Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fékk í magann á leiksýningu, prumpaði og kom ekki upp orði á eftir

Fékk í magann á leiksýningu, prumpaði og kom ekki upp orði á eftir

Leik­ar­inn Sig­steinn Sig­ur­bergs­son, eða Steini eins og hann er oft­ast kall­aður, er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Steini er einn af stofn­endum Leik­hóps­ins Lottu, en hóp­ur­inn hefur túrað um landið á sumrin frá árinu 2007 og útsett verk á borð við Dýrin í Hálsa­skógi, Rauð­hettu, Gosa og Gilitrutt og notið mik­illa vin­sælda.
Steini er þekktur fyrir skop­skyn sitt, en hann er mik­ill húmoristi og tekur sjálfan sig ekki of alvar­lega og óhætt að segja að gleði hans smiti út frá sér.
Mannlíf komst að því að Steini er algjör „zombie-nörd“, eins og hann orðar það sjálfur, hann er með of mikið ADHD til að geta lesið bækur og hann elskar að vaska upp.

Fjöl­skyldu­hagir? Bý einn og er barn­laus, en er búin að eigna mér hlut í öllum börnum systra minna og vina.

Menntun/atvinna? Leikari og vinn líka við að aðstoða sex vini mína við að takast á við athafnir dag­legs lífs.

Upp­á­halds­sjón­varps­efni? Númer 1, 2 og 3 Walking Dead. Ég er algjör „zombie-nörd“ og læt enga „upp­vakn­inga“ fram­hjá mér fara.
Game of Thrones er besta sjón­varps­efni sem búið hefur verið til.
Annars er það líka Survivor, Handmaid’s Tale og svo mæli ég með „What We Do in the Shadows“, þeir eru sjúk­lega fyndnir (svo er Dr. Phil svona „guilty plea­sure“).

Leikari? Ég verð að fá að nefna nokkra …
Íslenskir: Anna Svava, Júlía Hannam, Huld Ósk­ars­dóttir, Þórunn Lár­us­dóttir, Jóhannes Haukur og Þor­steinn Bachmann.
Erlendir: Það breyt­ist bara á klukku­tíma fresti …

Rit­höf­undur? Upp­á­halds­rit­höf­undur minn er leik­skáld og heitir Anna Bergljót Thoraren­sen.

Bók eða bíó? Bíó, er með of mikið ADHD til að lesa bækur.

Besti matur? Grill­aðar lamba­kótel­ettur (verða að vera krydd­aðar með Aromat).

Kók eða pepsí? Pepsi Max er mitt eit­ur­lyf.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Eftir að hafa ferð­ast með leik­hópnum Lottu um Ísland í 15 ár er þetta ekki spurn­ing, Ísland í held sinni! Shitt­ur­inn titt­ur­inn hvað við búum á fal­legu Landi.

Hvað er skemmti­legt? Að borða góðan mat, spila og ferð­ast um landið og heim­inn með góðu fólki (svo finnst mér líka gaman að vaska upp og á þess vegna ekki upp­þvotta­vél).

Hvað er leið­in­legt? Að borða góðan mat, spila og ferð­ast um landið og heim­inn með leið­in­legu fólki. Og hlusta á golf­vini mína tala um hvað hefði verið hægt að gera betur á holu 8.

Hvaða flokkur? Vinstri græn eins og er.

Hvaða skemmti­staður? Gott partí í heima­húsi eða sum­ar­bú­stað er minn tebolli.

Kostir? Ég er vinur vina minna.

Lestir? Ég er við­kvæmt blóm, þótt ég eigi erfitt með að við­ur­kenna það.

Hver er fynd­inn? Ricky Gervais er fyndn­asti maður allra tíma. En þar á eftir koma Sigga Dís og Thelma, vin­konur mínar.

Hver er leið­in­legur? „Bezzerwizzer“-týpan sem verður að hafa rétt fyrir sér sama hvað.

Trúir þú á drauga? Nei, og trúi ekki á neitt yfir­nátt­úru­legt. Mér snýst kannski hugur ef það koma fréttir eins „fjórir draugar valda miklum usla í Smára­lind“ eða „fjórir slös­uð­ust alvar­lega í anda­glasi í Hafn­ar­firði“ eða „mið­ill – spá­kona/maður vann tvisvar sinnum í röð í lottó“.
Aldrei að segja aldrei. 😊

Stærsta augna­blikið? Þegar ég hopp­aði einn úr flug­vél í fall­hlíf og svo vann ég nátt­úr­lega nokkrar millj­ónir í sund­keppni sem ég tók þátt í þegar ég var sæð­is­fruma.

Mestu von­brigðin? Að Hitler hafi ekki fengið inn­göngu í mynd­lista­skól­ann á sínum tíma. Það hefði verið voða gott fyrir mjög marga hefði hann bara fengið inn­göngu og ein­beint sér að því.

Hver er draum­ur­inn? Góð heilsa og að vinna í Eurojackpot.
Ég var einu sinni að vinna í afgreiðslu á bens­ín­stöð og það kom maður inn og spurði mig: „Áttu Draum?“ Og ég svar­aði:„Já, mig langar svo að verða slökkvi­liðs­maður.“ Hann horfði furðu­lega á mig og sagði svo: „Ég ætla bara borga bens­ínið á dælu 5 og fá einn grænan Ópal.“ 

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Fékk Covid og slapp bara mjög vel frá því.

Ertu búinn að ná öllum þínum mark­miðum? Þá væri lífið nú tóm­legt held ég …

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Veistu hvað þreyttasta kona Rúss­lands heitir?
Olga Barasofa.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Þegar ég fékk í mag­ann á einni leik­sýn­ingu, prump­aði og … ég get ekki sagt meira. En það sem var enn vand­ræða­legra var að það vara bar liðin ein mín­úta af sýn­ing­unni og hún var klukku­tími.

Sorg­leg­asta stundin? Fyrir utan þegar elsku pabbi minn dó, þá er það þegar Ísland er að reyna að kom­ast eitt­hvað áfram í hand- eða fót­bolta og tekst það ekki (sem er ansi oft). Ég á nefni­lega svona Áfram Ísland-kassa sem er með öllu; fánum, flöggum, borðum, bún­ingum, máln­ing­ar­dóti og fleira en get bara haft það svo sjaldan uppi.

Mesta gleðin? Þegar ég gat loks­ins keypt mér íbúð.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Að átta sig á því að maður getur valið að hafa gaman af líf­inu – og velja það. 😊 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu