Stjórn Verkalýðsfélags Suðurlands mótmælir áætlaðri lokun á póstafgreiðslustöðvum á Hellu og Hvolfsvelli.
Samkvæmt Sunnlenska.is segir í ályktun verkalýðsfélagsins
„Fyrir liggur að með þessari ákvörðun muni störf hverfa af svæðinu og við það er ekki unað. Á tímum þar sem netverslanir eru á uppleið er ljóst að lokun póstafgreiðslustöðva kemur til með að hafa mikil áhrif á félagsmenn og íbúa sveitarfélaganna,“ segir í ályktun frá verkalýðsfélaginu.
Stjórn Verkalýðsfélags Suðurlands krefst þess að forsvarsmenn Íslandspósts endurskoði ákvörðunina strax og skorar á fulltrúa sveitarfélaganna að beita sér harðlega í þessu máli, til hagsbóta fyrir íbúa þeirra





















Athugasemdir