Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjómannslífið heillar Helga Seljan fréttamann: „Ég var oft kallaður Gísli Marteinn“

Sjómannslífið heillar Helga Seljan fréttamann: „Ég var oft kallaður Gísli Marteinn“
Helgi Seljan, blaða­maður. Mynd: Róbert Reynisson

Helgi Seljan frétta­maður er frá Reyð­ar­firði. Sjórinn heillar og hefur hann af og til í gegnum árin farið í túra. Hvað dregur hann á sjó­inn?

Síðustu ár hef ég svo skot­ist í einn og einn túr á bol­fisk­s­tog­ara frá Fáskrúðs­firði

„Að ein­hverju leyti til er þetta ein­hvers konar nostal­gía og karla­grobb. En á tíma­bili var þetta þannig að ég vildi ná mér mér í auka­tekjur eftir hrun; ég var, eins og aðrir, skít­blankur en ég átti bless­un­ar­lega lítið þegar kom að hrun­inu þannig að ég tap­aði minna. Ég sá að ég þyrfti meira og þess vegna fór ég á sjó og var svo hepp­inn að ég fór á síld­ar­túr 2008, rétt fyrir hrun, sem breytt­ist í mar­kíltúr í miðjum túr, sem varð eitt risa­stórt ævin­týri og ég var á mak­ríl þarna í eina, tvær, þrjár og upp í sex vikur á sumrin þar á eftir, sem var ævin­týra­legur tími. Síðustu ár hef ég svo skot­ist í einn og einn túr á bol­fisk­s­tog­ara frá Fáskrúðs­firði, Ljósa­felli. Þetta er allt annað and­rúms­loft. Í fyrsta lagi þarf maður eins og alls staðar ann­ars staðar að skila sínu en maður er líka með til­tölu­lega afmark­aðan ramma utan um það sem maður er að gera; maður er að vinna á vöktum og ef það er fiskur þá er vinna. Ef það er veiði þá er vinna. Ef það er ekki veiði þá er ann­að­hvort ekki vinna eða minni vinna. Maður gengur inn í mjög skýrt afmark­aðan ramma. Þetta eru smáá­tök sem ég held að ég hafi stundum gott af og svo hef ég bara gott af því að láta ein­hvern öskra á mig í smá­stund, þótt það sé ekk­ert rosa­lega mikið. Þú getur ímyndað þér hvort menn hafi ekki gaman af því að fífl­ast aðeins í mér; ég var oft kall­aður Gísli Marteinn,“ segir Helgi og bætir svo við að hann verði að gjöra svo vel að taka þessum skotum skips­fé­laga sinna. „Einhvern tím­ann hefur sigið aðeins í mig yfir því, en ég hef alveg húmor fyrir því. Mér finnst það mjög fyndið. Ég hef verið kall­aður ýmsum nöfnum; „litla kast­ljósið okkar“ og eitt­hvað svona. Mér finnst þetta vera mjög skemmti­legt.“

Sjórinn lokkar og laðar

„Ég hef alltaf verið með það í hausnum og ekki vitað hvort það gengi eftir, en ef ég myndi einn dag­inn hætta þessu, sem ég hef oft hugsað um, þá væri ég alveg til í að fara á sjó­inn aftur. Ég kann mjög vel við mig þar. Það er ekk­ert mjög fjöl­skyldu­vænt; ég er með þrjú börn. Fjöl­skyldu. En þegar ég tala um þetta núna; ég segi ekki að það komi hressi­leg harm­óniku­tón­list undir en ég sakna þess að fara ekki reglu­lega og það er svo margt við þetta sem ég hef áhuga á.“

Viðtalið við Helga Seljan má nálg­ast í nýjasta helg­ar­blaði Mannlífs. Einnig má horfa á við­talið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi