hafa notað skipið á skrapi hingað og þangað. Þetta var afla­hæsta skip lands­ins ár eftir ár. Við vorum sárir þegar Guð­björgin fór frá Ísafirði á sínum tíma, en þetta verða hins­vegar að telj­ast eðli­legir við­skipta­hættir eins og kaupin ger­ast á eyr­inni,“ sagði Sigurður R. Ólafsson, for­maður Sjó­manna­fé­lags Ísfirð­inga í við­tali við Morg­un­blaðið, þegar fregnir bár­ust af sölu Guð­bjarg­ar­innar til Þýska­lands árið 1999.

Ekki eru mörg ár síðan í ljós kom að það var rétt sem fyrri eig­endur Hrannar höfðu alltaf haldið fram, að lof­orðið um Guð­björg­ina og útgerð frá Ísafirði hefði verið skrif­legt. Það var fyrrum alþing­is­mað­ur­inn Kristinn H. Gunn­ars­son sem birti yfir­lýs­ing­una á heima­síðu sinni árið 2018. Hún er und­ir­rituð af Þor­steini Má fyrir hönd Samherja og Ásgeiri Guð­bjarts­syni fyrir hönd Hrannar hf. Yfir­lýs­ingin er dag­sett þann 7. jan­úar árið 1997 og í henni segir:

„Frétta­til­kynn­ing. Hlut­hafar Samherja h.f. Akureyri og Hrannar h.h. Ísafirði hafa und­ir­ritað sam­komu­lag um að sam­eina þessi sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki. Sam­komu­lag er um að útgerð Guð­bjargar ÍS verði óbreytt frá því sem verið hefur á Ísafirði.“

Afrit af skrif­legu yfir­lýs­ing­unni.

Þegar Samherji seldi Guð­björg­ina sagði Þor­steinn Már yfir­lýs­ing­una hafa verið mis­tök, en að ekki hefði verið um „bind­andi lof­orð“ að ræða.

„Aðstæður í sjáv­ar­út­vegi eru það breyti­legar að það verður að við­ur­kenn­ast. Sjáv­ar­út­veg­ur­inn er eins og sjór­inn, síbreyti­legur,“ sagði hann í við­tali við Morg­un­blaðið. Þessu svipar mjög til þess sem Gunnar Már segir í loka­þætti Ver­búð­ar­innar við sama til­efni.

Aðspurður hvort hann hafi verið að taka til­lit til byggða­sjón­ar­miða með yfir­lýs­ing­unni sagði Þor­steinn Már:

„Ég bara sagði þetta og það hafði ekk­ert með póli­tík eða bæj­ar­stjórn að gera.“

„Eins og í glæpa­ser­íum á borð við Narcos ætti næsta sería af Ver­búð­inni að fylgja Sam­herj­a­mönnum,“ sagði Gunnar Smári Egilsson í pistli sem hann rit­aði á Facebooksíðu sína í til­efni af lokum sjón­varps­þáttar­að­ar­innar Ver­búð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð